Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1996, Page 54

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1996, Page 54
að segja upp úr hverjum snjóskafli. Þegar kom svo að dramatískum hápunkti sögunnar, þar sem andstæðurnar rekast á af fullum krafti, lætur hann soninn í fjölskyldunni farast með voveiflegum hætti: það ráðast á drenginn sleðahundar ærir af langvarandi sulti og hreinlega éta hann með húð og hári. Slíkur atburður hafði einhvern tíma átt sér stað í byggðinni þar sem rithöfundurinn dvaldi og um leið og hann heyrði um þetta hljómaði rödd innra með honum sem sagði að nákvæmlega þannig yrði boðskapnum í skáldsögunni hans komið best til skila. Nema hvað, aðeins nokkrum dögum síðar rifu óðir sleðahundar hans eigin son á hol. Merkilegt, ekki satt? Hryllilegt mundi ég nú frekar segja, sagði ég og lét mig síga neðar í vatnið, alveg upp að höku og hristi mig rækilega til að losna við ónotakenndina sem frásögnin hafði kveikt í brjósti mér. Hann hætti auðvitað að skrifa. Ég er ekki hissa á því. Hefur ekki skrifað stafkrók síðan. Neinei. Við þögðum nokkra stund. Spói var að vella einhvers staðar í grenndinni og ég beið átekta, fann að málarinn átti sitthvað ósagt. Ég er að velta fyrir mér hvernig þessir atburðir tengjast, sagði hann loks, örlítið hikandi eins og hann væri enn að leita að réttu orðunum yfir það sem var að brjótast í honum. Ég meina, hafði ákvörðun rithöfundarins um að nota fyrri atburðinn í skáldsöguna sína eitthvað um það segja að sá seinni átti sér stað. Nei, það held ég að sé algjör tilviljun, sagði ég og hugsaði með mér að það væri eins gott að hlutirnir væru þannig — annars ætti hjóna- band mitt engan möguleika á að bjargast og ég mundi missa dóttur mína í eldsvoða einhverja helgina þegar hún væri hjá mér í heimsókn! Kannski var þetta hugboð. Hann sá ógæfuna fyrir en áttaði sig ekki á því fyrr en hún hafði dunið yfir. Það er alltaf hægt að segja svoleiðis. ]a, oft býr eitthvað annað að baki því sem maður skapar en það sem maður heldur eða ætlar sér. Þú hlýtur að kannast við það. Jújú, og stundum veit maður ekki hvað maður er að hugsa fyrr en maður les það sem maður hefur skrifað. Það er gamall sannleikur og nýr. 52 TMM 1996:4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.