Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1996, Side 75

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1996, Side 75
til stjórnendur sem gætu beitt óskoruðu alræðisvaldi þannig að til heilla horfði fyrir land og lýð. í niðurlagi Gorgíasar lætur hann Sókrates segja frá lífi mannanna eftir dauðann og lýsa því með áhrifamiklum hætti hversu valdið spillir konungum og stjórnmálamönnum. Þegar sál manns hefur verið klædd úr líkamanum og stendur eftir nakin, þá kemur í ljós bæði allt sem hún hefur fengið í vöggugjöf og öll reynsla sem hún hefur orðið fýrir í verkum sínum á lífsleið- inni. Og þegar sálirnar koma svo fyrir dómara sinn, /.../, hendir oft, þegar hann fer höndum um konunginn mikla og aðra konunga og valdsmenn, að hann sér engin merki um heilbrigði í sálinni, heldur er hún útsteypt í örum og flakandi sárum sem eru afleið- ingar meinsæra og glæpa, sem hvert einasta afbrot hans hefur merkt sálina með. Og hann sér, að sakir lyga og taumleysis er enginn limur hennar heill, enda er hún uppfóstruð í ósann- indum.13 Sálirnar hljóta svo sæluvist eða refsingu efir því hvort þær eru hreinar og óspilltar eða afskræmdar „vegna óhófs, munaðar, hroka og óstjórnar“. Flestar þær spilltu batna af að taka út sína refsingu. En refsing þeirra sem stærstu brotin hafa framið og af þeim sökum orðið óforbetranlegir, er aðeins öðrum til viðvörunar /.../ enda er þeim bókstaflega stillt upp í fangelsinu í Hadesarheimi til sýnis og aðvörunar fýrir brotamenn á öllum tímum sem þangað koma. /.../ Ég held einmitt að stærsti hlutinn í þessum sýningarbás muni vera harðstjórar, konungar, valdsmenn og stjórnmálamenn, því að sakir ofurvalds síns geta slíkir menn framið mestu og óforbetranlegustu glæpina.14 Þegar Platon skrifaði Ríkið áleit hann að með menntun, kynbótum, skipulagi og aga væri hægt að koma í veg fýrir að valdið spillti stjórnendunum. Seinna, þegar hann ritaði Stjórnmálamanninn, skildist honum að stjórnendur eru og verða ekki nema mennskir og þeir geta ekki staðið utan og ofan við samfélag venjulegs fólks og horft á lífsbaráttuna utan frá. Eina leiðin til að tryggja góða stjórn er að láta allt vald lúta lögum sem koma í veg fyrir að lestir og breyskleiki einstakra valdamanna spilli lífi alls samfélagsins. Segja má að Platon hafi uppgötvað réttarríkið um leið og hann áttaði sig á ókostum alræðisins. Þegar Platon ritaði Stjórnmálamanninn var hann tekinn að linast nokkuð í andstöðu sinni gegn lýðræðinu. í 8. bók Ríkisins hafði hann gert grein fyrir fimm gerðum stjórnarfars15 og haldið því fram að af þeim sé lýðræðið næst TMM 1996:4 73
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.