Dagrenning - 01.12.1950, Side 28
verið hulið athygli vorri og henni er nú sér-
staklega beint að tímabilinu frá 1952/1953 til
1956/1957.
Spádómar, í þeim skilningi að segja fyrir
um óorðna hluti, eru hættulegir, nema vér
jafnframt getum fært full rök að því, að
spádómar Biblíunnar hafi komið fram nú á
dögum, og það án þess að vekja nokkra æs-
ingu eða í þeim tilgangi að örva þá, sem
ekkert gengur til annað en forvitnin. Guð
hefur ekki enn opinberað sannindi sín um
þessi mál neinum þeim manni, er ekki sinnir
kröfum Hans og skilyrðum. Þess vegna, er
það, að þó það kunni að vera mögulegt að
sjá fyrir næstu atburði, þá mun sú opinberun
aðeins birtast hinum trúuðu, (öðrum verður
sú viska einber heimska). Það á að verða
þaggað niður í þessum tveim vottum i 3V2
ár. Af hverjum, hvar og livers vegna?
Eins og áður cr tekið fram þá skulum vér
forðast alla spádóma á eigin spýtur og af
gnægðum hugmyndaflugsins, heldur skulum
vér gefa gætur að atburðunum. Athugið
þessi mál út af fvrir yður og ef þér eruð her-
menn Krists, reiðubúnir til að rísa upp og
hervæðast, þá munuð þér fá fvrirskipanir og
hlýða þeim, og sigurinn mun verða vðar,
vegna trúarinnar á Krist.
★
Ilin mikla Anti-Guðs herferð er nú þegar
í fullum gangi. Eru ekki skýrar bendingar
um það, að sennilega eigi síðar en á árinu
1952, muni stórveldi, sem er undir áhrifum
frá Satan, leggja undir sig Palestínu og setja
upp „tjaldbúð" í Landinu helga? Samein-
uðu þjóðimar (U. N. O.) eru vamarlausar
gegn slíkri árás. Samband Sameinuðu þjóð-
anna var hvorki stofnað af Guði, né heldur
leitar það til Guðs um leiðsögu. Það er hin
mannlega vizka ein, sem þar ræður, og þar af
leiðandi eru þau samtök vanmáttug, og það
er greinilega ætlun Guðs að sýna það. — En
Israel er og verður ísrael hvað sem öllu öðru
líður. Getur það verið að þessi Anti-Guðs og
Anti-Krists stjórnandi muni sitja Guðs hei-
lögu borg í þrjú og hálft ár (1952—'56) og
bæla niður, ekki aðeins í Jerúsalem, heldur
um gcn'alt yfirráðasvæði sitt, alla aðra trú
en kommúnisma? Kommúnisinn mun freista
margra, en ef hann er hugjsón þessa
heims, þá er allt frelsi liðið undir lok. Vott-
arnir tveir liggja dauðir á strætum borgarinn-
ar (ríkisins), sem andlega heitir Sódóma
og Egyptaland. Dauði þeirra mun þó verða
með þeim hætti, að þessum tveim vottum
mun verða veitt valdið aftur á dásamlegan
hátt.
Hér eru nokkur atriði, sem vel eru þess
verð, að þeim sé gaumur gefin og röð þeirra.
Ef fimmti engillinn með fimmtu básúnuna
blés árið 1914 og boðaði fyrstu heimsstyrj-
öldina, sem stóð til 1939, þegar sjötti eng-
illinn blés sjöttu básúnuna og boðaði aðra
heimsstyrjöld, sem standa mun til 1956, þá
eru síðustu þrjú og hálfa árið af því tímabili
í lok þeirrar styrjaldar til undirbúnings komu
sjöunda engilsins, sem blæs í sjöundu bá-
súnuna (sjá Opinberunarb. XI.). Það boðar
þá þriðju heimsstyrjöldina, sem koma mun
þá þegar, og henni munu fvlgja síðustu plág-
urnar sjö, sem eyðileggja skulu hið gamla
babylonska skipulag gersamlega, líkt og þeg-
ar kvamarsteini er sökt í djúpið. Hvatning-
arorðin sem nú (1950) eiga við eru: „Gangið
út úr henni, mitt fólk, svo að þér hreppið
eigi plágur hennar.“ ísrael er „mitt flók“.
Guð vill ekki aðeins hvetja ísrael (bæði
„hús“ ísraels) til að „koma út“, heldur mun
hann neyða þá til þess með afli aðstæðn-
anna, og „frelsa þá sökum nafns síns.“ Það
mun verða hverjum einstökum í sjálfsvald
sett að ákveða, hvort hann vill taka Guð
trúanlegan og orð Ilans. Hinn kosturinn er
að fvlkja sér í lið óvinarins, Satans, og þjást
með í plágunum, sem hreinsa munu til í
öllu því öngþveiti er „siðmenning“ Satans
26 DAGRENNING