Dagrenning - 01.08.1954, Qupperneq 17

Dagrenning - 01.08.1954, Qupperneq 17
áreiðanlegustu grísku handrita, þar á meðal hinu fræga Sinaitic, er ákveðni greinirinn ekki felldur niður á undan orðinu „hátíð“, og er því 1. versið í 5. kap. Jóhannesar guðspjalls þar á þessa leið: „Eftir þetta var Gyðingahátíðin, og Jesús fór upp til Jerúsalem." Þetta tekur af all- an vafa, því engin önnur hátíð en pásk- arnir er nefnd Gyðingahátíðin. Það er augljóst mál, að hjá einhverjum hinna fornu afritara hefir hinn litli grízki grein- ir n fallið niður af vangá og þess vegna verið sleppt í síðari afritum. í hinni end- urskoðuðu ensku þýðingu er athuga- semd neðanmáls við 1. versið í 5. kap. Jó- hannesar, á þessa leið: „í mörgum forn- um handritum stendur hátíðin.“ Með þessu er sannað að Drottinn vor hefir verið á fjórum páskahátíðum þann tíma, sem hann kenndi, og að kennslu- tími hans hefir verið 3 ár, en öll þjónusta hans, frá skírninni til krossfestingarinnar Sl/2 ár. En vér skulum samt sanna þetta betur. Á þessari öld rannsóknanna eru allir fræðimenn á einu máli um það, að ekki komi nema tvennt til greina um tímann, sem Kristur kenndi, þ. e. 2l/o ár eða 3/2 ár. Látum oss því athuga hvort- tveggja og sjá hver niðurstaðan verður. Vér skulum þá fyrst gera ráð fyrir að tíminn hafi verið 2l/> ár. Frá skím Krists, í október árið 29 e. K., eru þá liðin 2/2 ár í apríl árið 32 e. K., og ætti því kross- festing hans að hafa farið fram þá. Eins og öllum ber saman um var hann kross- festur í byrjun páskahátíðarinnar, en hún hófst með því, að páskalömbunum var slátrað og súrdegið flutt úr húsunum síð- ari hluta dags h. 14. Nísan. Árið 32 e. K. bar 14. Nísan í tímatali Gyðinga upp á 14. apríl í hinu Júlíanska tímatali Róm- verja, og var það mánudagur. En það er fyllilega ljóst af frásögn Ritningarinnar, eins og allir vita, að Jesús var ekki kross- festur á mánudegi eða í byrjun vikunn- ar; og þar sem páskar byrjuðu á mánu- degi árið 32 e. K. er það næg sönnun þess, að það ár getur ekki verið krossfestingar- árið, og þess vegna hlýtur sú hugmynd, að hann liafi kennt í 2þ£ ár, að vera röng. Dagur, mánuður og ár krossfestingarinnar. Nú skulum vér prófa þá skoðun, að starfstími Krists hafi verið 3]/2 ár og vita hvernig það kemur heim. Ef vér bætum 3/2 ári við skírnarárið, í október 29 e. K., komum vér að aprílmánuði 33 e. K. sem krossfestingartímanum, en eins og áður var sagt fór hún fram í byrjun páskanna, sem ávallt hófust á því, að páskalömbunum var slátrað og súrdegið flutt á brott síðari hluta dags h. 14. Nísan. Árið 33 bar 14. Nísan upp á 3. apríl (Júl.) sem var föstudagur, og allir fræðimenn eru sammála um að Kristur hafi verið krossfestur á föstudegi, eins og Biblían tekur af allan vafa um. Þegar Jósef frá Arímaþeu kom og bað um leyfi til að taka líkama Jesú af krossinum, segir frásögn- in að verið hafi „aðfangadagur, það er dagurinn fyrir hvíldardaginn" (Mark. 15 : 42). Eins og sjöundi dagur vikunn- ar var nefndur sabbatsdagur þannig var aðfangadagur heiti sjötta dagsins, sem vér nú nefnum föstudag. Á sama hátt segir Lúkas (23 : 54) „og það var aðfanga- dagur, og hvíldardagurinn fór í hönd.“ Nákvæmlega hið sama kemur fram hjá Josephusi, Antiq XVI, vi, 2. Dagurinn var kallaður aðfangadagur vegna þess að hann var undirbúningsdagur hvíldar- dagsins. Á fyrri öldum kristninnar not- uðu kirkjurnar orðið paroskeue (aðfanga- dagur) í sömu merkingu og dies veneris (föstudagur). DAGRENNING 1S

x

Dagrenning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.