Dagrenning - 01.04.1954, Síða 30
Bandaríkjanna þar sem hann sagði, að
nú þegar væri búið að koma fyrir mönn-
um sem hefðu lykilaðstöðu til að ger-
eyðileggja mikinn hluta fyrirtækja þess-
ara þegar skipun yrði um það gefin.
Hversu mikið má upp úr slíkum upplýs-
ingum leggja er svo annað mál.
Athyglisvert var það, að á ráðstefn-
unni var það skýrt tekið fram, að stofn-
un sú, sem sér um og þjálfar skemmdar-
verkamenn er alveg aðskilin frá njósna-
hringum og njósnarar og skemmdar-
verkamenn vita ógerla hver um annan
þótt þeir starfi á sama svæði.
í því sem hér að framan hefir verið
sagt hefir verið stuðzt við hið brezka
tímarit, en engum, sem þekkir eðli kom-
múnismans og innræti leiðtoganna og
valdafýkn Jjeirra, kemur Jietta á óvart.
Allsherjarverkfallið hefur ávallt verið
eitt af aðalvopnum kommúnista og lags-
bræðra þeirra, hverju nafni sem þeir
nefnast. Hér er aðeins um það að ræða
að færa út hugmyndina um allsherjar-
verkfall svo það nái til allra þjóða (utan
járntjalds) í senn.
Að sjálfsögðu er alheimsverkfallinu
fyrst og fremst ætlað að skaða hinar engil-
saxnesku þjóðir, sem einar reisa nú rönd
við kúgun, ofbeldi og lævísi liinnar aust-
rænu heiðni. Vestrænar Jijóðir þurfa því
að vera vel á verði hvað þetta snertir. Af
frásögninni er augljóst, að alheimsverk-
falla kommúnista er ekki undirbúið til
þess að „bæta hagsmuni verkalýðsins"
eins og jafnan er látið í veðri vaka Jregar
um verkföll er talað, heldur er það und-
irbúið og skipulagt til stuðnings árásar-
fyrirætlunum Sóvietríkjanna á vestrænai
þjóðir.
íslenzku verkalýðsfélögin Dagsbrún og
Iðja í Reykjavík munu hafa átt fulltrúa
á Vínarfundinum.
Deíld úr A. A. stofnuð á
tslandi.
Á föstudaginn langa, 16. apríl s. 1. var
stofnuð í Reykjavík fyrsta deildin liér á
landi úr hinum aljrjóðlega bindindis-
félagsskap fyrrverandi drykjumanna, en
sá félagsskapur nefnist á ensku Alcoholic
Anonymus og er skammstafað A.A. (frb.
ei. ei.). Stofnendurnir voru 14 og voru
félagsskopnum settar bráðabirgðareglur
og kosin fyrsta stjórn félagsins. Félagið
hlaut nafnið „Reykjavíkurdeild A.A.“
Félagsskapur J>essi er eingöngu fyrir
menn og konur, sem viðurkenna fyrir
sjálfum sér og öðrum, að drykkju-
hneigð þeirra sé eða hafi verið orðin svo
sterk, að það var eigin viljakrafti þeirra
ofvaxið að hafa taumhald á lienni, og
því leita Jreir hjálpar æðri máttar til
lausnar undan drykkjuskaparböli sínu.
Félagsskapurinn starfar í smá hópum,
sem halda vel saman innbyrðis og ]>ar
hjálpar hver einstaklingur öðrum sem
bezt hann má til að verjast falli, en auk
]>ess leitast hóparnir, hver um sig, við
að ná til nýrra manna, sem hjálparþurfi
eru. Hóparnir hafa lauslegt samband sín
í milli.
Enginn læknast af ofdrykkjuhneigð
nema hann vilji það sjálfur. Fyrsta og
mikilvægasta ákvörðunin er að vilja
hætta. Reykjavíkurdeild A.A. vill leit-
ast við að styrkja þá, sem finna hjá sér
vanmátt til að framkvæma þá ákvörðun.
Þeir, sem vilja setja sig í samband við
A.A. ættu að skrifa fáar línur og senda
bréfið til Reykjavíkurdeildar A.A. Póst-
hólf 1139, Reykjavík.
28 DAGRENN I NG