Dagrenning - 01.04.1958, Page 47

Dagrenning - 01.04.1958, Page 47
En ég tel mig sjá merki komandi vakningar, en ennþá er ekkert sem bendir til að öll þjóðin sé að hverfa til Drottins. Við náum aðeins til lítils hluta þjóðarinnar. Ameríka, ég gef þér andlegt herút- boð: „Komið, vér skulum hverfa aftur til Drottins, því að hann hefir .... lost- ið, og mun binda um sár vor.“ Ameríka getur hvorki skapað né keypt sér lausn. Hún verður að biðja — ef við eigum að bjargast. „Sá maður, sem getur komið okkur á kné í sárri iðran, mun reynast mesti velgjörðarmaður þjóðarinnar, og orka mestu til að koma kynslóð okkar á rétt- an kjöl á ný,“ hefir einhver sagt. Til að standa vörð um lýðræði okkar og vernda hina sönnu amerísku lífs- stefnu, þörfnumst við vakningar, já, við verðum að öðlast vakningu á gamla og góða kristilega vísu. Guð fyrirgefi okkur syndir vorar, forði okkur frá heimskupörum, hjálpi okkur til afturhvarfs, starfs og bæna, og varpi oss út í andlega baráttu. Vor einasta von er vakning. Ág. Guðrn. þýddi. ★ Eftlrmáli. Hér lýkur þessari stórkostlegu hugvekju hins mikla skörungs. Hún er orð í tíma talað, því nú er komið á fremstu nöf, baeði í Ameríku og annars staðar. Hin mikla hreinskiini og hin öfgalausa gagnrýni höfundar á hagi og háttu hans eigin þjóðar er virðingarverð. En hvaða íslendingi, sem þetta les, verður ekki ósjálfrátt hugsað til sinnar eigin þjóðar, og þess ástands sem hér ríkir? íslenzka þjóðin, sem í þúsund ár hefir varð- veitt einn dýrasta menningararf mannkynsins, og verið sér þess meðvitandi, að hún — er hún barðist liér fyrir tilveru sinni við eld og ísa — var að vernda sérstæða menningu og frelsi, sem var dýrmætara en lífið sjálft, er nú að svíkja öll sín fornu heit og fleygja sér út í hringiðu heimsku og flysjungsháttar. Hver er sá, að hon- um verði ekki við þennan lestur hugsað um alla þá upplausn, spillingu, lygar og blekkingar, sem eru ntegineinkennin á þjóðfélagsháttum vorum nú á dögum. Hér skal þetta ekki rakið, en aðeins á það bent, hvert stefnir, og að hinni islenzku þjóð er þess ekki siður þörf en öðrum stærri þjóðum, að gæta að því hvert stefnir. íslenzka þjóðin á ekkert annað en manndóm þegnanna til að reisa ríki sitt á. Hún á hvorki þá mannmergð né auðæfi sem stórþjóðirnav byggja tilveru sína á og kalla traustan grunn. Ef vér týnum þeim eina auði sem vér eigum, höfum vér glatað öllu. Einnig hér á íslandi er mál að rísa af svefni andvaraleysis. En það er hægara sagt en gert, þegar hin mikla „sinfónía": heimskuvísindi skólanna, blekkinga- og lyga- starfsemi dagblaðanna, sofandaháttur og úr- ræðaleysi forustumannanna, skipulögð eyðilegg- ingarstarfsemi stjórnmálaflokkanna, sem aldrei líta á hag alþjóðar, heldur aðeins eigin hags- muni, flokkshagsmuni eða þörf erlendra ríkja, sem þeir þjóna, glymur látlaust í eyrum fólks- ins og rænir það allri heilbrigðri hugsun. Einasta von íslands er einnig öflug, trúarleg vakning, sem sviptir burtu öllu lygaskvaldrinu og blekkingunni, sem nú lokar augum þjóðar- innar. ]. G. DAGRENNING 41

x

Dagrenning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.