Dagrenning - 01.08.1954, Blaðsíða 24

Dagrenning - 01.08.1954, Blaðsíða 24
inna af hendi þann dag og þá stund, uns hann hafði að lokum gert að veruleika öll tákn og spádóma um sjálfan sig.“ Fyrsta prédikun Krists var um tímann. Jesús kom og sagði: „Tíminn er fullnað- ur.“ „Þegar tíminn var fullnaður dó Kristur." „Hann reis upp aftur á þriðja degi, samkvæmt Ritningunum." Meðan liann kenndi reyndu óvinir hans hvað eftir annað að handtaka hann, en gátu það ekki, „því að stund hans var enn ekki komin“ (Jóh. 7: 30). Til þess að átta oss fullkomlega á þessu og skilja á hve ná- kvæmlega réttum tíma hann kom og framkvæmdi verk sitt, verðum vér að rifja upp spádóm úr Gamla Testament- inu. í 9. kapítula Daníelsbókar sagði spá- maðurinn nákvæmlega fyrir að Messías myndi koma ÁÐUR en borgin Jerúsalem og helgidómur hennar, musterið, yrði eyðilagt (það var gert árið 70 e. K.) Þessi staðreynd ætti að vera mikilvæg hjálp fyrir þá, sem eiga erfitt með að átta sig á, hver hinn sanni Messías er. Vér skulum því rannsaka þennan spá- dóm lið fyrir lið. Hinar „sjötíu vikur“ Daníels. í spádómabók Daníels, sem rituð var 500 árum áður en Jesús kom til jarðar- innar, var það sagt fyrir, í 9. kap. 24.-27. vers. 24. v. „Sjötíu sjöundir (vikur) eru á- kveðnar lýð þínum og þinni heilögu borg til þess að drýgja glæpinn til fulls og fylla mæli syndanna og til þess að friðþægja fyrir misgjörðina og ’eiða fram eilíft réttlæti, til þess að innsigla vitran og spámann og vígja hið há- heilaga." 25. v. „Vit því og hygg að: frá því er orð- ið um endurreisn Jerúsalem út gekk, og til hins.smurða höfðingja, eru sjö sjöundir (vikur), og sextíu og tvær sjö- undir: skulu stræti hennar og múrar endurreist verða, þó að þrengingar- tímar séu.“ 26. v. „Og eftir þær sextíu og tvær sjö- undir mun hinn smurði afmáður verða, án þess að hann hafi nokkuð til saka unnið, og borgina og helgidóm- inn mun eyða þjóð höfðingja nokkurs, sem koma á, og endirinn á því mun verða flóð, og allt til enda ófriðarins er eyðingin fastráðin. 27. v. „Og hann mun staðfesta sáttmál- ann við marga um eina sjöund, og um hálfa sjöundina (um miðja vikuna) mun hann afnema sláturfórn og mat- fórn, og í stað þeirra mun viðurstvggð eyðingarinnar upp reist verða, og liún fastráðin.steypast yfir eyðandann."1) í tímaspádómum hefur Guð sinn eigin kvarða, og hjá Esekiel, 4. kap. 6. v. er oss sagt, hver hann sé: „Tel ég þér dag fyrir ár hvert.“ Þessi kvarði er 1 dagur = 1 ár. Þessi kvarði á allstaðar við í Biblíunni. Af spádómnum hér á undan er ljóst, að þessar 70 spádómsvikur eru 490 spádómsdagar (70X7=490) sem sam- kvæmt þeim kvarða, er Guð hefur látið oss í té, „dag fyrir ár hvert,“ verða 490 ár og að þeim tíma liðnum átti þessu öllu að vera lokið. Skráin hér á eftir sýnir þetta og hvernig það rættist. Öll framangreind atriði eru í spádómn- um og áttu að vera komin fram í lok hinna 70 „vikna,“ og þau gerðust öll árið 1) Lesendur eru beðnir að athuga, að þar sem þýðingunni á spádómnum ber ekki saman við íslenzku Bibíluna er farið eftir enska text- anum, sem höfundurinn tekur upp orðréttan. 22 DAGRENN I NG

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.