Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1992, Blaðsíða 79

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1992, Blaðsíða 79
Þó voru það ekki bara vopnin sem leiddu þessa bölvun yfir okkur, heldur líka hjátrú fullorðna fólksins, en það var alltaf að tala um að sjódauðir menn gengju um fjöruna og pössuðu sorphauga hersins. Okkur var sagt frá einsemdarsvipnum og holum tóttunum á þessum sjóreknu varðmönnum. Það voru til sögur af körlum sem grömsuðu einsog gammar í sorpinu og höfðu rekist á og haldið hver um annan að þeir væru framliðnir og orðið svo hræddir að þó að þeir segðu draugasögur á fylliríum og dansleikjum forðuðust þeir hver annan í dagsbirtu. Við vorum staðráðnir í að komast niður bjargið og rannsaka haugana. Við ætluðum að finna skothylki og helst fjársjóði. Við höfðum heyrt um gullúrin sem lágu í sandinum og kirkjugarðsrotturnar sem urguðu í myrkrinu og gátu gleypt bæði hunda og ketti. En skothylkin voru aðalmálið, því að svo ætluðum við að redda okkur vopnum úr vopnabúri hersins og ganga um þorpsgötumar og skjóta út í loftið. Það var ekki útilokað að við myndum stúta nokkrum, til dæmis Jóa leikfimikennara og öllum verkstjórunum og það sannaði hvað hugmynd- in var góð að við höfðum ekki rætt þetta lengi þegar hálft þorpið lá í valnum. Ég heyrði bíótónlist í huganum; þegar við flýðum austur á bóginn, út í mosavaxið hraunið, því að við vorum eftirlýstir. Myndir sem á stóð WANTED DEAD OR ALIVE, héngu í öllum fiskiðjuverum. Við vorum yngstu glæpamenn landsins og heimtuðum að komast í herinn og fá amerískan ríkisborgararétt; ella fengju önnur þorp á nesinu sömu útreið og þorpið okkar. Alla þessa hugaróra urðum við rekja oní félagsmálafulltrúana og kerlingarnar frá bamavemdamefndinni, því þó að enginn okkar hleypti af einu einasta skoti og byssur og rifflar kæmu aldrei til sögunnar, endaði þetta með skelfíngu. Siggi og Jonni áttu hermannahjálma sem bræður þeirra höfðu gefið þeim, en hermannahjálmamir lágu á haugunum og ég var staðráðinn í að ná mér í einn, en í staðinn fyrir hjálm var ég með gamlan emaléraðan hlandkopp frá afa og hafði bundið vír við haldið og fest hann í barminn hinum megin, þannig að hann var einsog hermannahjálmur á höfðinu, því að það var algjörlega vonlaust að príla niður bjargið án þess að hafa TMM 1992:4 77
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.