Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1996, Page 73

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1996, Page 73
hvaða skoðanir eigum við að búast við að þeir geti af sér? Skyldu það ekki vera réttnefndar rökbrellur, aUt saman óskilgetið og óverðugt þess að kallast sönn viska? Jú, fullkomlega, svaraði hann [Adeimantos]. Þá eru víst aðeins örfáir eftir, Adeimantos minn, sagði ég [Sókrates], sem eiga verðugt samneyti við hana.8 Platon var semsagt langt frá því að vera frjálslyndur eða fylgjandi jafnrétti og einstaklingshyggju í skilningi þeirra Poppers og Hannesar Gissurarsonar enda varla við því að búast af höfðingjasyni frá 5. öld fyrir okkar tímatal. Þessi þrjú einkenni á stjórnspeki Platons sem hér voru talin duga þó engan veginn til að gera hann að frumkvöðli alræðishyggju og bandamanni harð- stjóra og valdníðinga. Við skulum samt ekki fría hann allri sök. Andúð Platons á aþenska lýðræðinu kemur glöggt fram í ritum frá fyrsta hluta ferils hans. I Gorgíasi var hann tekinn að gæla við hugmyndir um vísindalega stjórn og stjórnendur sem kunna að stjórna fólki eins og tamn- ingamenn kunna að temja hesta eða skipstjórar kunna að stýra skipi. Þessar hugmyndir eru þó fremur óskipulegar en í Ríkinu eru þær orðnar að heilsteyptri kenningu sem fjallar bæði um eðli þeirrar þekkingar sem stjórn- endur skulu hafa og um það hvernig velja skuli menn til að stjórna ríkinu, mennta þá til starfans og tryggja að þeir láti eigin hagsmuni eða annarleg sjónarmið ekki hafa áhrif á stjórnsýsluna. í Ríkinu leggur Platon til að hópur úrvalsmanna stjórni ríkinu. Þeir séu eignalausir og myndi allir eina fjölskyldu. Með skipulegum kynbótum, mikilli skólagöngu og ströngum aga á að tryggja að stjórnendurnir verði svo vitrir og góðir sem mest getur verið. Eignist þeir börn sem af einhverjum ástæðum eru miður hæf skulu þau flutt niður í lægri stétt. Lýsing Platons á lífi þessara stjórnenda minnir um margt á herbúðalíf yfirstéttarinnar í Spörtu. Sá munur er þó á spartversku yfirstéttinni og stjórnendunum í ríki Platons að þeir síðarnefndu hafa numið stærðfræði, heimspeki og fleiri vísindagreinar svo árum eða áratugum skiptir áður en þeir setjast að völdum fimmtugir að aldri. Sem ungur maður var Platon lærisveinn Sókratesar og lærði af honum að trúa á mátt mannlegrar skynsemi. Síðar stofnaði hann fyrsta háskóla í heimi, Akademíuna. Þar voru iðkaðar rannsóknir meðal annars í stærðfræði. Fáir hafa sungið vísindunum hástemmdara lof en þessi fyrsti háskólarektor sögunnar. Platon var ekki bara sannfærður um að vísindin efli alla dáð heldur taldi hann líka að sönn þekking gerði menn hófsamari, réttlátari, hugrakkari og betri á alla vegu. Þegar Platon skrifaði Ríkið þótti honum sem alrœði vel menntaðra úrvalsmanna væri öllum fyrir bestu; fyrir allan almenning væri betra að lúta guðdómlegri visku annars en ófullkominni visku sjálfs sín.9 TMM 1996:4 71
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.