Dagrenning - 01.04.1958, Page 26

Dagrenning - 01.04.1958, Page 26
einhver skaðlegasta villukenning, sem fram hefir komið, og hefir leitt af sér meiri bölvun en orð fá lýst nú í nær- fellt tvö þúsund ár. Hafið þér gert yður ljóst, að til þess að geta túlkað Ritninguna á þennan veg, verðið þér að afneita svo að kalla allri Biblíunni, bæði Gamla og Nýja testamentinu, því að þar er engan stuðning að fá við þessar kenningar yðar? Til þess að komast að þessari niðurstöðu, verðið þér að afneita öllum spádómum Biblíunnar, öðrum en þeim, sem eiga við fyrri komu Krists og líf hans og starf þá. Þetta hefir kirkjan líka gert svo rækilega, að það er nú beinlínis kennt, að ekkert sé að marka spádóma Biblíunnar og allir háskólar eru í standandi vandræðum með þá, nema sem „viðvaranir“. En þér verðið að gera meira. Þér verðið að afneita og telja týnda með öllu hina útvöldu þjóð Guðs — ísrael —, sem bæði postul- ar Krists og Kristur sjálfur sögðust vera sendir til. Sjáið þér ekki, að „kirkjan" er að draga hér til sín fyrir- heit, sem hún ekki á og sem Drottinn hefir aldrei fengið henni í hendur? Einhver stórfelldasta blekking allra tíma átti sér stað, þegar katólska kirkj- an fór að halda því fram, að hún væri einhvers konar „andlegur ísrael", sem ætti að taka við hlutverki og fyrirheit- um ísraelsþjóðarinnar. Af því leiddi m. a. hinar stórfelldu ofsóknir á hend- ur Gyðingum, sem katólska kirkjan hélt uppi öldum saman, til þess að reyna að útrýma þeim leifum fsraelsþjóðarinn- ar, sem voru á yfirráðasvæði hennar. Þegar Rómarkristni fór svo að berast á Vestur- og Norðurlönd, hófst sama útrýmingar-herferðin þar. Katólska kirkjan útrýmdi þeirri kristni, sem fyrir var á Bretlandi, þegar hún kom þangað og gerði bandalag við heiðna þjóðflokka í því skyni. Katólska kirkj- an safnaði saman og eyðilagði allar þær miklu rúnabókmenntir, sem voru til víðs vegar um Evrópu og Bretlands- eyjar og Norðurlönd, er sönnuðu, að þeir þjóðflokkar, sem lönd þessi byggðu, væru ísraelsættar — svo sem Dansættkvíslin, sem nam Danmörku —, svo að ekki fengjust þar sannanir fyrir því, að höfuðkenning hennar um „and- legan ísrael“ væri falskenning ein og vísvitandi blekking. Á „andlegan fsra- el“ er hvergi minnzt í Nýja testament- inu, svo að hér er algjör fölsun á stað- reyndum á ferðinni, — tilkomin eins og að framan segir. „Kirkjan", hvorki sú katólska, lút- herska né nokkur önnur kirkjudeild, er enginn „andlegur fsrael“, heldur „söfn- uður Krists“, og þar ber ekki að gera mun á mönnum eftir litarhætti eða öðru. Það er við söfnuð Krists — þá, sem skírðir eru til hans nafns, — sem þau orð eiga: „hér er ekki Gyðingur né grískur, hér er ekki þræll né frjáls maður, hér er ekki karl né kona, því að þér eruð allir einn maður í sam- félaginu við Krist Jesúm. Ef þér til- heyrið Kristi, þá eruð þér niðjar Abra- hams, erfingjar eftir fyrirheiti." Því fyrirheiti, sem Drottinn gaf Abraham: „af þér skulu allar þjóðir jarðarinnar blessun hljóta." Að gera einn hrærigraut úr „kirkj- unni“ og ísrael, er einhver stórkostleg- asta villa, sem hægt er að gera sig sek- an um, gagnvart réttri, heilbrigðri hugsun. Að telja „kirkjuna" það ríki Guðs, sem koma skal, á enga stoð í Heilagri ritningu, en hefir valdið og mun valda sívaxandi glundroða og hrærigraut, sem að lokum ríður kirkj- unni sjálfri að fullu, ef ekki tekst að 20 DAGRENNING

x

Dagrenning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.