Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1996, Page 26

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1996, Page 26
leg tengsl við það líf sem þorri manna lifir. Það er óþarfi að brjóta um of heilann um rök póstmódernistanna fyrir því að ekki sé lengur hægt að greina hér á milli, að líf okkar sé vestri af því að frásögnin sem greinir frá því er í formi vestra. Almenningur er ekki svo skyni skroppinn að hann kunni ekki að gera upp á milli þess sem bitastætt er og ekki. Mælikvarðinn sem greinir þarna á milli er mjög einfaldur þegar upp er staðið og tiltækur hverjum þeim sem er með óbrjálaða skynsemi í kollinum. Það sem nær ekki máli er einfaldlega óvirðing við manninn ef ekki beinlínis mannskemmandi.“ Þú getur hins vegar ekki mœlt því í mót að í nútíma markaðsskipulagi er fjármagni fyrst og fremst veitt til listsköpunar út frá arðsemissjónarmiðum. Verða listamenn ekki að leika þann leik? Verða jafnvel ekkiþeirsem eru á móti gangvirki markaðarins að nýta sér það til að greiða reikninginn fyrir hryðju- verkin sem unnin eru á því? „Það þarf hvorki óendanlegt fjármagn né allsherjar herútkvaðningu til að búa eitthvað annað til en formúlulist eins og stundum er látið í veðri vaka. Ef raunverulegur áhugi væri á því að skapa eitthvað sem héldi við menning- arlegri sjálfsmynd okkar þá væri hægt að koma því í kring með tiltölulega lágum fjárhæðum og velvild yfirvalda, hún þyrfti ekki að vera neitt óhófleg. Það er hinsvegar reglan því miður að völdum fylgi sú skoðun að menningin sé best dálítið steingerð svo hún brölti hvorki of mikið né of langt. Sé létt og skemmtileg og lagleg í framan, notalegt stofustáss og styttur. Að greinandi og krefjandi list sé best komin úti í horni. Þar finnst reyndar mörgum að ljóðlistin sé stödd núna eins og hún leggur sig og fátt til ráða. Mér skilst líka að það verði margir alveg voðalega þunglyndir og vonlausir af því að vera hornrekur. Taki jafnvel trúna á það að allt sé mest í sviðsljósinu. Ruglist meira að segja sumir svo rækilega að þeir fara að trúa því að sú bók sem milljón manna les til einskis sé meira virði en hin sem er einum ómetanleg. Ég nenni hins vegar ekki að pæla mikið í neinni svona stöðubaráttu. Mér líður ágætlega þar sem ég er, finnst að ég sé búinn að finna mér fínasta pláss á útjaðri bókmenntanna. Ég eygi þar einfaldlega möguleika sem ég held að blómstri ekki nema við kynblöndun forma, ef svo mætti segja, en ekki innan hefðbundinna aðferða. Ég get ekki heldur að því gert að ég hef djúpa vantrú á slíkum aðferðum yfirhöfuð þó svo að fjölmargir séu að gera góða hluti á þeim vígstöðvum. Nú og svo sé ég ekki tilganginn með þessu nema að vera að gera eitthvað annað en hinir. Þar að auki er ég krónískur efasemdarmaður. Eg er svo mikill efasemdarmaður að ég glataði barnatrúnni eiginlega um leið og ég tók hana. Það gerðist með bréfi sem ég skrifaði Guði. Þetta var líklega það fyrsta sem ég skrifaði og ég setti það undir koddann því Guð var jú 24 TMM 1996:4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.