Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1992, Blaðsíða 54

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1992, Blaðsíða 54
Mitt í auðlegð lífsins og með framsetningu sinni á þessari sömu auðlegð, lýsir skáld- sagan djúpu ráðleysi hins lifandi manns. Þegar menn hafa reynt aftur og aftur í ald- anna rás að setja sig í kennarastellingar í skáldsögunni, hafa tilraunimar jafnan stefnt að breytingu skáldsagnaformsins sjálfs.24 í greinum og skáldverkum Halldórs á fimmta áratugnum má ftnna margvíslegan vitnisburð um að glíma hans við skáldsögu- formið snýst fyrst og fremst um að koma í veg fyrir að rithöfundurinn einangrist og verk hans vitni um ráðleysi af því tagi sem Benjamin lýsir. Lítum á fáein dæmi. í viðtali við Þjóðviljann árið 1944 talar Halldór af nokkurri fyrirlitningu um „and- lægar“, þ.e.a.s. súbjektífar, skáldsögur, en til þeirra telur hann flestar nútímaskáldsög- ur. Andlægu sálarfræðina segir hann svo ekki annað en „eftirhreytur af trúarheim- speki" þar sem hlutirnir gerist „í „sálar- fylgsnum" manna, á einhverjum dulrænum sviðum.“27 í Atómstöðinni sem kemur út fjórum árum síðar birtist svo hið dæmi- gerða ráðþrota nútímaskáld sem er svo upp- tekið af eigin örvilnan að það getur ekki miðlað áheyrendum nokkurri reynslu sem þeim megi koma að gagni, heldur þylur yfir þeim romsur af þessu tagi „ó tata bomma, tomba ata mamma, ó tomma at.“26 Loks má nefna að 1950 skrifar Halldór „Skáldskap- arhugleiðíngar“ fyrir tímaritið Lífog list þar sem hann lýsir óánægju sinni með ljóð ung- skáldanna sem honum finnst gamaldags sífur og minna hann frekast á gamla karar- kerlingu sem hann þekkti eitt sinn og taut- aði sífellt fyrir munni sér: ,JE vonandi fer þetta nú að styttast fyrir mér; æ fer ég nú ekki bráðum að skilja við; æ það vildi ég nú að ég færi að fá blessaða hvíldina."27 í þessum hugleiðingum sínum mælir Hall- dór reyndar gegn angistarskáldskap aldar- innar í heilu lagi, og lætur sig hafa það að líkja hugblæ í verkum Kafka og Rilke við „mér-fannst-ég-finna-til-hefðina“, þ.e.a.s. harmljóðin sem voru í tísku á unglingsárum hans sjálfs. Svo mikið er honum í mun að skáldskapurinn sé ekki „tómur einkamála- skáldskapur heldur eitthvað sem almenn- íngur“ vill „eigna sér“, eins og hann orðar það á öðrum stað.28 En hér er það einmitt sem menningararf- urinn kemur til sögunnar. Að hrífa í 600 ár „VÖluspá, Njála, Passíusálmar og ljóð Jón- asar Hallgrímssonar eru ekki bækur nema í þrengsta skilningi,“ segir Halldór og hefur þá greinilega í huga áþekk atriði og Benja- min er hann fjallar um munnlegu frásögn- ina, þ.e. að styrkur bókmennta fyrri alda felist ekki síst í því að þær miðli reynslu samtíðar sinnar og séu í lifandi tengslum við þá sem listina skulu nema. En hvemig fara þær að því? Það er sú spuming sem brennur á Halldóri á þessum tíma og á fimmta áratugnum leitar hann í vaxandi mæli á vit bókmenntaarfleifðarinnar, af því að hún opnar honum nýjar leiðir að hug og hjarta lesenda, leiðir sem eru t.d. fjarri sál- fræðilegum skáldsögum. í Þjóðviljaviðtalinu sem ég vitnaði til hér fyrr lýsir Halldór þróun skáldsagnagerðar á síðustu tveimur öldum svo, að fyrir hundr- að ámm hafi viðkvæmnin verið tíska en nú sé í stað hennar komin ranghverfa hennar og neitun, þ.e. kaldhæðnin. Sjálfur segist 52 TMM 1992:4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.