Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1992, Blaðsíða 28

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1992, Blaðsíða 28
átti sér stutt blómaskeið upp úr stríðslokum þegar hann naut góðs af þátttöku sinni í andspymuhreyfingu gegn þýsku hemámi — og síðan ekki söguna meir. Slík safnað- armyndun lét á sér standa, þótt vissulega væru til hér á landi sem annarsstaðar menn langt til vinstri í litrófinu, sem helst vildu passa það eitt að hafa ámna (kenninguna) hreina, og létu sér í léttu rúmi liggja þótt hinir „hreinu“ væm fáir saman komnir utan um þann stórasannleika sem þeir ættu út af fyrir sig. Trú og trúarþörf Ekki svo að skilja: trúin á „sovésku tilraun- ina“ svonefndu reis stundum hátt. Eða eins og Halldór Laxness komst að orði í minn- ingarorðum um ágætan samferðamann sinn, Halldór rithöfund Stefánsson: A hans blómaskeiði var því trúað af mörgum að von snauðra manna heims- ins byggi í bjarnarhúðinni rússnesku eft- ir að búið væri að snúa holdrosanum út í byltingunni. Mikil bjartsýni var með mönnum góðs vilja víða um heim og mikil freisting að álykta flott. Þetta er ekki nema satt og rétt: margir menn „góðs vilja“ og þá skáld og menningarvitar jafnvel enn fremur en stjómmálamenn, tengdu vonir snauðra manna heimsins við rússnesku byltinguna — ekki síst á fjórða áratugnum. Ástæðumar muna margir: menn voru þá að leita sér að bandamanni gegn þeim fjanda sem þótti öllum verstur, nasisma Hitlers. Auk þess var mikil kreppa og óáran á Vesturlöndum og þótti stinga í stúf við bjartsýnar stórframkvæmdir sem Rússar fítjuðu þá upp á. Og á fimmta ára- tugnum — eftir heimsófriðinn síðari — fékk sovétkommúnisminn aukreitis lyft- ingu í almenningsálitinu út á það, að hafa átt drjúgan þátt í sigrinum yfír fasismanum. Það er í sjálfu sér ekki að undra þótt menn hafi freistast til „að álykta flott“. Um leið skyldi enginn gera lítið úr skað- semi Sovéttrúar, bæði meðan hún stóð með blóma og eftir að hún fór að dala. Sovéttrúin var tvíbent. Hún gat fyrst blásið mönnum inn orku og hugrekki í stéttastríðinu og lífsstríðinu (það getur öll trú — vegna þess að hún gefur mönnum tilgang í lífinu og mannkynssögunni fyrirsjáanleg stefnu- mið). En innan tíðar varð hún ýmsum ein- dregnum trúmönnum það kommaópíum sem í raun lamar „góðan vilja“ en styrkir hann ekki. Menn ánetjast biðhyggju sem ítalir kalla svo (attendismo), þeir telja varla ómaksins vert að kanna sitt samfélag og gera síðan eitthvað þarft í málunum, því mátti öllu slá á frest fram á dýrðardaginn þegar Byltingin kemur og setur allt á réttan stað. Þetta er sú sovéttrú sem er enginn stórglæpur vegna þess að hún er verst fyrir þá menn sjálfa sem voru þungt haldnir af henni. Einkum lék hún þá grátt sem fram í rauðan dauðan neituðu að taka mark á því upplýsingaflóði um Stalíntíma og Gúlagið og fleira sem smám saman reif sundur það leyndardómanet sem Sovétríkin vildu um sig sveipa. Hinn angi þessarar trúar var miklu verri: hann var sá sem vildi gera það að einskonar mælikvarða á það hvort menn væru sósí- alistar og dugandi vinstrimenn eða ekki, hvort þeir hefðu „réttan“ skilning á Sovét- ríkjunum og þeirra umsvifum. Með öðrum orðum: slíkir menn haga sér í pólitík eftir þeirri formúlu að það sé jafnaðarmerki milli sósíalisma og Sovétríkjanna. Hér er um að ræða ótvírætt pólitískt afbrot, sanna sök: 26 TMM 1992:4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.