Tímarit Máls og menningar - 01.12.1996, Page 22
að mynda sem mest upplýsandi heild. Þetta var eins og að búa til litla kjörbúð
úr stórmarkaði. Bókin er því að vissu leyti spegilmynd tilurðar sinnar, er sjálf
safnþró hugmynda og hugleiðinga sem sóttu á mig á þessum tíma. Mest af
fordómum mínum gagnvart nútímanum fengu að fljúga þarna inn og eins
mest af hrifningunni, væntumþykjunni og viðkvæmninni. Byggingarlega
urðu til mörg plön, eitt fyrir hvert ár eða svo sem síðan voru klippt saman
eins og sneiðmyndir og þykir kannski póst-módern en mér fannst það bara
hæfa viðfangsefninu, nútímanum. Tilfinningalega planið er hins vegar upp-
runalegt og frumstætt eins og eðli okkar, það er flatt eins og forn heimsmynd
af jörðinni.“
Bölsýni er bjartsýni á hvolfi
Þótt bókin virðist brotakenndþá heldurferð mœlandans ogZombís henni engu
að síður tryggilega saman. í bókinni semfylgdi á eftir, Speglabúð í bænum, er
slíkri heild hins vegar ekki lengur til að dreifa þó svo að neðanjarðarsamband
textanna sé sterkt eftir sem áður. Var ætlun þín að splundra heildinni?
„Ég hugsaði allar aðrar bækur mínar sem heild en Speglabúðin er byggð upp
á annan veg því hún er eiginlega fjórar ókláraðar bækur skornar niður við
trog og settar saman í eina. í vinnuhandriti hét hún Sýnisbók sálaðra verka
því hvert um sig höfðu þessi handrit lognast út af á sínum tíma vegna þess
að ég þurfti að hætta að skrifa til þess að vinna fýrir mér og náði svo ekki
sambandi næst þegar ég tók til við þau, lá stundum líka of mikið á að koma
út úr mér öllu sem hafði safnast fyrir meðan ég var að leggja járnið. Ég hef
misst bækur með þessum hætti, þannig að þær hafa sálast endanlega og það
er auðvitað svekkjandi svo ég ákvað að bjarga því sem bjargað yrði, vinsaði
úr, skellti öllu saman og reyndi að hnoða úr því bók. Þetta er því safn og þótt
ég reyndi að láta líta út fyrir annað þá er það hálfgert plat. Það má kannski
færa veik rök fyrir því að efnið tengist allt sömu djúpmyndinni og svo hjálpar
það náttúrlega einnig að þau eru öll eft ir sama manninn. Ég felldi það út sem
ekki virtist vera eftir þann mann.“
/ síðasta hluta Speglabúðarinnar, frásögninni af Kennaranum, tekur þú aftur
upp hugleiðingar sem eru áberandi í Mýrarenglunum en birtast hér ef til vill á
skýrari hátten áður. Menning sveitafólksins varsamofin skáldskap oghugsjón-
um aldamótahreyfingarinnar oghafðiþvíbjartsýni ogsóknarþrótt aðleiðarljósi
en þegar stóð á því að framfarirnar skiluðu árangri snerist þessi trú upp í stæka
vantrú. Bjartsýnin ól af sér enn svartari bölsýni en áðurþekktist.
20
TMM 1996:4