Tímarit Máls og menningar - 01.05.1986, Síða 138
Tímarit Máls og menningar
hið glæsilega ljóð „Vængbjartur" og auk
þess tvö örstutt ljóð sem heita „Frjáls"
og „Jarðarsmár“. Með þeim sannar Sig-
urður að hann er jafnvígur á miðleitin og
útleitin ljóð. Þróunin í nýju bókinni er
eins og áður sagði í átt til meiri miðleitni
og hnitmiðunar í stíl yfirleitt. Sigurður
Pálsson er orðhagur og myndvís og jafn-
framt vandvirkur og kunnáttusamur
ljóðasmiður. Hitt er svo aftur annað mál
að hjá svona mikilvirku skáldi fljóta
mörg miðlungsljóð með. Sigurður hefur
stundum átt í erfiðleikum með að tak-
Höfundar efnis í þessu hefti
Asturias, Miguel Angel, f. 1899, skáld
og rithöfundur frá Guatemala sem
hlaut Nóbelsverðlaunin 1967. Fræg-
asta bók hans er Forseti lýdveldisins
(1946) sem kom út á íslensku í þýð-
ingu Hannesar Sigfússonar árið
1964.
Berglind Gunnarsdóttir, f. 1953. Starfs-
maður Ríkisútvarpsins. Bók hennar
Ljóð fyrir lífi kom út 1983.
Dagný Kristjánsdóttir, f. 1949. Lektor
við háskólann í Osló.
Elías Mar, f. 1924. Rithöfundur.
Eyjólfur Kjalar Emilsson, f. 1953.
Heimspekingur (sjá TMM 2 1985).
Guðbergur Bergsson, f. 1932. Rithöf-
undur.
Guðbjöm Sigurmundsson, f. 1956. Hann
er á kandídatsstigi í íslenskum bók-
menntum.
Guðmundur Andri Thorsson, f. 1957.
Gagnrýnandi.
lngunn Þóra Magnúsdóttir, f. 1944.
Kennari. Nam auk þess myndmennt
í Þýskalandi og Danmörku.
ísak Harðarson, f. 1956. Skáld.
Kristinn E. Andrésson, 1901 — 1973. Bók-
menntafræðingur, stofnandi Máls og
menningar og ritstjóri Tímaritsins.
marka sig og retoríkin hefur stundum
verið honum fjötur um fót. Svo er þó
ekki í Ljóð námu land og margt í þessari
bók bendir til að ljóðagerð Sigurðar sé
að ganga í gegnum breytingaskeið — í
átt til meiri einfaldleika. Að lokum er
freistandi að minna á hin lærdómsríku
orð Majakovskís þar sem hann segir:
Skáldskapur er sama og vinnsla á radíum
Hvert unnið gramm kostar ár af erfiði.
(Ský í buxum, bls. 57)
Guðbjóm Sigurmundsson.
Kristján Amgrímsson, f. 1964. Hann
starfar sem ljósmyndari við Dag á
Akureyri.
Kristján Kristjánsson, f. 1960. Nemi í
bókmenntafræði.
Matthías Viðar Scemundsson, f. 1954.
Lektor við HI í íslenskum bók-
menntum.
Páll Valsson, f. 1960. Gagnrýnandi.
Pétur Gunnarsson, f. 1947. Rithöf-
undur.
Sjón (heitir fullu nafni Sigurjón Birgir
Sigurðsson), f. 1962. Skáld. Síðasta
ljóðabók hans er Leikfangakastalar
sagði hún það er ekkert til sem heitir
leikfangakastalar (1986).
Steingrímur Sigurðsson, f. 1925. Málari,
rithöfundur og ritstjóri Lífs og listar.
Thor Vilhjálmsson, f. 1925. Rithöf-
undur.
Vésteinn Ólason, f. 1939. Prófessor.
Vilborg Dagbjartsdóttir, f. 1930. Skáld.
Þorsteinn frá Hamri, f. 1934. Skáld.
Þorsteinn Gylfason, í. 1942. Dósent í
heimspeki við HI.
Öm Ólafsson, f. 1941. Bókmenntafræð-
ingur og gagnrýnandi. Doktor í bók-
menntum frá háskólanum II í Lyon í
Frakklandi.
264