Dagrenning - 01.04.1954, Síða 38
sérstakri stjórnardeild í landstjóratíð
Kýreníusar sjálfs).
Þess skyldi gætt, að frásögnin í 1. v. 2.
kap. Lúkasar stangast tímatalslega á við
nærstu vers á eítir. Fyrsta versið er
þannig: „En það bar til um þessar mund-
ir, að boð kom frá Ágústus keisara um
að skrásetja skyldi alla heimsbyggðina"
(utan máls: „skrásetja skyldi alla heims-
byggðina til skatts“). Þetta var allsherj-
ar regla, sem Ágústus keisari fyrirskip-
aði í öllu rómverska heimsveldinu nokkr-
um árum áður („um þessar mundir").
Næstu versin á eftir eiga við framkvæmd
Jressarar skipunar í Landinu helga árið
2 f. K.
Þar sem vér höfum nú sannfært oss
um Jrað, af heimildum hinna fyrstu
kirkjufeðra og fornu söguritara, að Jesús
iiafi fæðst seint á árinu 2 f. K. skuliun
vér halda áfram og sanna, ef unnt er,
árstíðina, mánuðinn og daginn, sem
hann fæddist.
Betlehem er venjulega frost og snjókoma
algeng, á vetrum. Það mætti Jdví liugsa
sér, að umhverfi Betlehem væri eitt af
þeim héruðum, þar sem fé var haft í
húsi yfir veturinn, og sé það rétt álykt-
að, þá samræmist jnað ekki sögu Tal-
múdanna um fjárflutningana, að Jesús
sé fæddur að vetri til, heldur ætti hann
að vera fæddur einhverntíma á tímabil-
inu milli marz og nóvember, þegar féð
var haft úti á nóttunni. Þar eð Jesús
fæddist á síðari hluta árs, getunr vér
sleppt mánuðunum marz—júní, og þess
vegna hlýtur hann að liafa fæðzt á tíma-
bilinu milli júlí og nóvember.
ELÍSABET OG MARTA.
En Ritningin lætur oss í té heimildir,
sem gera oss unnt að ákveða fæðingar-
dag Jesú miklu nánar. Frásögn Bibh'-
unnar um tímann þegar jrær urðu þung-
aðar Elísabet móðir Jóhannesar skírara
og María, móðir Jesú, er afar mikilsverð
í tímatalslegu tilliti. í 1. kap. Lúkasar,
5. v., er sagt frá Jrví, að Sakaría (faðir Jó-
hannesar skírara) hafi verið prestur af
flokki Abía. í 8.—LS. v. segir, að þegar
Sakaría hafi verið „að gegna prestsþjón-
ustu frammi fyrir Guði, eftir röð flokks
síns“, hafi honum borist vitneskja um
Jrað frá liimnum, að kona hans mvndi
ala honum son, sem ætti að heita Jó-
hannes. í 23. og 24. v. sama kapítula segir
síðan á þessa leið: „Og er þjónustudag-
ar hans voru liðnir, fór hann lteim til
sín. En eftir J^essa daga varð Elísabet
kona hans Jrunguð og hún leyndi sér í
fimm mánuði.“ Næstu vers greina frá
því, að þegar þessi tími var liðinn, Ji. e.
í byrjun sjötta mánaðar Elísabetar, hafi
María, móðir Jesú, fengið boðun sína,
og þannig stendur skrifað: „En á sétta
mánuði var Gabríel engill sendur frá
FJÁRHIRÐARNIR.
I 2. kap. Lúkasar, 8. v. segir svo: „Og
í þeirri byggð voru fjárhirðar úti í haga
og gættu unr nóttina hjarðar sinnar."
Til er Talmúda-sögn um Jrað, að hjarð-
irnar hafi verið reknar á haga í marz
og heim aftur í nóvember. Þetta á vitan-
lega aðeins við hálendishéruð Palestínu.
í láglendishéruðum landsins hefur víða
verið Iiægt að láta fénað ganga úti allan
ársins hring. Smáborgin Betlehem er
2550 fetum fyrir ofan sjávarmál (stend-
ur liærra en nokkur borg í öllu Stóra-
Bretlandi) og sumar byggðirnar umhverf-
is Betlehem standa talsvert hærra en
Jietta. í Jerikó, sem stendur einna lægst
af öllum borgum heims, Jró ekki séu
nema 30 mílur á milli, er hins vegar
næstum því hitabeltisloftslag, en upp í
36 ÐAGRENN I NG