Dagrenning - 01.04.1958, Side 33
stöðu er þar daglegt brauð, og enginn
nær þar rétti sínum gegn valdhöfun-
um. Menn eru líflátnir eða dæmdir í
þrældóm og útlegð fyrir hinar minnstu
yfirsjónir — jafnvel fyrir upplognar
sakir, ef því er að skipta. Þetta þarf
ég ekki að rekja fyrir yður, þér þekkið
þetta allt eins vel og ég eða kannske
betur. Ég veit, að þér eruð mér sam-
mála um að bakvið slíkt stjórnarfar
stendur djöfullegt vald: „samkunda
Satans“. Þessi sami leynilegi stjórn-
málafélgsskapur náði völdum í Þýzka-
landi 1933 og þjónar hans voru þá
þýzku nazistarnir og Hitler. Hitler
komst til valda sem „höfuðandstæðing-
ur kommúnismans“, en hvernig urðu
endalokin: Vináttusamningur Sovét-
ríkjanna og Þýzkalands gegn hinum
vestrænu ríkjum. Þar upp úr heims-
styrjöld, sem færði Sovétríkjunum —
kjarnaríki „samkundunnar“ — yfirráð
yfir allri Evrópu vestur að Saxelfi og
Alpafjöllum og suður að Miðjarðar-
hafi. Hitler „hvarf“ að loknu sínu hlut-
verki í þágu „samkundunnar“.
En „samkundan“ er víðar að verki
en í „kjarnaríki“ sínu, Sovétríkjunum.
Hún starfar einnig á Vesturlöndum.
En þar er starfsemin með öðrum hætti.
Þar er það fjármagnið — auðvaldið —,
sem beitt er í stað ofbeldisins í austri.
Samkundan vinnur á Vesturlöndum
með allt öðrum hætti en í Sovétríkj-
unum og leppríkjum þeirra. Hér starf-
ar hún í nafni „frelsis og mannrétt-
inda“ að niðurbroti hinnar kristnu lífs-
skoðunar og útrýmingu kristinnar trú-
ar. í þjónustu hennar hér eru öll dag-
blöð — þau eru öll gefin út af sam-
kundunni —, allir háskólar og flestir
æðri skólar, margar kirkjudeildir,
fjöldi presta, stjórnmálamanna, rithöf-
unda, fjármálamanna, listamanna o. fl.
Af öllum Vesturlöndum eru Banda-
ríkin í mestri hættu nú, því að þar er
nú höfuðvígi samkundunnar í hinum
frjálsa heimi.
Bandaríska þjóðin kýs sér ennþá þing
og stjórn í frjálsum kosningum og hún
kýs sér einnig þjóðhöfðingja — forset-
ann — og hún veit lítið um samkund-
una. En hverjir ráða raunverulegri
stefnu Bandaríkjanna? Það eru a. m. k.
að eins miklu leyti fjámagnssamtök
þeirra (bandaríska auðvaldið) með öll-
um sínum undirdeildum og samtökum,
eins og þing og stjórn. Það er við þetta,
sem átt er, þegar talað er um samstarf
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna. Hinn
leynilegi stjórnmálaflokkur — sam-
kunda Satans — hefir mikil völd í báð-
um þessum stórveldum þó að hann hafi
enn ekki opinberlega tekið í sínar liencl-
ur stjórnina í Bandaríkjunum, eins og
hann hefir gert í Rússlandi.
★
En þessi saga er ekki öll sögð enn.
Til þess að brjóta niður frelsi og sjálf-
stæði smáþjóðanna — og jafnvel stór-
velda eins og Breta og Frakka — hefir
samkundan sett á stofn „Sameinuðu
þjóðirnar" og ýmis fleiri svokölluð
„alþjóðleg“ fyrirtæki.
Það er regin misskilningur, sem kem-
ur fram í bréfi yðar, að Sameinuðu
þjóðirnar séu fyrirtæki, sem komið sé
upp og haldið uppi af hinum frjálsu,
hvítu þjóðum. Auðvald Bandaríkjanna
átti frumkvæðið að gamla „Þjóða-
bandalaginu" og það, ásamt Sovétríkj-
unum, átti frumkvæðið að stofnun
„Sameinuðu þjóðanna“, eftir síðustu
heimsstyrjöld.
Sameinuðu þjóðirnar hafa með starfi
sínu síðan þær voru stofnaðar stefnt
að því að brjóta niðu þær þjóðir í Ev-
rópu, sem til þessa hafa haldið á lofti
DAGRENNING 27