Dagrenning - 01.08.1954, Qupperneq 27

Dagrenning - 01.08.1954, Qupperneq 27
heimför Ezra urðu þeir fyrst þjóðfélag eða borg með eigin stjórn.“ Fræðimenn eru á einu máli um það, að fyrsta ríkisár Artahsasta I. hafi byrjað 1. Nisan árið 464 f. K. (..aukaárið“ 465 f. K.) og þess vegna hófst 7. ríkisár hans með Nísan 458 f. K. Ezra fékk fyrirmæli um að endurreisa Jerúsalem í Nisan- mánuði á 7. ríkisári Artahsasta, eða í Nis- an árið 458 f. K. og kom til Jerúsalem fjórum mánuðum síðar. Ef vér teljum nú 70 spádómsvikur, eða 490 ár, frá Nis- an árið 458 f. K. komum vér að Nisan árið 33 e. K. (490 h- 458 + 1 = 33) sem er ekki aðeins árið, heldur einnig mán- uðurinn, sem Kristur dó og reis upp, samkvæmt áreiðanlegum mælingum í Pýramídanum mikla, og hefir því spá- dómurinn ræzt nákvæmlega og með al- gerlega ótvíræðum hætti. Vígsla postul- anna 12, á hvítasunnudag, fór fram í þriðja mánuði ársins 33 e. K., eða þó nokkru áður en fjórir mánuðir voru iiðn- ir frá því að hinum 70 „vikum“ lauk, og svarar það til hinna fjögurra mánuða, sem Esra var að komast frá Babylon til Jerúsalem árið 458 f. K. Ef talið er í tunglárum er það einnig mjög einfalt og auðskilið. Tunglárið, sem þjóðirnar í Litlu-Asíu mæla tímann eftir, eru 12 samfelldir mánuðir eða tunglumferðir, m. ö. o. 12 sinnum tíma- bilið milli tveggja nýrra tungla, en það eru aðeins 3541/^ dagar. En eins og segir í Nehemiabók 1. kap. 1.—3. v. frétti Ne- hemia um hið ömurlega ástand Jerúsal- em í Kislev-mánuði á tuttugasta ríkisári Artahsasta, þ. e. í desember árið 445 f. K. í 2. kap. segir Nehemia, að í Nísan-mán uði næst á eftir, eða um vorið 444 f. K., hafi liann tjáð Artahsasta konungi á- hyggjur sínar vegna Jerúsalem, og hafi hann þá útnefnt sig landstjóra í Júdeu og jafnframt ákveðið, hvenær hann skyldi fara þangað. Samkvæmt frásögn Nehemia kom hann til Jerúsalem í lok sama árs, þ. e. ársins 444 f. K. Hann kvaddi til alla verkfæra menn, sem tiltækir voru, og skipaði svo fyrir, að borgarmúrarnir skyldu byggðir upp að nýju, og í 6. kap. 15. v. skýrir Nehemia oss frá því, að þessu þrekvirki hafi verið lokið á 52 dögum, sem er furðulega skammur tími. Ef vér teljum nú 490 tunglár (sem er sama og 474% sólarár) frá haustinu 444 f. K., komum vér aftur að vorinu 33 e. K. Þannig hefir spádómur Daníels um liinar „70 vikur“ ræzt nákvæmlega, hvort sem talið er í sólarárum eða tunglárum, svo sem sýnt er á uppdrættinum hér á undan. Þess skyldi vandlega gætt í þessu sam- bandi, eins og öllum öðrum tímaspádóm- um Biblíunnar, að þegar það kemur fvrir að þeir rætast í tunglárum er það auka- ráðning. Allir spádómar Ritningarinnar eru fyrst og fremst miðaðir við sólarár. „Um miðja vikuna.“ Eitt mikilvægt atriði er enn eftir að íhuga. I 27. versinu er oss sagt, að í miðri 70. vikunni verði sláturfórn og matar- fórn afnumdar. Þess ber að gæta, að all- ur þessi tímaspádómur er saminn frá hinu guðlega sjónarmiði, eins og sýnilegt er af ýmsum atriðum spádómsins. T. d. var hið eilífa réttlæti, sem talað er um í 24. versinu „leitt fram“ í lok hinna 70 „vikna“, tryggt með dauða og upprisu Krists, en í raun og veru er ævarandi rétt- læti á jörðu enn ókomið ástand, frá mannlegu sjónarmiði. Þá er „hin fast- ráðna eyðing“, sem um getur í 26. og 27. v. og Kristur boðaði rétt fyrir dauða sinn og upprisu, þegar liann kvað upp dóm- inn yfir Gyðingum með orðunum: .Sjá hús yðar skal yður í eyði eftir skilið DAGRENN I NG 25

x

Dagrenning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.