Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1992, Page 106

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1992, Page 106
rammans. I öllu falli hefur minnið og manns- hugurinn farið um þær höndum, því þetta eru huglægar kindur með sín rauðu augu og ókind- arlegu hom. Fígúran á bakvið þær virkar hálf satamsk svo maður býst fyrst við einhverjum djöfuldómi, sem ekki er. En er þetta ekki eins konar skuggi af annarri skepnunni, blóðskuggi, mennskur skuggi af dýri, náttúran í manninum? Jón Hallur Stefánsson Þetta er allt svona einhvern veginn Guðmundur Andri Thorsson. íslenski draumurinn. Mál og menning 1991. 200 bls. Ég minnist þess að í hugleiðingu sem Guð- mundur Andri skrifaði um bókavertíðina 1989 („Af óhamingjusömum fjölskyldum“ TMM 1990:1. Bls. 67-75) gerði hann að umtalsefni þá bölsýni sem einkennt hafði bókmenntirnar það árið. Þennan djöfulgang í bókmenntunum sá hann sem beina afleiðingu af því æði sem ríkti hvarvetna í samfélaginu. Það ólguðu harm- sögurnar allt í kring um okkur, fáránlegir og ótrúlegir atburðir ættu sér stað og það væri firra að halda annað en að bókmenntimar brygðust við þessu, að samfélagsmyndin fyndi sér stað í sögum og ljóðum. En þegar hann sjálfur sest niður til að skrifa skáldsögu reynir hann á öllu meðvitaðri hátt að nálgast vandamál þessa tryllta þjóðfélags. Gjaldþrot, fjárglæfrar og misskilin atorkusemi eru útgangspunktar ís- lenska draumsins en ekki einungis bakgrunnur hans og það er gerð alvarleg tilraun til þess að skilja í gegnum miðil skáldsögunnar hvað felst í þessum svokallaða íslenska veruleika, hvers- konar þjóðfélag það sé sem elur af sér efnahags- lega ringulreið, blekkingar og sjálfsmorð. Það er spurt: hvemig stendur eiginlega á þessu ástandi? Hvemig í ósköpunum fór eiginlega svona fyrir okkur? Því þó að einstaklingarnir séu í forgrunninum og fjallað sé um lífshlaup þeirra og tilfinningar má hvarvetna lesa út úr sögunni að það er samfélagið sem áherslan liggur á. Það er reynt að kanna hvað það er sem einstaklingamir hafa myndað í sameiningu, á hvern hátt það sameiginlega mótar það einstaka og öfugt og á hvem hátt þetta samfélag er sérstaklega íslenskt. Það er hins vegar gáfa Guðmundar Andra að geta skemmt sér mitt í alvöruþunganum. Þrátt fyrir að bókin segi átak- anlega harmsögu og fjalli af siðferðislegri ein- urð um mjög brýn mál vegur léttleiki og galsi stflsins þama á móti, lesendum er skemmt með ljótum sögum af sjálfsblekktu fólki. Möguleikinn Sagan er sögð af Hrafni, hæglætismanni á fer- tugsaldri sem í einni svipan hefur verið rændur sínum jarðnesku eigum af besta vini sínum, Kjartani, og situr einn inn í stofu um nótt, sötrar viskí og riljar upp minningar, reynir að átta sig á persónuleika Kjartans, geta í eyður í lífi föður hans, Sigurðar, og skilja hvað olli hrakfömm þeirra feðga í leit þeirra að auðsæld og sjálf- stæði. Það ljær sögunni ákveðinn trúverðug- leika að segja hana í fyrstu persónu og sjónarhomið bindur traustlega saman tvo meg- inþræði verksins sem em annars vegar sú frá- sögn sem spinnst út af persónunum en hins vegar hugleiðingar um íslenskan vemleika. Hugleiðingin er frásagnaraðferð sem ekki hefur verið notuð mikið í íslenskum skáldsögum en nokkrir samtímahöfundar hafa náð að skrifa framúrskarandi bókmenntaverk með þessari aðferð eins og til dæmis Milan Kundera og Botho Strauss og með þeim hætti viðhaldið umfangi skáldsögunnar, nánum tengslum henn- ar við aðrar textahefðir og beittri rýni. Þeir sem hafa lesið bækur Kundera kannast við hvemig þar er fléttað saman persónum og vangaveltum og þær látnar kallast á, persónur spretta af vangaveltum og vangaveltumar skýra gerðir persónanna og í grundvallaratriðum er farið eins að í Islenska draumnum þó útfærslan sé önnur. I stað þess að söguhöfundur sé sjálfur í 104 TMM 1992:3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.