Dagrenning - 01.04.1954, Qupperneq 31

Dagrenning - 01.04.1954, Qupperneq 31
THE INSTITUTE OF PYRAMIDOLOGY, - þ. e. Rannsóknarstofn- un pýramídafræða, — hin eina sinnar tegundar í heiminum — var stofn- sett í London árið 1940, og gerði það hópur áhugamanna, en árið 1941 var verksvið hennar fært svo út, að það næði til annarra þjóða. Það var þegar tímaritið „Pyramidology" hóf göngu sína og tekið var að flytja fyrirlestra reglulega. Markmið stofnunarinnar er að efla þekkingu og rannsóknir á pýra- mídafræðum í öllum þeirra greinum. Megintilgangurinn er aukin fræðsla meðal allra þjóða um liina stórfelldu opinberun Guðs, sem felst í Pýra- mídanum mikla, allar greinar hennar: hina vísindalegu, hina spádóms- legu og hina trúarlegu. Þegar Dr. Adam Rutherford kom til íslands árið 1953 var sú ákvörðun tekin, að koma á fót „Rannsóknarstofnun pýramídafræða á íslandi“, og skyldi það vera félag, er eigi hyggði á fjármunalegan hagnað, en starfaði fyrir ísland undir liandleiðslu Dr. Adam Rutherfords, stoínanda og for- seta stofnunarinnar Institute of Pyramidology, til þess að auka hér á landi þekkingu og skilning á Pýramídanum mikla. Félagi í þeirri stofnun getur hver sá orðið, sem skilur það, að Pýra- mídinn mikli er guðleg opinberun mynduð í steini. DAGRENNING mun verja nokkru af rúmi sínu hverju sinni til þess að útbreiða meðal almennings Jiekkingu á pýramídafræðum og er Jiað af rúmi ritsins, sem er aftan Jjessarar blaðsíðu helgað Jjví málefni. DAGRENNING er málgagn Rannsóknarstofnunar pýramídafræða á íslandi og geta ]>eir, sem vilja afla sér Jiekkingar á Jiessum fræðum, snúið sér beint til hennar bréflega eða símleiðis. Það verkefni, sem Rannsókn- arstofnun pýramídafræða á íslandi vinnur nú að, er að koma á íslenzku og fá útgefna nýja bók Dr. Adam Rutherfords „Opinberun Pýramídans mikla um fsland“, og standa vonir til að sú bók geti komið út í haust. DAGRENNING 29

x

Dagrenning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.