Dagrenning - 01.12.1950, Page 10
JÓNAS GUÐMUNDSSON:
Hvers má vænta í Asíu?
SÍÐARI grein.
Um það bil, sem h rri hluti þessarar grein-
ar kom út í síðasta hefti Dagrenningar
höfðu þeir atburðir gerzt í Kóreust\rjöld-
inni, að Kínverjar höfðu ráðist gegn herj-
um Sameinuðu þjóðanna í Kóreu, rofið víg-
línu þeirra, króað inni nokkurn hluta Banda-
ríkjahersins, sem þar berst, og hrakið annað
lið á flótta suður skagann.
Her Sameinuðu þjóðanna var kominn að
landamærum Mansjúríu (Kína) og Mae
Arthur hafði gefið vonir um, að allar hernað-
araðgerðir gætu orðið búnar um jólaleytið.
En þetta fór á annan veg, eins og áður segir.
Kínverjar hafa nú vaðið inn í Kóreu með
óvígan her, — hart nær eina milljón manna,
— öflugt lið og vel búið, og nú hefst „þriðji
þáttur“ Kóreustyrjaldarinnar. Fvrsti þáttur
hennar var árás Norður-Kóreumanna á Suð-
ur-Kóreulýðveldið. Annar þátturinn var
sókn Sameinuðu þjóðanna norður að landa-
mærum Mansjúríu, og þriðji þátturinn er
liin nýja sókn Kínverja.
Kórea er nú úr sögunni sem ríki og Kóreu-
búar sem þjóð. Þar verður aðeins um að
ræða leppríki Kínverja eða Rússa þegar þeim
átökurn er lokið, sem nú fara þar fram.
Fvrsta afleiðing þessa mikla ósigurs Sam-
einuðu þjóðanna í Kóreu er, að því er virðist,
algert ráðaleysi forráðamanna Sameinuðu
þjóðanna. Þeir vita ekki hvað til bragðs skuli
tekið.
Engin þjóð, nema Bandaríkin, þorir að
senda neitt lierlið sem heitið geti til Kóreu
af hræðslu við hinn reidda hnefa Rússlands
í Evrópu og Vestur-Asíu. Indland er hrædd-
ast af öllum hræddum ríkjum og vill revna
að ná einln-erskonar sanrkomulagi við Kín-
verja, en allt slíkt „samkomulag“ mun reyn-
ast ókleift vegna heimsyfirráðastefnu Rússa.
Þegar þetta er ritað er því allt, sem áunn-
ist hafði í Kóreu, í hinni „fyrstu styrj-
öld Sameinuðu þjóðanna", við að tapast og
algerlega ómögulegt er að giska á hvílíkar
hrakfarir þær eiga eftir að fara þar.
Hættan er nú svo mikil, sem yfir vofir,
að nauðsynlegt hefur þótt að efna til sér-
staks fundar með aðalforustumönnum Engil-
saxa, forsætisráðherra Breta og forseta Banda-
ríkjanna, til þess að freista „að afstý'ra þriðju
heimsstyrjöldinni“, eins og það nú er orð-
að í heimsblöðunum.
II.
Ég lét svo um mælt í fyrri hluta þessarar
greinar, að allt benti til þess, að Kóreu-
styrjöldin yrði að líkindunr leyst með þeim
hætti, að hin vestrænu lýðræðisríki svikju
hinn síðasta af hinurn fyrri bandamönnum
sínum, Sjang Kai Sjek, og veittu hinni nýju
stjórn konnnúnista í Kina sæti Kínverja hjá
Sameinuðu þjóðunum. Allt bendir nú enn
meir í þá átt en áður var, að svona nmni
fara. Afleiðingin af því mundi svo verða
„friður í Kóreu“ og þar yrði stofnað eitt ,al-
þýðulýðveldið“ enn, sem að fáum rnánuð-
um liðnum yrði orðið eitt dyggasta fvlgiríki
8 DAGRENN I NG