Tímarit Máls og menningar - 01.03.1994, Side 16
Guðmundur Andri Thorsson
Fiðlarinn á horninu
Ég hef alltaf hrifist af götuspilurum vegna þess að þeir koma naktir
fram. Þeir geta ekki stýrt viðtökum verka sinna, og kannski er það þess
vegna sem þeir eru bannaðir á íslandi. Þeir hafa tekið sér stöðu
ljósastaurs eða búðargínu í tilveru fólks og reyna að troða sér inn í eitt
andartak í lífi þess til að láta eitthvað ljóma óvænt, eitthvað lifna án
þess að fólk sé búið að brynja sig fyrir list eins og raunin er um
opinbera listviðburði, og eru þess vegna berskjaldaðir, ofurseldir fyr-
irlitningu viðtakendanna, óvarðir fyrir hatri þeirra og ást og skeyting-
arleysi og halda bara áfram að spila fyrir túkalli — halda bara áfram.
Af öllum götuspilurunum í Evrópu var sá sem stóð við stóru
verslunarsamsteypuna á Calle de Carmen í Madrid verstur. Hann lék
á fíðlu. Hann var mjög duglegur. Á hverjum degi lék hann frá morgni
til kvölds og fyrir kom að hann sargaði til miðnættis þegar allir voru
farnir úr götunni og enginn var lengur að hlusta nema ég sem stóð við
glugga í dimmu herbergi og horfði á hann standa einan og eljusaman
ogþöglan og sviplausan og stritandi, jafn einbeittan og fyrr um daginn
þegar litríkur heimurinn fór í sveipum framhjá honum.
Hornið hans var gegnt glugganum mínum. Ég uppgötvaði það
þegar ég hafði gert upp reikningana við araba sem var þurr á manninn
og lét mig í friði þann tíma sem ég bjó þarna, lét það meira að segja
ógert að skipta á rúminu mínu sem ég lét mér í léttu rúmi liggja fram
á fimmtu nótt þegar ég vaknaði í svitabaði og þurffi að flá af mér lökin.
Þegar ég gekk í fyrsta sinn inn í herbergið þótti mér strax eitthvað
undarlegt við það, samt sá ég ekki annað en rúm, stól og borðskrifli.
Ekkert bogið við það. Og ekki heldur við megnan dauninn sem barst
af klósettinu á ganginum, þrunginn exótískum kryddjurtum. Ég gekk
að glugganum og opnaði hann, ég settist við borðið. Ég stóð upp. Ég
fór út á svalir og horfði um stund á þessa lífveru sem heillar fslend-
inginn erlendis, mannhafið — ég gekk aftur inn, settist.
6
TMM 1994:1