Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1992, Page 35

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1992, Page 35
einnig í mörgum nútímasögum, ekki síst myndrænum, og íþróttafréttum. Á hinn bóginn eru til frásagnir þar sem talað er um hetjuskap án tengsla við krafta eða vígfimi. Sá sem hefur litla líkamsburði eða jafnvel enga getur sýnt hugrekki og trúnað við hugsjón með lífið að veði. Þannig getum við staðið andspænis ýmiss konar „hetjum" sem beint má rekja til hinn- ar fomu hetju en virðast þó nær algerar andstæður hver annarrar. Hetjudýrkun getur virst heldur einföld og jafnvel einfeldningsleg, en verður þó ekki skilin frá ást á góðum sögum. Það sem gerir hetjuna sögulega, gerir hana að söguhetju, er fýsi hennar að hætta lífinu sem vegst á við mikla hæfileika til að veija það. Þessi fýsn getur virst handan mannlegrar skynsemi, því að einatt verður ávinningur af hetjuleg- um afrekum eða fómum smár miðað við tilkostnað. Sálfróðir menn væm vísir til að segja að í hetjusögum takist á lífsfýsn og dauðafýsn mannskepnunnar. Segja má að hetjuhugsjónin tilheyri fomum tímum og með nútímanum komi til skjalanna mat á hetjuskapnum í anda þeirra hygginda sem í hag koma og löngum hafa verið borgurum og búmm ofarlega í huga. Með Don Kíkóta særðu bókmenntir nýaldar amk. eina tegund hetjudýrkunar banasári. En hetjuímyndin á í því sammerkt einum af helstu andstæðing- um sínum, hinum þríhöfða þursi, að hún er ekki auðdrepin. Svo er að sjá sem hetjudýrk- un finni sér ævinlega ný form, stingi fram nýju höfði, þegar eitt hefur verið höggvið af. Mætti draga saman mörg dæmi því til stuðn- ings í bókmenntum Evrópumanna, svo að ekki sé minnst á leikrit, kvikmyndir og fréttamiðla. Allt fram á okkar daga hefur hetjudýrkun magnast á ófriðartímum og óspart verið beitt til múgseljunar. III Ekki verður því haldið fram að hetjudýrkun hafi ráðið lögum og lofum á Islandi án andófs fram á rithöfundardaga Halldórs Laxness. Kalla má að kirkjan hafi frá önd- verðu reynt með boðskap sínum að andæfa hetjudýrkun af því tagi sem tíðkast hafði á Norðurlöndum, enda þvert á móti allri sið- fræði norrænna manna að tigna þann mann sem lét handtaka sig, hæða og krossfesta án þess að veita nokkra mótspymu. Rökréttu viðbragði fomra hetjudýrkenda við sögum af Hvítakristi er lýst með orðum Þorgeirs Hávarssonar í Gerplu: Þau fræði hef eg numin að móður minni, að margir ágætismenn hafi skorað Hvítakrist á hólm, og hafi hann við aungvan þorað að berjast. Mun hann vera ragur, og vil eg víst flestum konúngum íyrr þjóna en honum (48). Þó er í sögu af Hvítakristi og einnig í fjölmörgum helgisögum að finna æðruleysi gagnvart dauðanum sem hetjudýrkendur hlutu að telja betra en ekki, en hefðbundnar hetjur er ekki að fínna á sannkristnum bók- um, nema Gamlatestamentið sé með þeim talið. Mörkin milli bardagahetja og helgi- manna urðu þó óljósari með riddarasögum sem sögðu frá riddurum ágætum sem einn- ig voru trúmenn. Fræðimenn hafa og velt því fyrir sér hvort ýmislegt lof sem borið er á ribbalda og manndrápara á fomum bók- um kunni að vera til þess ætlað að draga dár að þeim fremur en til vegsemdar, en ég skal 2 láta það liggja milli hluta hér. Skopfærsla hetjuskaparins verður ótví- ræð í íslenskum bókmenntum á 19. öld með Heljarslóðarorrustu Gröndals, og andhetjur TMM 1992:3 33
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.