Dagrenning - 01.08.1954, Page 34

Dagrenning - 01.08.1954, Page 34
BERNHARD L. BATESON: Fyrírmælí Bíblíunnar um mataræði Vísindi síðustu áratuga hafa leitt margt furðulegt í ljós að því er snertir fæði manna og fæðutegundir ckki síður en aðra hluti. Fyrir fáum áratugum var frekar lítiis neytt af fæðu úr jurtaríkinu, en fæða úr dýraríkinu var aigengust og þótti holl. Nú er þetta mjög að beyrtast. Þá er það og, að ekki þykir öll fæða úr dýraríkinu jafn holl nú, og er í því efni fróðlegt að minnast þess, að í lögum Móse er ýmis fæða úr dýraríkinu bönnuð með öllu og talin „óhrein." Vísindarannsóknir nútímans leiða ótvírætt í ljós, að sú fæða, sem Iiiblían bannar, er ýmist skaðieg heilsu manna eða svo snauð af lífgefandi efnum, að var- hugavert er að neyta hennar sem aðalfæðu. Langvarandi neysla slíkrar fæðu leiðir til fjörefnaskorts, sem nú er algengur með öllum menningarþjóðum er engu skeyta fyrir- mælum Bibliunnar eða niðurstöðum raunvísinda um þessi efni. Grein sú sem hér fer á eftir tekur þetta efni til meðferðar með þeim hætti að öll- um ætti að verða auðskilið. J. G. Þegar ísraelsmenn höfðu verið frels- aðir úr ánauðinni í Egyptalandi, svo sem frá er sagt í Exodus (II. Mósebók), var farið með þá að Síaní-fjalli og þar var ísraelsþjóðin gerð að sérstöku ríki og gefin stjórnskipan. Þjóðin var gerð að guðsstjórnar-ríki. Þar gaf Guð þeim lög- mál, sem líf þeirra átti að stjórnast af í öllum atriðum — hegðun einstaklingsins, fjölskyldunnar, félagsmál, fjármál, þjóð- leg og alþjóðleg samskipti — ásamt fyrir- mælum um guðþjónustur. í þessum lög- um voru einnig reglur um mataræði fyr- ir hina útvöldu þjóð: „Og Drottinn talaði við Móse og Aron og sagði við þá: Talið til ísraelsmanna og segið: Þessi eru þau dýr, er þér megið eta, af öllum ferfættum dýrum, sem eru á jörðinni." (III. Móseb. 11:1-2). Bönnuð fæða. Af öllum ferfættum dýrum mátti að- únistísku Austurlönd hafa gert. „Austr- ið“ er sameinað af grimmúðugu harð- stjórnarvaldi og sameinað um ákveðnar kennisetningar. „Vestrið" hefði átt að sameinast opinberlega um stofnun, sem reist væri á siðferðilegum grundvelli. Vegna þess að enn vantar slík sið- ferðileg þjóðasamtök á Vesturlöndum, og þá trú sem þau hefðu fengið styrk sinn frá, verða Vesturlönd framvegis föst í skrúfstykki valdastreitunnar, og samtök þeirra liðast meir og meir sund- ur fyrir augum vorum, en yfir vofir að „austrið" fari með fullan sigur af hólmi í hinu kalda stríði þjóðanna. (J. G. þýddi.) 32 DAGRENNING

x

Dagrenning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.