Dagrenning - 01.08.1954, Blaðsíða 41
VIII. Hvað á ég sameiginlegt með slík-
um hóp?
Auk þess sem þú átt við áfengisvanda-
málið að stríða, muntu finna meðal fé-
lagsmanna menn, sem þér munu falla
vel í geð. A.A. er smækkuð mynd af
þjóðfélagslífi okkar, og meðal félags-
manna eru menn úr öllum stéttum:
verzlunarmenn og konur, vinnuveitend-
endur og launþegar, kennarar og nem-
endur, ungir og gamlir. Þarna er að
finna fólk, sem fæst við þjóðfélagsmál,
hagfræði, stjórnmál, trúmál o. s. frv.
Það er því sennilegt, að þú komizt þar
í kynni við fólk, sem er þér að skapi.
IX. Er A.A. sértiúarflokkur eða trúar-
leg hreyfing?
Nei! Ekki í venjulegum skilningi
þeirra orða. En ef við viðurkennum að
okkur sjálfum og öllum öðrum mann-
legum máttarvöldum hefur hingað til
ekki tekizt að hjálpa okkur, og ef við
þörfnumst nauðsynlega hjálpar einhvers
staðar frá, og erum fús til að þiggja þá
hjálp, ef hún býðst — og ef sú hjálp er
trú — þá er svarið: Já.
A.A. hefur engar trúarsetningar, trú-
arjátningar eða helgisiði. Það skiptir sér
ekki af trúarskoðunum félagsmanna.
Samt sem áður trúa flestir okkar því,
að beiðni um hjálp frá æðra mætti, eftir
eigin skilningi á þeim mætti, og við-
taka slíkrar hjálpar, sé ómetanlegur
styrkur í baráttunni við þessi önnur
vandamál lífsins.
X. Eru nokkur tillög eða félagsgjöld?
Þar eð bindindissemi er ekki verð-
mæti, sem hægt er að kaupa eða selja
við afgreiðsluborð, eru engin félagsgjöld.
A.A. hefur ekkert að selja.
A.A. er sjálfboða starfsemi og vinn-
an sjálfboðavinna. Það hefur samt
reynzt nauðsynlegt að stofna til sam-
skota á fundum til að standast kostnað
af húsnæði, lestrarefni, hressingum o.
fl. A.A. nýtur ekki utanaðkomandi
stuðnings og leggur áherzlu á þá stað-
reynd, að engum félagsmanna eru
greidd nein laun eða þóknanir.
XI. Hvers konar stjórn hefur A.A.?
Hver félagsdeild, hvar sem hún er,
velur sér sjálf starfsaðferðir. Hér er
starfsaðferð einnar deildarinnar:
Fimm manna framkvæmdanefnd er
kosin af félagsmönnum. Hver nefndar-
maður starfar í 5 mánuði og þar eð stöð-
ug skipting fer fram, fer einn maður
úr stjórn mánaðarlega og annar er kos-
inn, þannig að allsherjarstjórnarkjör fer
aldrei fram eftir það fyrsta. Á þennan
hátt fást stöðugt nýir starfskraftar í
nefndina;
Framkvæmdanefndin kýs formann úr
sínum hópi og sér hann um framkvæmd-
ir samþykkta hennar. Auk þess eru rit-
ari og gjaldkeri. Menn ráðgast við for-
mann og með samþykki framkvæmda-
nefndarinnar getur hann útnefnt und-
irnefndir, sem starfa þegar þeirra telst
þörf, til þess að gera starfsemi félagsins
árangursríkari.
XII. Hvernig get ég orðið félagsmaður?
Þar sem engin formleg inntaka í fé-
lagið fer fram, verður þú næstum sjálf-
krafa meðlimur, ef þú — eftir að hafa
skoðað hug þinn af grandgæfni og
æðruleysi og viðurkennt, að þú sért
drykkjumaður, sem vilt hætta að
drekka fyrir fullt og allt — sækir fundi
og reynir af einlægni og alúð að fara
eftir leiðbeiningum og reynslu þeirra,
sem með þér eru, og reynir eftir beztu
samvizku að fylgja reglum og leiðbein-
ingum A.A.
DAGRHNNING 39