Dagrenning - 01.04.1954, Side 21

Dagrenning - 01.04.1954, Side 21
Enginn dagur er öðrum líkur, alltaf eitthvað nýtt og óvænt, og nauðsyn að hafa augu og eyru á hverjum fingri. En akuryrkjan breytir þessu öllu. Óvissan og nýbreytnin hverfur. Menn ganga að sömu verkunum dag eftir dag, og þó er það verst, að enginn árangur sézt fyrr en löngu seinna, og ef til vill verður hann enginn, kornið getur brugð- izt. Frost og stormar, hagl, þurrkur og skordýr og önnur sníkjudýr geta evði- lagt uppskeruna og til hvers var þá unn- ið? Margt hjálpast að því að gera vinn- una að erfiði, að leiðigjörnu erfiði, sem menn vildu helzt komast hjá. Og svo er enginn vanda að pæla í moldinni, reyta illgresi og svo framvegis, ekkert afrek að gera þetta, „ekkert sér til frægð- ar að vinna“. Af Jdcssu leiðir það, að menn vildu helzt ekki þurfa að vinna þessi leiðinlegu störf, ef þeir kæmust hjá því. En þá vaknar löngun til að komast hjá störfunum, en það er ekki hægt nema aðrir vinni þau. Og þá breytist löngunin til að komast hjá þeim í löngun til að láta aðra vinna þau. Og í stað þess, að áður var sá mest met- inn, sem mest gat afrekað, veitt mest, tínt mest ber, fundið mest, fór aðdáun- in að festast við þá, sem komust af með að vinna sem minnst. Þetta varð fyrst hvöt til að eignast mörg börn, börn gátu unnið, þegar þau komust á legg, unnið hin leiðinlegu og vandalausu verk. I öðru lagi tókst slægum mönnum að fá aðra sér fákænni til að vinna fyrir sig, að minnsta kosti leiðinlegustu verkin. Við þetta óx vegur þeirra, og svo tókst þeim að fá meira korn með þessu móti og það jók þróunina í þessa átt. En jafn- framt versnuðu þeir, er þetta gerðu, því sá, sem reynir að koma einhverju óþægi- legu á aðra, hlýtur um leið að hugsa leiðinlega til þeirra, og sá, sem það ger- ir, fjarlægist þá og spillist sjálfur. Og svo var söfnunin. Korn þroskast ekki nema einu sinni til tvisvar á ári. Og þegar kornið var orðið aðalmatur mannanna, þurfti að geyma það á milli uppskeranna, árlangt. Ef einliverjum tókst það ekki, gat farið svo, að hann og fjölskylda hans þyrfti að svelta, ein- hvern tíma, eða búa við krappan kost. En mönnum hefur sjaldnast þótt sultur- inn góður, og til þess að koma í veg fyrir hann, þurfti haustforði kornsins að vera nægur, geymslan að heppnast vel og eyðsla að vera hófleg. En bæði gat haustforðinn orðið í minna lagi og geymslan misheppnast að einhverju leyti. Vatn gat til dæmis komist í hana og valdið myglu og fúa. Eina ráðið við þessu var að safna fyrningum, safna í góðu árunum til hörðu áranna, eftir því, sem við varð komið. Sá var öruggur um sig og sína, sem átti alltaf nægan forða, nægar fyrningar. Og ef einhver varð bjargarlaus og annar átti fyrningar, gat sá, sem fyrningarnar átti, miðlað hinum og hlotið af því orðstír og jafnvel keypt með því vinnu hans næsta sumar og ým- is fríðindi. Það verður eftirsóknarvert að þurfa lítið að vinna, og það verður eft- irsóknarvert að eiga mikinn matarforða. Forða gat einstaklingurinn aflað sér með hagsýni og sparsemi, en þegar frá leið, t'arð það stærð sáðlandsins, sem skapaði forðann. En sá maður, sem tókst að láta aðra vinna fyrir sig, gat komizt yfir að hirða meira land en hinir, og þannig tvinnaðist það saman að eiga mikið og láta aðra vinna fyrir sig. Alilr kannast við söguna af Jósep — í Egyptalandi. Hann var sá forvitri og for- sjáli maður og safnaði miklum fyrning- um meðan góðærið hélzt. Og þegar harð- DAGRENNING 19

x

Dagrenning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.