Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1994, Side 72

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1994, Side 72
íyrirsagna til að skipta honum í 62 undirkafla. Þessar klausur eru í stíl blaðafyrirsagna þessara ára og í fullu samræmi við annað í aðferð kaflans, en hvaðan koma þær og hvað eru þær að segja? Það virðist nokkuð ljóst að fyrirsagnirnar koma ffá sjálfum yfírritstjóranum, James Joyce, og eru um- sagnir hans og athugasemdir við það sem í undirköflunum stendur. Það sem þær segja um undirkaflana er margvíslegt og liggur ekki alltaf í augum uppi; lesandinn verður að bera saman fyrirsögn og innihald kafla og draga álykt- anir sjálfur. Oftast er þó um einhvers konar háð að ræða, írónískt misræmi milli fyrirsagnar og kafla. Við lesum fyrirsögnina KÓRÓNUBERI og sjáum fyrir okkur krýndan konung; við lestur kaflans kemur í ljós að kórónuberinn er póstpoki með merki krúnunnar (bls. 118). Þegar minnst er á útför Patricks Dignam er fyrirsögnin: MEÐ EINLÆGRI EFTIRSJÁ TILKYNNUM VIÐ ANDLÁT ÆRUVERÐUGS DYFLINNARBÚA (bls. 120). Hér er opinber skinhelgi húðflett; Dignam var drykkjurútur og landeyða og lítil effirsjá að honum. Yfir ræðu Dawsons stendur ERIN, GRÆNN GIMSTEINN HINS SILFRAÐA HAFS, og gerir gys að því hvernig írar hugsa og tala um land sitt (bls. 125). Margar fyrirsagnanna hæða háleitar hugmyndir manna um sjálfa sig; þegar prófessorinn stingur upp í sig tannþræði og lætur smella í er yfirskriftin: Ó, VINDHARPA! (bls. 129). Þegar prófessorinn ræðir fjálgur um Grrkkjann Antisþenes sem tók fegurðarpálmann frá Helenu og rétti hann Penelópu er fyrirsögnin í íþróttastíl: SÓFISTI GEFUR HOFMÓÐ- UGRI HELENU Á TÚLANN — SPARTVERJAR GNÍSTA TÖNNUM — PEN VALIN EFTIRLÆTIÍÞÖKUMANNA (bls. 149). Joyce hæðist meira að segja að sinni eigin bók á einum stað. Þegar Bloom flytur sápuna sem hann keypti um morguninn milli vasa stendur: BARA EINUSINNI ENN ÞESSI SÁPA. Tónninn er: æ, kemur hann með þessa fjandans sápu rétt eina ferðina. Hún á svo að vísu eftir að birtast aftur engu að síður og er nefnd alls 13 sinnum í bókinni. Vonbrigði Hér hefur verið rakið hvernig stíll og aðferð Eólosar er beint og óbeint sprottið upp úr fyrirmyndinni hjá Hómer. Nú skal minnst á þau höfuðþemu kaflans sem eiga þangað rætur að rekja. Þau eru vonbrigði og ósigrará öllum sviðum, bæði í lífi manna og þjóða. Áður hefur verið minnst á að Bloom verður fyrir sárum vonbrigðum þegar hann kemur aftur að finna Crawford ritstjóra og heldur að hann hafi nú endanlega gengið ffá auglýsingaviðskipt- unum en fær nú ekki annað en dónaleg svör. Önnur dæmi um smávægilega ósigra Blooms eru að hann hugsar um hvað hann hefði átt að gera til að koma 62 TMM 1994:1
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.