Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1996, Side 43

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1996, Side 43
og kvæðum hans og ekki síður sú fágæta innsýn í sálarlíf og hugrenningar sem í kvæðunum býr, einkum Söknuði. Á sama tíma og Halldór er að semja Heimsljós er hann að rifja upp minningar um Jóhann Jónsson og skrá þær. Aftan við grein Halldórs „Af Jóhanni Jónssyni" í Vettvangi dagsins standa ártölin „1935-1942“. Ritgerðin hefur því verið harla lengi í smíðum þótt ekki sé hún ýkja löng. Þetta eru sömu árin og Halldór er að semja sagnabálkinn um Ólaf Kárason nema hvað ritgerðin á sér þó enn lengri sköpunartíma. En þetta þýðir að Jóhann Jónsson hlýtur að hafa verið Halldóri hugstæður á sama tíma og hann var að semja skáldsöguna. Eins og áður segir er kvæðið Söknuður innhverft kvæði og það hentar vel til að varpa skáldlegu ljósi á sálarástand Ólafs Kárasonar og þær hugrenn- ingar sem Halldóri þótti hlýða að eigna Ólafi þegar kreppti að í sálarlífi hans, þegar togstreita andstæðnanna hremmdi hann, en þeim átökum lauk ekki nema á einn veg eins og áður er greint. Þessi skírskotun til kvæða Jóhanns vekur þá spurningu hvort Halldór hafi fundið einhvern andlegan skyldleika með Jóhanni og Ólafi, hvort einhverjir eðlisþættir Jóhanns Jónssonar hafi verið notaðir í persónusköpun Ólafs Kárasonar. Eftir lýsingu Halldórs og annarra á Jóhanni að dæma virðist slíkt fráleitt og sömu ályktun má draga af kvæðum Jóhanns og bréfum. Þó eru þeir báðir frábitnir baráttu og átökum og hugsanlegt er að eitthvað í máli Ólafs Kárasonar sé frá Jóhanni runnið en um það verður ekkert fullyrt. „Að vera skáld, það er að vera gestur á fjarlægri strönd þángað til maður deyr.“15 Þessi orð úr ræðu Ólafs Kárasonar á Sviðinsvík gætu ekki einungis verið sögð af Jóhanni Jónssyni, heldur lýsa þau e.t.v. betur lífi hans og kjörum en nokkurs annars skálds. Og reyndar tjáir Jóhann þessa sömu skáldlegu framandleikakennd undir ævilokin í bréfi til Gunnars Gunnarssonar. Hann ráðgerir að komast heim til íslands eftir áralanga vist á „fjarlægri strönd“, en: „[...] ef til vill erum við hvergi meir í framandi landi en þar heima á íslandi [.. .]“16 Það eru einkum tvö hugtök sem vísa veginn að skyldleika skáldverksins um Ólaf Kárason og kvæðis Jóhanns Jónssonar. Það eru hugtökin „fram- andi“ og „vitund“ sem bæði hafa drjúgan þunga í Söknuði. Jóhann Jónsson notar fýrstur íslenskra skálda hugtakið „vitund“ í hinni heimspekilegu merkingu þess (meðvitund, það að vita til sín): „hrópar í alsgáðri vitund/vor sál:/Hvar!“ eins og stendur í Söknuði. Þetta verður svo einskonar lykilhugtak þegar Halldór er að lýsa hugarkreppu og sálarstríði Ólafs Kárasonar, sem „kannast ekki við sína eigin vitund, finst hún vera sér með öllu framandi“ (sjá bls. 34 hér að framan). Síðar verður svo „vitund“ meginhugtak í ljóðum Steins Steinars, einkum frá og með Ijóðabókinni Spor í sandi 1940 en það er önnur saga. Jóhann er líka fýrstur skálda til að nota orðið „framandi“ í hinni heim- TMM 1996:4 41
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.