Dagrenning - 01.04.1958, Blaðsíða 42
Háskólar og æðri skólar ráðleggja leynt
og ljóst „reynslu-hjónabönd". Hin
heimspekilega uppeldisfræði, sem álít-
ur að hver og einn eigi að hafa frjáls-
ræði í útrás tilfinninga sinna, hefir
gagnsýrt hugi Ameríkumanna. Æsku-
fólk okkar, á tíu og ellefu ára aldri,
„veit meira“ en foreldrar þeirra gerðu
um tvítugt.
Glæpafaraldurinn er geigvænlegur.
Síðasta ár voru framin 16 milljón af-
brot og tjónið af þeim metið 17 þúsund
milljónir dollara. Glæpum hefir fjölgað
um 800% síðustu fjörutíu árin. Þeir,
sem handteknir voru í fyrra, voru flest-
ir á seytjánda árinu. Skækjulifnaður og
afbrot aukast um 40% árlega.
„Smá-afbrot meðal skólaæskunnar
hafa aukizt geigvænlega,“ segir J. Ed-
gar Hoover. 70 % skólaæskunnar drekk-
ur.
Árið 1938 var talið að gömlu „pútna-
húsin“ myndu aldrei rísa upp aftur.
Nú eru 750 þús. ný „samkvæmishús" í
Ameríku. Árlega deyja um 40 þúsund
manns á þjóðvegunum, og 90% þessara
dauðsfalla má kenna áfengisneyzlu. Við
erum í þann veginn að drekka okkur
í hel. Við notum daglega tvær milljónir
dollara í deyfilyf.
Hverjar eru orsakirnar?
Hoover upplýsir ennfremur: „Þetta
ástand er í nánum orsakatengslum við
hið skelfilega fráhvarf í trúarlegum
efnum. Yfir 60 milljónir manna (í
Bandaríkjunum) játa engin sérstök
trúarbrögð. Margir trúa alls ekki á
Guð. Þetta er alvarlegasta hætta Ame-
ríku.“
„Hamarinn og sigðin“ er ekki hættu-
legasti óvinur okkar. Það er okkar innri
hnignun, sem veldur hinni hröðu þró-
un til glötunar og eyðingar, og hún er
hraðari en hjá nokkurri annarri kyn-
slóð.
Margir uppeldisfræðingar ræða um
„svikna menningu“. Og margir ágætir
menn álíta meiri upplýsingu rétta svar-
ið við hættunni. Háskólar okkar og
æðri skólar, sem stofnaðir voru af trú-
arlegum innblæstri, kenna nú guðleysi
eða guðsafneitun. Þess vegna kveðja
þúsundir æskumanna skóla vora efa-
gjarnir og reikulir í trúarefnum, eða
þá sem hreinir guðleysingjar, sem bera
litla eða enga virðingu fyrir Guði.
f bók sinni, „Uppruni tegundanna",
notar Darwin yfir átta hundrað sinn-
um „höllum okkar að“ og „við getum
örugglega fallizt á“ eða svipuð orðtil-
tæki.
Af áþekku orðagjálfri vænta sumir,
að við tökum góða og gilda þá niður-
stöðu, að mennirnir, leiddir af innri
vilja, hafi þróazt frá dýrunum, já, ör-
lítilli frumu, án afskipta Guðs. Á liðn-
um árum hafa aðrir skólar bætt ýmsu
við og notað nokkuð af því, sem Dar-
win ályktaði eða gerði ráð fyrir. Frá
þessum veiku niðurstöðum, ímyndun-
um og getgátum manna, sem forsmáðu
Biblíuna og kærleika Guðs, er þróunar-
kenningin runnin.
Þeir, sem trúa þróunarkenningunni,
afneita sköpunarsögu Biblíunnar. Þeir
afneita persónulegum, skapandi Guði.
Þeir kenna að mennirnir verði stöðugt
vitrari, betri og fullkomnari. í staðinn
fyrir synd tala þeir um „mistök" og
„bresti“, sem gefi mönnum von um að
verða betri og fullkomnari.
Atburðir og lærdómar síðustu ára
hafa hrakið allar staðhæfingar þróun-
arkenningarinnar. Mennirnir verða
ekki betri. Mennirnir fullkomnast ekki
stöðugt. Aparnir þróast ekki upp til
mannanna, það mætti fremur segja, að
36 DAGRENNING