Tímarit Máls og menningar - 01.03.1994, Side 47
maður góður og hrókur fagnaðar
framanaf ævi. Mary Jane var dóttir
vínsala sem átt hafði viðskipti við
John Joyce meðan allt lék í lyndi, en
var andvígur ráðahagnum, enda var
alla tíð kalt milli þeirra tengdafeðga.
Bræður Mary Jane, William og
John Murray, hlutu óbrotgjarna
minnisvarða í verkum systursonar-
ins. Þeir eru Alphy og Joe í smásög-
unni „Mold“. John Murray birtist
undir eigin nafni í Ódysseifi. William
Murray er Richie í Ódysseifi og hinn
drykkfelldi og hrottafengni Farr-
ington í „Samstæðum“, faðirinn sem
kemur heim drukkinn og misþyrmir
ungum syni sínum. „Sláðu mig ekki,
pabbi! Ég skal . . . Ég skal fara með
Maríubæn fyrir þig...“ Þessi ódauðlegu lokaorð sögunnar tók Joyce orðrétt
uppúr dagbók Stanislaus bróður síns, sem hafði orðið þeirra áheyrsla. Kona
Williams Murrays, Josephine, sem var trúnaðarvinur skáldsins til dauða-
dags, kemur fyrir undir eigin nafni í Portrait.
Börn Joyce-hjónanna, sem á legg komust, urðu tíu talsins, en James virðist
ekki hafa verið nákominn öðrum systkinum en Stanislaus, sem var tveimur
árum yngri en hann. Þeir áttu náin og stundum stormasöm samskipti til
æviloka.
Sambandið við móðurina var ákaflega náið. I huga skáldsins var hún
ævinlega nátengd hlýju heimilisins og kaþólskri trú. Hún tók sér mjög nærri
þegar hann sagði skilið við kirkjuna, og hann ásakaði sig alla ævi fyrir að hafa
synjað hinstu bón hennar áðuren hún skildi við. Verk hans bera með sér að
náin tengslin við móðurina ollu margvíslegum sálflækjum, ekki síst að því
er varðaði vændiskonur og „blessaðar meyjar“. Þó hann skopaðist góðlátlega
að föður sínum og fjölbreytilegum veikleikum hans, þá dáðist hann að
honum undirniðri, enda áttu þeir æðimargt sameiginlegt, ekki bara í
drykkjusiðum og eyðslusemi, heldur einnig í ættarstolti, tónlistarsmekk,
orðkynngi, eftirhermuhæfileikum og skopvísu innsæi í eðli hlutanna.
James átti tiltölulega bjarta bernsku þartil hann var „hálfsjö“ einsog hann
orðar það. Þá var hann sendur í besta kaþólska heimavistarskóla írlands,
Clongowes Wood College, rúma 30 kílómetra fyrir vestan Dyflinni. Uppfrá
því var hann undir handarjaðri jesúíta þartil hann lauk háskólanámi, að
Æskumynd af James Joyce.
TMM 1994:1
37