Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1996, Page 78

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1996, Page 78
Aristótelesar, Pólýbíosar og Cícerós og í þessi rit hafa talsmenn réttarríkis og hófstillingar í meðferð ríkisvalds sótt rök fyrir málstað sínum svo öldum og árþúsundum skiptir. Þótt Platon hafi hafnað þeirri skoðun sinni í Ríkinu að alræðisstjórn fámenns hóps menntaðra úrvalsmanna færði öllu ríkinu farsæld er af og frá að hann hafi orðið neitt yfirmáta frjálslyndur í ellinni. í Magnesíu, fyrir- myndarríki Laganna, eru til dæmis strangar reglur um fjölskyldustærð og þar er mönnum bannað að eiga gjaldeyri og verslun við útlendinga er háð takmörkunum að spartverskum hætti. Andinn í Lögum Platons minnir um margt á veldi kaþólsku kirkjunnar á miðöldum. Mikil áhersla er lögð á trúarlíf og tilbeiðslu og stundum er helst að skilja að hlutverk ríkisins sé fyrst og fremst þjónusta við æðri máttarvöld. Þessi trúarlega áhersla helst í hendur við vaxandi óbeit Platons á öllu ofbeldi. í Ríkinu var hann til í að beita vopnavaldi í þágu þess sem hann taldi vera hið eina sanna réttlæti en þegar hann skrifaði Lögin áleit hann að ofbeldi myndi aðeins geta af sér meira ofbeldi. Hann bendir raunar ekki á neina aðferð til að koma á fyrirmyndarríki því sem hann lýsir. Sennilega taldi hann vonlaust að vopnaskak, valdabrölt, áróður og pólitískir klækir gætu leitt til neins góðs og það sé vitið meira að trúa og vona að æðri máttarvöld leiði samfélög mannanna á rétta braut. * Það lýðræði sem Platon þekkti ól af sér óstöðugleika og birtist stundum sem hálfgert skrílræði. Platon var alinn upp af höfðingjum og hefur líklega lært það snemma á ævinni að horfa með söknuði til fýrri alda þegar heldri menn höfðu föðurlega forsjá yfir alþýðunni. Hann gerði sér þó grein fyrir að ekki væri kostur á að hverfa aftur til fortíðar. Trú hans á mátt skynseminnar, sem hann fékk í arf frá Sókratesi, ásamt reynslu af því að stjórna háskólasamfélagi, þar sem lærdómsmenn rannsökuðu hinstu rök tilverunnar, blönduðust svo saman við áhuga hans á stjórnmálum og úr varð hugmynd um vísindalega alræðisstjórn. Þessa hugmynd setti Platon fram í sinni frægustu bók, Ríkinu, og það örlar á henni í fleiri ritum frá miðtímabilinu á rithöfundarferli hans. Nú á seinni árum hafa þessi rit verið mun meira lesin og rannsökuð en Lögin og Stjórnmálamaðurinn og annað það sem Platon skrifaði á síðasta hluta ævinnar. Ástæðan fyrir þessu er meðal annars áhugi seinni tíma heimspek- inga á frummyndakenningu Platons sem hann setti fram í Ríkinu og öðrum bókum sem hann skrifaði um svipað leyti. Þeir sem lesa aðeins Ríkib og ef til vill Gorgías fá einhliða mynd af stjórnmálaheimspeki Platons. Skilningur hans á stjórnmálum var að þroskast og dýpka svo lengi sem hann lifði og Lögin eru endanleg niðurstaða 76 TMM 1996:4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.