Dagrenning - 01.12.1950, Síða 13
safnast hafa til þín, og ver þú yfirmaður
þeiiia.“
Hér er lýst hinum mikla liðssafnaði sem
stefnt verður gegn ísraelsmönnum við „lok
tímabilsins“.
*
Athugum þetta nú nánar. „Góg“ merk-
ir „hinn mikli“ og er skylt „gig“
— í gígantisk, og sennilega er hið norræna
orð „gýgr“, sem merkir tröllkona, af sömu
rót. Það er merkilegt að veita því athygli, að
sá, sem grundvallaði Rússaveldi var Pétur
„mikli“, og nú þegar hefur mjög borið á til-
hneigingu meðal kommúnista um heim all-
an til að kalla núverandi forustumann Soviet-
ríkjanna „Stalin mikla“. „Hinn mikli“ er
því einkennis nafn á forustumanni þeirrar
þjóðasamsteýpu, sem „við endalokin“ stýrir
þeim herskörum, sem ráðast eiga gegn íraels-
mönnum. „Hinn mikli“ er „höfðingi yfir
Rós, Mesek og Tubal.“ Öllum, sem nokkuð
hafa kynnt sér þessi efni, ber saman um að
þessi þrjú nöfn tákni það sem hér segir:
1. Rós eða Rosh er sama orð og Rús, sem
er stofninn í orðinu Rússar.
2. Mesek eða Meshech merkir Moskva.
3. Tubal merkir Tobolsk, en Tobolsk er
hérað í Siberiu. Ein útgáfan af þessu
orði er Tabal, enn önnur Tibur, sem tal-
ið er að breyttst hafi við framburð í
Sibur sem nú í dag er stofninn í Siberia.
Hér er svo greinilega sagt sem verða má
hver eru þau lönd og þær þjóðir sem „Góg“
ræður yfir. Hann ræður yfir Rússum, og
Moskov-ítum (og Moskva er höfuðborg hans)
og Tobalsk-svæðinu, sem nú er nefnt Siberia.
Betur er tæpast hægt að hugsa sér þetta skil-
greint þegar tillit er til þess tekið, að spádóm-
urinn er að minnsta kosti ekki yngri en 2500
ára.
Á þessu svæði á þá, samkvæmt spádómi
Esekiels, að myndast voldugasta ríki, sem
nokkru sinni hefur verið til á jörðunni. Góg,
sem merkir „liinn mikli", þ. e. voldugur ein-
valdsherra, sem er svo máttugur að „öll jörð-
in“ hræðist nafn hans, á að stjórna þessu
stórveldi, sem samkvæmt spádómi Jóels
(2. 20) á að ná yfir allt landsvæðið milli
„austurhafsins“ (Kyrrahafsins) og vestur-
hafsins (Atlantshafsins). Einmitt þessi lýs-
ing á nú í dag við hin miklu Sóvietríki og
einvald þeirra. Aldrei fyr'í sögunni hefur
þetta verið svo. Aldrei fyr hefur Rússaveldi
verið jafn öflug og nú né heldur hefur „öll
jörðin“ skolfið af hræðslu fyrir því. Hvert ein-
asta mannbarn á jörðunni viðurkennir nú, að
Sovietríkin eru nú þegar svo voldug, að eng-
in þjóð eða konungur hefur fyr verið jafn-
oki þeirra. Hin engilsaxnesku stórveldi geta
þó enn, ef þau standa sameinuð, hamlað
nokkuð gegn Sóvíetríkjunum, en það er engin
tiygging fyrir því að þeim takist lengur að
hindra Rrirætlanir þeirra.
’ #
En spádómurinn segir meira. Hann segir
að „í för með“ Góg, eigi að verða ýmsar
þjóðir. Þessar þjóðir eða ríki hafa nú önnur
nöfn en þau, sem í Biblíunni eru notuð,
eða þá að þau eru orðin það breytt á vest-
rænar tungur að þau þekkjast ekki fyrir hin
sömu og áður. Auk þess eru þýðingarnar á
ísl. Biblíunni ekki vel nákvæmar í þessu efni.
Áður en nafnið Magog er tekið til athug-
unar er rétt að athuga hvaða þjóðir aðrar en
Rússar, Moskovitar og Siberiumenn eiga að
vera „í för með“ Góg, þegar hann ræðst gegn
ísrael.
Þær eru þessar:
1. Persar.
2. Blálendingar (Etiophia, enska Bibl.).
3. Pútmenn (Libya, enska Bibl.).
4. Gómer og allir herflokkar hans.
5. Tógarma-lýður (The house of To-
garmah) hin ysta norðurþjóð, og allir
herflokkar hans.
6. Margar þjóðir (aðrar) verða í för með
DAGRENNING 11