Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1992, Page 31

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1992, Page 31
ritunartímanum, um tækni, tölvur, málfar eða djöful hagvaxtarins. Þar er í það minnsta ein skýringin, einsog sjá má í / túninu heima: „tilhneigíng til að segja frá, ánægjan sem af því fæst að móta í orðum fyrir sér og öðrum ímynduð stórmæli eða lífsferla fólks eða innri umsvif huga sín sjálfs“ orsakast kannski „af ofnæmi gagn- vart fyrirburðum tímans“ (bls. 206-207), og auðvitað fylgir halldórsk líking: einsog lúngnauppþemba orsakast af kattarhlands- lykt. Af ofnæmi gagnvart fyrirburðum tím- ans hefur Halldór fært okkur þessa mynd af æsku sinni. Og snúið þá, einsog ég vil leyfa mér að benda á í lokin, um leið aftur til síns fomkínverska meistara í taó, einsog Tem- údsjín forðum að unnum öllum sínum sigr- um. Halldór kynntist taóismanum ungur og sá vegur skar leiðir hans æ síðan — þó hvorki sem trú né dulhyggja. Þegar íslenskir sam- ferðamann Halldórs voru á kafí í austrænni dultrú á þriðja áratugnum, valdi hann sér taó úr þeim graut öllum — þann veg sem er lífsspeki en ekki mystík (og mun það enn álit fræðimanna á borð við D. C. Lau, sbr. heimildaskrá). Upp frá því vissi hann af taó einmitt sem öðmm vegi en sínum. Annars vegar bjó alltaf í Halldóri starfsgleðin, per- sónulegur sem pólitískur baráttuvilji, harð- snúinn metnaður sem fann sér glæsilegan farveg. Hins vegar vissi hann af þessum kínverska vísdómi um hið lága, mjúka, um afneitun strits og metnaðar og sigur hins auðmjúka. Afstaða hans til taós var því alltaf tvíbentari en okkur hættir til að halda nú. í ritdómi sem Halldór skrifaði um nýja þýðingu á Bókinni um veginn árið 1942 vitnar hann með velþóknum til kínversks fræðimanns sem segir hana boða „speki fávísinnar, kosti lágkúrunnar og mikilvægi þess að kunna að villa á sér heimildir“ (Sjálfsagðir hlutir, bls. 144). Að minni hyggju átti Halldór fyrir vikið alla tíð erfitt með að koma þessum svokölluðu taóísku persónum fyrir í skáldsögum sínum. Sum- um þeirra hætti til að verða karakterlaus spakmælasöfn, með öllu óepísk. I minn- ingasögunum er taóistinn hins vegar sögu- maður, og Halldór kemur lífssýn Lao tse einsog hann skildi hana og sagnamanninum í sjálfum sér betur heim og saman en fyrr. „Leiðir Alvaldsins liggja heim“ segir í Bók- inni um veginn (bls. 46; og væri ef marka má enska útgáfu kannski réttar þýtt Vegur- inn liggur heim). Bókin um veginn hefur jafnvel áhrif á frásagnarhátt minningabókanna: Allur sá munnlegi blær sem er á frásögn Halldórs kemur heim og saman við það sem hann krefst af þýðendum Bókarinnar um veginn í fyrrnefndum ritdómi: „Mál á svona bók verður að vera munntamt og alþýðlegt eins- og þula, tilsvar í þjóðsögu eða orðskviður“. Sýnin á strit mannanna í Bókinni um veginn sem fór oft fyrir brjóstið á honum áður, stendur nú nær honum en fyrr, og verður kannski best lýst með orðum hans sjálfs um Snorra Sturluson frá árinu 1963: „Þrátt fyrir ósnortið látbragð sögumanns í hverju tilviki verður saga þó aldrei viðskila einhvern blæ af hámentaðri kaldhæðni dulinni undirytra borðinu" (TMM 1964:1, bls. 8). Jafnframt er vandfundin í smámyndum Halldórs predikun um borgaralega meðal- hegðun, fremur en í Bókinni um veginn, hvorki hér né þar er verið að hugsa um „þvílíkan hégóma einsog að frelsa sál sína“, svo aftur sé vitnað í ritdóminn frá árinu 1942. I annarri austrænni sögn sem Halldór vitnar til segir af meistara einum í sínum TMM 1992:3 29
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.