Dagrenning - 01.12.1950, Síða 14
Góg en þær eru ekki sérstaklega nafn-
greindar.
Athugum nú hverja þessara þjóða eða þjóða-
samsteypu fyrir sig:
PERSAR.
Persar búa á svæðinu milli Persaflóa og
Kaspiahafs og eru því nágrannar Rússa í suðri.
Persía er nú ekki lengur til sem sjálfstætt ríki,
en hefur verið skipt í tvö ríki, Iran og Irak,
og ráða Rússar mestu í Norður Iran
en Bretar hafa enn nokkur ítök í
Suður-Iran og Irak. Áróður Sóvíetríkjanna er
óskaplegur í þessurn löndum og þau rnundu
fvrir löngu vera orðin rússnesk leppríki, ef
hinar miklu olíulindir og olíustöðvar breskra
og bandarískra olíufélaga væru ekki því til
fyrirstöðu, að Rússar beinlínis tækju lönd
þessi með vopnavaldi. Þess mun þó skammt
að bíða úr þessu, og ekki mun lokaárás
„Gógs“ hefjast fyr en Sóvietríkin liafa á ein-
hvern hátt innlimað Persíu hina fornu í ríki
sitt.
BLÁLENDINGAR.
I erlcndum Biblíum er ekki talað um Blá-
lendinga, sem á okkar máli táknar Afríku-
búa almennt og þá sérstaklega svertingja
(blámenn), heldur um „Ethiopiu“ en eins og
kunnugt er þá er Ethiopia suðausturhluti
Afríku og nú venjulega nefnt Abyssinia. Þetta
er ævafornt stór\'eldi, sem hefur átt sín nið-
urlægingartímabil og nú er auðvitað ekki
nema svipur hjá sjón. Það var þetta ríki, sem
Mussolini ætlaði að leggja undir ítalíu er
hann hugðist að endurreisa Rómaveldi. Allir
vita hvernig það fór. Nú fara litlar sögur
af því, sem gerist í Abyssiniu. Þó er vitað að
miklar þjóðfélagslegar hreyfingar eiga sér
stað þar og í nágrannalöndum Abyssiniu. Það
er kommúnisminn, sem þar er á ferðinni.
Sóvietríkin eyða tugum milljóna króna á ári
hverju í „trúboð" sitt þar, þ. e. að útbreiða
kommúnismann meðal svertingja og annara
blökkumanna Afríku. Með „Ethiopiu" mun
í Biblíunni vafalaust átt við alla suðaustur
Afríku, en eins og nú er ástatt lítur út fyrir
að Egiptaland og Abyssinia muni skipta á
milli sín löndum í Austur-Afríku. Samein-
uðu þjóðirnar stvðja kröfuna um yfirráð
þessara ríkja, og eru þess fýsandi að Bretar
fari frá Súdan, sem þá verður annað hvort
lagt undir Egiptaland eða Abyssiniu, eða
skipt á milli þcirra. Það má gera ráð fvrir,
að kommúnisminn nái mikilli útbreiðslu
meðal blökkumanna í Austur-Afríku, Abyss-
iniu, Núbiu og Sudan og raunar einnig í
Suður-Afríku þótt hinn hvíti kynstofn þar
berjist gegn honum. Abyssinia (Ethiopia)
verður því eitt þeirra ríkja, sem verða í för
Gógs og mun ætlað það hlutverk að ráða
niðurlögum hvítra manna og veldis þeirra í
Afríku. Menn ættu að taka eftir því hversu
hljótt er nú um Abyssiniu og málefni þess
ríkis, og vitað er að Bretar munu telja sig
ne\xlda til að fara frá Súdan ekki síðar en
1952—1953, en þeir vilja að það landsvæði
verði gert að sjálfstæðu ríki.
PÚTMENN.
Það er eins með þetta rikisheiti og hið
næsta hér á undan. í ensku Biblíunni er
land þetta kallað „Libya“. Það er fvrst al-
veg nú á síðari árum að nafnið Libya hefur
aftur heyrst sem lands eða ríkisheiti. Libva
er norðaustur strönd Afríku, frá landamær-
um Egiptalands að Tunis. Libva er gríðar-
mikið landflæmi, en að miklu leyti eyðimerk-
ur. Allmarkt fólk býr þó þarna, sérstaklega við
ströndina, og liefur því fjölgað mikið
hina síðustu áratugi. „Pútmenn" eru núver-
andi íbúar Egiptalands og Libyu, því hinir
fornu Egiptar eru löngu horfnir af þessum
slóðum og eru nú uppistaðan í hinum róm-
önsku þjóðum — ítölum, Frökkum og Spán-
verjum. — Á þessum slóðum, eða í vörslu
12 DAGRENNING