Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1996, Síða 51

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1996, Síða 51
Sagan var talsvert löng af smásögu að vera og prentarinn seinvirkur. Það greip mig eirðarleysi og ég fór að ganga um gólf, keðjureykti og þambaði kaffí. Ég hafði nú setið við skriftir í sumarbústað tengda- foreldra minna í tæpar þórar vikur og þótt sumir dagar virtust óendanlega langir hafði tíminn verið merkilega fljótur að líða. Eða það fannst mér allavega núna er mér hafði tekist að ljúka ætlunarverki mínu. En dvöl mín í bústaðnum þjónaði einnig öðrum tilgangi. Við konan mín höfðum um nokkurt skeið átt í sambúðarerfiðleikum; reyndar ekkert stórvægilegum held ég svona miðað við það sem maður heyrir oft talað um, en samt nógu slæmum til að einhverskonar uppgjör var orðið aðkallandi. Áður en til þess kæmi töldum við þó réttast að við tækjum okkur hugsipásu hvort í sínu lagi og það varð úr að ég fór hingað austur að skrifa en hún flaug með fimm ára dóttur okkar til Sankti Pétursborgar á Flórída þar sem vinkona hennar býr. Það vonda við þá tilhögun þótti mér hins vegar að vinkona hennar var sjálf nýskilin og ég óttaðist að hún mundi hvetja konu mína til að velja þá leið. Það hefur maður nefnilega stundum séð gerast með vinkonur, ef önnur skilur þá líður ekki á löngu uns hin vill það líka. En ég var fyrir mitt leyti orðinn sannfærður um að okkur bæri ekki skilja og saknaði stelpnanna minna mikið. Þær voru væntanlegar aftur til landsins eftir rúma viku og ég vonaði af öllu hjarta að konan mín hefði komist að sömu niðurstöðu og ég. Ekki fór hjá því að óvissan með hjónabandið setti mark sitt á Bruna, söguna sem ég var að skrifa. Mér fannst ég eiga ýmislegt sameiginlegt með aðalpersónunni, margar hugsanir hennar voru raunverulega mínar og kannski höfðu örlög hennar öðru fremur gert mér ljóst hvað skiptir mestu máli í þessu lífi. Loksins var prentarinn búinn og ég reif blaðsíðurnar lausar, götótta kantana af og svo hverja síðu frá annarri. Því næst hreiðraði ég um mig á sófanum, kveikti í nýrri sígarettu og las söguna vandlega yfír. Jú, þetta virtist vera komið. Nú var bara að salta hana í nokkra daga og sjá til hvort einhverra lagfæringa væri þörf. Ég fór fram í útidyr að skyggnast yfir til málarans, nágranna míns. Bakhlið bústaðar hans sneri að mínum, á henni var einn gluggi og gardínan dregin frá. Það merkti að vinnudegi málarans væri lokið og mér óhætt að koma yfir. f veröndinni hjá honum var heitur nuddpott- TMM 1996:4 49
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.