Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1996, Page 113

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1996, Page 113
um og pönnukökum. Og á jólunum eru rúsínur og súkkulaði. Lífsbaráttan er hörð og fólkið margt, en hefilspænirnar sem Jakobína bregður upp í ljósið í annars myrkum tímanum, segja ekki frá fólki sem sveltur. Sárar minningar tengjast þeim sem fara; Kristján og Finna deyja og Siggi bróðir er sendur í fóstur. Þótt Jakobína finni ekki sjálf fyrir því að systkinunum fækki, man hún sorg og sársauka foreldra sinna, þótt þau hafi huggað sig við að kannski gætu fósturforeldrarnir veitt Sigga bróður betra líf, jafnvel menntun. En þótt Jakobína læri smám saman um skömm og sekt, ótta, öryggisleysi, sársauka og söknuð, eru það tilfinningar sem hún styðst við til að feta sig um bernskuslóðir sínar og æsku. Hún skap- ar heiilega mynd af harðri lífsbaráttu; baráttu sem er svo hörð að það vinnst ekld tími til að sinna mýkri gildum. Það er ekJci mikið um faðmlög, né hlýju, bara endalausar slcyldur og puð og hún lærir snemma að fátæklingar geti ekki vænst annars af lífinu. Það kemur henni því verulega á óvart, þegar hún kemst að því á unglingsárunum að foreldrar hennar hafi verið ástfangin þegar þau voru ung og rist trúnað sinn í þann harða stein sem landið hvílir á. Það er eins og renni upp fyrir henni ljós, sem fylgt hefur henni allar götur síðan; þessi lokaði heimur, afskekktur og einangraður er heilög jörð, þar sem lífsbaráttan var háð, striti og skyldum skilað æðrulaust og raulandi á grundvelli kærleikans. Mynd í mynd Frásögn Jakobínu er ekki samfelld í tíma. Hún rásar fram og aftur um æsku- ár sín. Hlutir, fólk og atvik, sem hún sér á leið sinni um húsið, minna á aðra hluti, fólk og atvik, sem hafa átt sér stað á öðrum tíma. í hverri minningu er önnur minning; í hverri mynd er önnur mynd. Þegar hefilspæni er brugðið upp í ljósið, birtast ótal myndir og þeim raðar Jak- obína saman, ekki í tímaröð, því tíminn er myrkur og myndi kannski sleppa ein- hverjum myndum ef hann fengi að ráða. Hún átti sér draum um að skrifa, segja frá hugrenningum sínum, strax á barnsaldri. En það var ekki fyrir fátæk- linga. Og víða í sögu Jakobínu má sjá vanmat þeirra sem eldri eru á möguleik- um sinnar stéttar og einstaldinganna sem hana fylla. Vissulega hefur sá grunnur mótað Jífssýn Jakobínu, og þar með ritverk hennar; orðið grunnurinn að þeim verkum sem öðrum frekar hafa opnað íslenskum konum leið til að tjá sig í skáldskap. Þótt Jakobína líti á líf sitt sem ferðalag um lífið og frásögnina um æskuár sín sem ferðalag um skuggsýnar slóðir, er ljóst að það hefur ekki margt farið for- görðum. Farangurinn sem hún lagði upp með, er allur til staðar. Hún þurfti bara tíma til að skoða hann. Allt sem skiptir máli rifjast upp og frásögnin verður svo ljóslifandi að lesandinn finn- ur ilm af kaffi og jólum, sagi og kúa- mykju og þreifar á járni og timbri, postulíni og ull. Jakobína segir ekki hlutlaust frá, heldur lifir hvern atburð, hvern hlut og hverja manneskju sem hún kallar til sög- unnar og nær þannig að svipta hulunni sem oft liggur milli höfundar og lesanda, svo manni finnst eins og maður hafi verið þarna sjálfur. Bækur Jakobínu hafa gjarnan fjallað um ferðalög og víst er að „í barndómi," varpar nýju ljósi á skáldverk hennar. Hún gefur hér svo tæra mynd af hugar- heimi sínum að að maður hlýtur að lesa skáldsögur hennar „Lifandi vatnið,“ og „I sama klefa,“ með nýjum ferðahuga. Súsatma Svavarsdóttir TMM 1996:4 111
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.