Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1986, Page 50

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1986, Page 50
Tímarit Máls og menningar Stóra dýrið „les“ hugsanir litla dýrsins á sama hátt og stjúpfaðirinn „les“ hugsanir telpunnar: Hann vissi líka hvað gerðist í litla höfðinu undir þessu litlausa þunna hári, bakvið þessi grábláu, dapurlegu augu. (122) Auðvitað veit stjúpinn ekki hvað gerist í höfði telpunnar. En hann vill vita það, þráir að vita það, verður að fá að vita . . . Þess vegna segir hann söguna sína aftur og aftur og reynir að „lesa“ viðbrögð telpunnar — en þau eru alltaf eins. Hún lifir sig inn í söguna — en skilur ekki neitt eða neitar að gefa þau „svör“ sem hann heldur að hún hafi. A næturnar verður hann þess vegna að „fara fram úr og „taka í“ hana eins og hann nefndi það.“ (126) Aður var sagt að saga stjúpans einkennist af sadisma enda segist stjúpinn hata barnið: „hvað hann hataði þessa litlu vanmáttugu veru sem þó var svo sterk.“ (122) En sadismi er líka eins konar ást. Kynhvöt mannsins er samsett úr öllum þeim þroskastigum sem hún hefur farið í gegnum og eitt af þeim er þarmstigið þar sem árásargirni, sadismi og masókismi koma til sögunnar ef marka má kenningar Freuds. Sadisminn er ekki inntak eins eða neins, heldur aðeins form hvatanna, það hvernig eða í hvaða mynd þær leita sér útrásar. Annað er hvert markmið þeirra reynist vera, að hverju eða hverjum þær beinast. Og það er nokkuð ljóst í sögu stjúpans að þær beinast að barninu, stjúpdótturinni. Bæði líkama hennar og sál. Ef dýrasaga mannsins er yfir- færsla — ef ósk býr að baki sögunnar, þá er hún þessi: Litla dýrið . . . snýr við . . . til stóra dýrsins. Telpan skilur ekki hvað er að gerast. Hvernig á sex ára barn að ráða fram úr því að árás sé atlot (og atlot árás)? Hún veit að hún sjálf gegnir mikilvægu hlutverki af því að ástríðufull athygli mannsins beinist stöðugt að henni. Það er eðlilegt og jákvætt að börn séu miðpunktur í lífi fjölskyldu en þessi athygli er valdbeiting, full af leyndarmálum og grimmd. Stjúpfaðirinn vill henni greinilega eitthvað — en hvað? Litla telpan er ekki læs. Hún getur ekki lesið texta en hún getur'lesið heiminn og hún getur lesið myndir. „Myndir ljúga ekki“ segir stjúpinn (122). Telpan starir á myndina af dýrinu eins og hún búist við að sjá eitthvað þar sem sé falið að baki orðanna í sögu stjúpans. Hún leitar að einhverri merkingu, einhverri skýringu á þeirri martröð sem hún lifir í. Hún er alein, enginn getur hjálpað henni. Hún starir í frosinni örvæntingu á myndina. Hún er í gildru. Móðir hennar er þrautpínd kona og hrædd við mann sinn. Hún er látin 176
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.