Dagrenning - 01.10.1947, Qupperneq 45
látinnn í hlautbolla guðanna og eflaust þá
hlaupið þar líka og orðið að blóðköku, því
að nauniast hefir verið hrært í blóðinu, en þá
hefir „hlaut“ þýtt kökur og síðar blóðkök-
ur, og „hlautteinn" táknar þá upprunalega
sama og hlautbolli síðar.
Hof. Á hebresku er til orðið chupka, sem
þýðir þak og hús brúðhjóna, og táknar þá
hús með þaki eða aðalstofu húss, hátíðarsal-
inn. Hof ætti því að þýða (hátíðar)hús með
þaki yfir, og er það víst merking þess frá
bvrjun.
Hörgur. Orðið hörgur, er urn getur í sög-
um vorum, á eflaust uppruna sinn að rekja
til hebreska orðsins „harega,“ sem þýðir
slátrun, og hefir verið þaklaust hús eða gerði
franr eftir öldurn, hefir svarað til steingerð-
anna ensku með sláturhellu eða fómarhellu
í hringnum miðjum, en síðan hefir svo verið
yfir gert og notað sem heimilis dýrkunar-
staður, og því er getið um „hátimbraða
hörga,“ og talað um „að brenna hörga,“ því
að þá er auðvitað átt við hús.
Guðmundur Einarsson.
BÍLFLUGAN.
í fréttum er nú stundum minnst á nýtt
farartæki, sem ekki er ólíklegt að verði eitt
algengasta og almennasta farártæki framtíð-
arinnar, þegar tæknin hefir náð á því full-
komnuni tökum. Það er hin svonefnda bíl-
fluga. Iíún er í senn bíll og flugvél. Væng-
ina má leggja aftur með skrokknum, þegar
„ckið er í bílnum“, en þenja þá út og hafa
veginn fyrir flugbraut, þegar t. d. þarf að fara
yfir á eða fjall eða aðra torfæru. Einkenni-
legt er að sá rnaður, sem einkum fæst við
það nú að fullgera þetta tæki, er afkomandi
liins fræga hugvitsmanns Roberts Fultons,
sem fann upp gufuskipið, og náfrændi Edi-
sons. Maðurinn heitir Robert Edison Fulton.
MEIRI FRÆÐSLA.
V.ð og við hefir það kornið fyrir, síðan
ég hóf útgáfu Dagrenniugar, að rnenn hafa
kom'ð að máli við mig og spurt mig, hvort
ekki væri rétt að stofna til félagsskapar, þar
sem menn reyndu sameiginlega að afla sér
aukinnar fræðslu um þau efni, sem Dagrenn-
ing er að flytja mönnurn. Ég hefi jafnan
svarað því, að víst gæti slíkur félagsskapur
komið að rniklu gagni fyrir þá, sem áhuga-
samir væru, og sérstaklega mundi hann verða
gagnlegur sem leshringur um ákveðin efni.
Ég hefi fundið það á þeirn, sem við mig
hafa talað, að þeim finnst, að það væri rnitt
hlutverk að stofna til þessara samtaka, ef af
þeim ætti að verða, og get ég fallist á það,
þótt mér finnist nú sem ég hafi ærið nóg
með Dagrenningu sem ofanálag á venjuleg
störf mín. Ég vil þó ekki skorast undan því,
að eiga þátt í að til slíks félagsskapar verði
efnt, ef einhver verulegur áhugi skyldi fyrir
því vera, og þess vegna vil ég hér stinga
upp á því, að það fólk, sem áhuga hefði á
þátttöku í slíku félagi og vildu verða með
i stofnun þess, að senda Dagrenningu línu
ásamt nafni og heimilisfangi, og mundi ég
þá gera því aðvart, ef svo margir óskuðu
þátttöku, að ég teldi rétt að efna til stofn-
unar slíks leshrings eða félagsskapar.
Ég tel, að eitt megingagn slíks félags-
skapar gæti orðið það, að afla bóka og bækl-
inga, sem út eru gefnir utan íslands um
spádómsþýðingar Biblíunnar og önnur skyld
efni, auk þess, sem erindi yrðu flutt við og
við og viðræður færu fram á eftir urn efni
erindanna.
Þeir menn og konur i Revkjavík og Hafn-
arfirði, sem vildu taka þátt í stofnun svona
leshrings eða félagsskapar, eru beðnir að
senda nöfn sín og heimilisföng í umslagi til
mín fý'rir 1. desember n.k.
Utanáskrift: Dagrenning, Revnimel 28,
Reykjavík. J. G.
DAGRENNING 43