Dagrenning - 01.12.1950, Qupperneq 29
hefir skapað. Þetta virðast vera kostirnir,
sem sérhver maður og kona meðal frjálsra
þjóða á um að velja nú.
Mikil vakning er nú að hefjast. Alvarleg
krafa um andlega forustu er borin frarn.
Margir hafa aðeins óljósa hugmynd um
hvernig beri að snúa sér. Félög eru stofnuð.
Nefndir eru settar á laggirnar. Bænir stíga
upp. Ráð vort er einfalt og sett frarn í fám
orðum. „Ákallið Guð í einlægni og Ilann
mun hafa svarið til reiðu, fyrr en þér hafið
ákallað Hann.“ Verið þess fullviss, að at-
burðir næstu ára rnunu breyta útiliti him-
ins og jarðar. Ekki án byltingar, en vér erurn
þess fullvissir, að frelsið er öruggt, ef vér reið-
um oss á Guð sem hjálpræði vort og kraft,
og erum hreinir í hjarta. Skilmálarnir eru
einfaldir, og ef vér göngum að þeim og sýn-
um það í verkum vorum, að vér höfum trúna,
þá er oss vís styrkur í framk\'æmdum og
sigur að lokurn, og plágurnar rnunu eigi
koma nálægt oss. Ilugsið um þetta og biðj-
ist fyrir í undirgefni. Þér eigið valið nú.
Veljið rétt, áður en það er um seinan.
★
Kristur sagði dæmisögu sem greinilega á
við atburði yfirstandandi tírna. Þegar Manns-
sonurinn kemur (og tákn tímans sýna
það nú þegar greinilega hverjum vöku-
rnanni, að Hann er þegar kominn), þá
mun hann aðskilja þjóðini ar, eins og
sauðamaðurinn greinir sauði sína frá
höfrunum. (Matt. 25. 31—46.) Hvað segir
hann við sauðahópinn, sem fylgir góða hirð-
inum? „Komið þér hinir blessuðu föður míns
og takið að erfð ríkið (yfirráðin yfir jörðinni),
sem yður var fyrirbúið frá grundvöllun
heims.“ Hvað segir hann við hafrana, sem
eigi eru vandlátir um, hvað þeir leggja sér til
nrunns? „Farið frá mér, þér bölvaðir, í
eilífa eldinn, sem fyrirbúinn er djöflinum og
englum hans.“ „Og þessir skulu fara burt til
eilífrar refsingar, en hinir réttlátu til eilífs
lífs.“ Eilíf refsing er slæm þýðing. Það er
geysilegur munur á eilífri refsingu og alda-
langri refsingu. Haframir eru ekki seldir
neinni eilífð á hendur.. Eldurinn er hegn-
ingin. Refsingin á að vera til betrunar og það
er tilgangur þessara eldsdóma, sem á þá
mun falla, þar til skapgerð þeirra hefur
breytzt. Kristur dó fyrir alla. Hann gaf sjálf-
an sig til lausnar fyrir alla. Síðan mun hann
endurskapa allt og á réttum tíma mun hver
maður bevgja kné sín til dýrðar hinum himn-
eska föður og sérhver tunga játa, að Jesú sé
Drottinn. Spurningin, sem hver einstakur
meðal hinna frjálsu þjóða heims verður að
svara sjálfum sér er þessi: „Hvorum hópnum
fylgi ég?“ Þér eigið vaiið, svo ekki verður um
villzt, og skilmálamir eru einfaldir — stand-
ið réttu rnegin og sannið hollustu yðar og
breytið hver við annan eins og hermenn
bre)'ta við.félaga sína á stríðstímum, því að
slík er aðstaðan nú.
Vinnið sarnan!
★
Þegar Jesú var einn á Olíufjallinu gengu
lærisveinar hans til hans og spurðu hann eins-
lega:
„Hvert mun verða tákn nærveru þinnar og
aldaskiptanna?“
Jesús svaraði: „Gætið þess, að enginn leiði
yður í villu. Margir munu koma í mínu nafni
og leiða marga í villu. Það munu verða stvrj-
aldir og menn niunu spyrja hernaðartíð-
indi áður en endalokin koma. Þjóð mun
rísa gegn þjóð. Það munu verða hallæri,
drepsóttir og jarðskjálftar. Þetta er upphaf
fæðingarhríðanna. Mínir lærisveinar munu
verða hataðir af öllum þjóðum vegna nafns
míns. Margir falsspámenn munu rísa upp
og leiða marga í villu, og vegna þess að lög-
málsbrotin magnast, mun kærleikur alls þorra
manna kolna, en sá, sem stöðugur stendur,
mun bjargast. Þessi fagnaðarboðskapur um
ríkið mun prédikaður verða meðal allra lvða,
DAGRENNING 27