Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1996, Blaðsíða 99

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1996, Blaðsíða 99
að einhver gaf henni gaum. Ör sýnir að þú hafir sögu að segja. Einn fótur og þú átt sögu af hákarli.“ Vein berst neðan úr kjallaraíbúðinni og kvenmaður heyrist segja: „Ég var búin að biðja þig um að hætta að leika þér að eplunum, krakki. Það er ekki eins og þau vaxi á trjánum!“ Mamma virðist ekki hafa heyrt neitt. Kannski er heyrnin farin að daprast. Peysan liðast niður úr prjónunum. Gul rönd yfir brjóstið. „Finnst þér hún ekki snotur?“ segir mamma og lyftir upp peysunni til að sýna mér. „Jú, jú, ég er bara ansi hrædd um að enginn eigi eftir að nota hana.“ Prjónarnir hætta að tifa. „Hvað áttu við með þessu?“ segir mamma felmtruð. „Ég hef engan áhuga á börnum,“ læt ég mér nægja að segja. Ég nenni ekki að láta það fylgja með að við Árni séum hætt saman. Hún myndi ekki hætta fyrr en hún fengi að heyra alla söguna. „Og ég sem er búin að prjóna hátt í 10 peysur og gammosíur í stíl við hverja einustu. Hvað meinarðu eiginlega?“ hálfhrópar mamma. „Stundum er nógu flókið að þurfa að bera ábyrgð á sjálfum sér þótt maður fari ekki að gæta annarra líka. Þar að auki er erfitt að vera barn og spurning hvort maður hafi nokkurn rétt til að kalla það yfir aðra.“ Ég hef útskýrt þetta svo oft fyrir hinum frjósömu vinkonum mínum að ég þarf ekki lengur að hugsa mig um. Mamma skrúfar frá krananum og fær sér vatn í glas. Hún er svo skjálfhent að það gusast upp úr glasinu þegar hún ber það að munni sér. Halda mætti að hún væri stödd í Jurassic Park og risaeðlur nálguðust Norðurmýrina óðfluga. „Að eignast barn er engin spurning,“ segir hún lágmælt. „Það er bara eitthvað sem maður gerir.“ „Ekki ég,“ tauta ég ofan í plastdúkinn á eldhúsborðinu. Ég lít á úrið og segist þurfa að fara. ,Ætlarðu ekki að borða kvöldmat hjá mér?“ „Hvað er í matinn?“ spyr ég og gýt augum á pott sem sýður í á eldavélinni. „Kanína,“ heyrist mér mamma segja. „Þú ferð ekki að fara strax. Ég hef haft heilmikið fyrir matnum.“ Hún rís upp úr stólnum og horfir á mig starandi augum. Hún TMM 1996:4 97
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.