Dagrenning - 01.04.1954, Síða 31
THE INSTITUTE OF PYRAMIDOLOGY, - þ. e. Rannsóknarstofn-
un pýramídafræða, — hin eina sinnar tegundar í heiminum — var stofn-
sett í London árið 1940, og gerði það hópur áhugamanna, en árið 1941
var verksvið hennar fært svo út, að það næði til annarra þjóða. Það
var þegar tímaritið „Pyramidology" hóf göngu sína og tekið var að flytja
fyrirlestra reglulega.
Markmið stofnunarinnar er að efla þekkingu og rannsóknir á pýra-
mídafræðum í öllum þeirra greinum. Megintilgangurinn er aukin fræðsla
meðal allra þjóða um liina stórfelldu opinberun Guðs, sem felst í Pýra-
mídanum mikla, allar greinar hennar: hina vísindalegu, hina spádóms-
legu og hina trúarlegu.
Þegar Dr. Adam Rutherford kom til íslands árið 1953 var sú ákvörðun
tekin, að koma á fót „Rannsóknarstofnun pýramídafræða á íslandi“, og
skyldi það vera félag, er eigi hyggði á fjármunalegan hagnað, en starfaði
fyrir ísland undir liandleiðslu Dr. Adam Rutherfords, stoínanda og for-
seta stofnunarinnar Institute of Pyramidology, til þess að auka hér á landi
þekkingu og skilning á Pýramídanum mikla.
Félagi í þeirri stofnun getur hver sá orðið, sem skilur það, að Pýra-
mídinn mikli er guðleg opinberun mynduð í steini.
DAGRENNING mun verja nokkru af rúmi sínu hverju sinni til þess
að útbreiða meðal almennings Jiekkingu á pýramídafræðum og er Jiað af
rúmi ritsins, sem er aftan Jjessarar blaðsíðu helgað Jjví málefni.
DAGRENNING er málgagn Rannsóknarstofnunar pýramídafræða á
íslandi og geta ]>eir, sem vilja afla sér Jiekkingar á Jiessum fræðum, snúið
sér beint til hennar bréflega eða símleiðis. Það verkefni, sem Rannsókn-
arstofnun pýramídafræða á íslandi vinnur nú að, er að koma á íslenzku
og fá útgefna nýja bók Dr. Adam Rutherfords „Opinberun Pýramídans
mikla um fsland“, og standa vonir til að sú bók geti komið út í haust.
DAGRENNING 29