Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1990, Qupperneq 109

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1990, Qupperneq 109
ísbjörg Guðmundsdóttir er einkabam foreldra sinna, og öðm fremur er saga hennar rannsókn á fjölskyldugerðinni karl kona bam (dóttir). Ekki er nokkur leið að segja að niðurstöður þeirrar rannsóknar séu aðlaðandi. Faðirinn er spennandi manngerð: vel greind- ur alþýðumaður sem líður fyrir að vera ómennt- aður og fá aldrei starf sem nýtir hæfileika hans. Hann lifir í stöðugri sjálfsblekkingu: hatar þá sem em ríkir en þráir sjálfur að verða ríkur; fyrirlítur grenjuskjóður en grætur samt sjálfur; hefur óbeit á öllu sem gefur eftir en hlýtur þó sjálfur að láta undan. Dagleg niðurlæging og árekstrar milli þess sem hann er og þess sem hann vill vera valda reglubundnum þunglynd- isköstum sem ísbjörg og móðir hennar umbera af bældri þjáningu. Móðirin, Þórhildur, hefur gefist þessum manni af lífí og sál og veit varla hvemig hann fer með hana fyrr en löngu eftir að hann er dauður. Fyrir manni sínum er hún lifandi dæmi þess sem lætur undan og er fyrirlitlegt, þó vill hann meina að hann elski hana. Að dæmi heim- ilisharðstjóra á öllum tímum einangrar Guð- mundur heimilið smám saman, gætir þess að engir vinir hænist að og venur systur Þórhildar af komum sínum með dylgjum og ofstopa. Þór- hildur vinnur við að skúra sjúkrahús. Það gefur henni lítið í aðra hönd og vitsmunalega eða félagslega uppörvun hlýtur hún hvorki í starfi né heima. Inn í þessa gróðrarstíu kúgunar og sjálfs- blekkingar fæðist ísbjörg, bamið sem á að veita einkum föðumum uppreisn æm. Guðmundur sér sjálfan sig í stelpunni, dýrkar hana og nærir á hugmyndum sínum og einstrengingslegum lífsskoðunum um leið og hann hrifsar af siðleysi hins sjálfselska mun stærri hlut en honum ber af sál hennar og tilfinningum. Auk þess á hún að gera allt sem hann drey mdi um en gerði ekki; hún á að ganga menntaveginn og vera töff, mala alla kúgara. Sagan sýnir í smáatriðum hvemig gmnnur er lagður að einstaklingi inni í lítilli lokaðri íbúð verkamannafjölskyldu í Reykjavík á síðari hluta þessarar aldar, og hvemig stendur á því að þessi einstaklingur getur aldrei tikkað eðlilega í samfélagi manna. ísbjörg verður einangrað bam og þó að hún sé á bamaheimili og gangi seinna í skóla á hún engan félagsskap nema heima. Vinaleysið ásamt vakandi umönnun og áhuga föðurins veldur því að ísbjörgu fer að finnast hún sjálf- sagt þriðja hjól undir vagni í hjónabandinu, líka þegar foreldrar hennar elskast. Lýsingin á því ferli er óhugnanlega sannfærandi í sögunni, og nær hámarki í sjálfsmorði föðurins. ísbjörg er átta ára þegar faðir hennar svíkur hana með því að drepa sig og skilur hana eftir altekna sektarkennd. Því henni finnst dauði föð- urins vera sér að kenna. Næsta atvik á eftir í bókinni sýnir ísbjörgu eftir morðið á „við- skiptavininum“ röskum áratug seinna; þessir tveir atburðir eiga órjúfanlega saman: auga fyrir auga fyrir tönn, eins og segir í byrjun bókar. Við dauða föðurins stöðvast þroski ísbjargar og geð hennar klofnar. Þetta segir sagan aldrei bemm orðum en sýnir á tvo vegu: með sýn hennar á „draumalandinu", sendinni strönd sem enginn maður hefur séð eða snert, eins konar meyjareyju þar sem engir karlmenn fyrirfinnast og vindurinn sér um frjóvgun konunnar. Og með því að skipta á vel völdum stöðum úr fyrstu persónu frásögn yfir í þriðju persónu („ég“ verður ,,hún“). Það gerist einmitt í íyrsta sinn í næstu frásögn á eftir sjálfsmorðinu, lýsingunni á ísbjörgu eftir ódæðisverkið, til að sýna að það var geðklofinn sem myrti þann sem reyndi að taka stöðu föðurins í lífi stúlkunnar. Enginn má eiga ísbjörgu nema faðir hennar — og hann má það síst allra. Móðirin svíkurísbjörgu líka, með linku sinni, óraunsæi og úrræðaleysi. Eftir að maður hennar er dáinn gerir hún bamið ábyrgt fyrir lífi sínu — og jafnvel dauða. Einangmn og einsemd ísbjargar nær kuldalegum djúpum sínum þegar hún gefur örvæntingarfullri móður sinni leyfi til að fremja sjálfsmorð þrem ámm eftir dauða föðurins. Þórhildur heykist á að nýta leyfið, en TMM 1990:4 107
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.