Morgunblaðið - 17.03.2015, Síða 2

Morgunblaðið - 17.03.2015, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS 2015 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is „Línum og borðum verður fjölgað og gerðar ýmsar ráðstafanir til að straumlínulaga þetta til að geta höndlað sam- bærilegar að- stæður,“ segir Þórhallur Ólafs- son, fram- kvæmdastjóri Neyðarlínunnar, en fundað var í gærmorgun um það hvers vegna truflanir urðu í símkerfi Neyð- arlínunnar á laugardagsmorgun þegar ofsaveð- ur gekk yfir landið. „Kerfið verður síðan álagspróf- að með símafélögunum til þess að sjá hvar veikleikar liggja og hvað hægt sé að gera til að bregðast við því,“ segir hann. Fimm hundruð símtöl í einu „Augu okkar urðu eins og undirskálar á fundinum í morgun [gærmorgun] þegar við heyrðum fjöldann á þeim símtölum sem voru í gangi í einu. Það voru yfir fimm hundruð símtöl sem lágu í kerfinu á sama tíma. Við erum með sjö borð og það eru fjörutíu og fimm línur inn á Neyðarlínuna. Biðin var því löng hjá sumum og aðrir gáfust hreinlega upp á að bíða,“ segir hann. „Við vitum um eitt tilvik þar sem einstaklingur reyndi fjörutíu sinnum að hringja í neyðarlínuna en fékk alltaf sama svarið, að númerið væri ekki til. Þessi skila- boð sköpuðu því álag. Þau bárust á kerfið en ekki til okkar á ein- hvern undarlegan hátt,“ bætir Þórhallur við. Hið dularfyllsta mál Hann segir þó ekki alveg ljóst hvers vegna sumir hafi fengið þau skilaboð þegar hringt var í Neyðarlínuna að númerið væri ekki til. „Þetta er hið dularfyllsta mál. Það er enn óútkljáð hvernig ná- kvæmlega stóð á þessu. Ég er þó búinn að vera frá því klukkan hálfátta í morgun [gærmorgun] á fundum og við vitum núna hvern- ig á að koma í veg fyrir þetta,“ segir Þórhallur og bætir við: „Menn lifðu þetta af en það var stutt í hjartaáfallið.“  Framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar segir ekki ljóst hví kerfið hafi brugðist í óveðrinu en að línum verði fjölgað Hyggjast fjölga neyðarlínum Þórhallur Ólafsson Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Af því berast fréttir að turnbyggingum við Höfðatorg fari fjölgandi og undan því verður ekki lengur vikist að slökkt verði á vita Sjómannaskólans.“ Þannig segir með- al annars í minnisblaði Gísla Gíslasonar, hafnarstjóra Faxaflóahafna, um vitamál, sem lagt var fram á síðasta fundi stjórnar Faxaflóahafna. Er það vilji hafnarstjórnar að ráðist verði í að byggja nýjan innsiglingarvita við Sæ- braut rétt austan við Höfða. Gæti verið kominn upp fyrir lok ársins Hafnarstjóri sendi í gær erindi til borgarráðs um samstarf við borgina um byggingu nýs innsiglingarvita. Gera þarf breytingu á deiliskipulagi og tillaga Faxaflóa- hafna sf. er að borgin annist gerð undirstöðu vitans og pall í kringum hann, sem myndi jafnframt nýtast sem út- sýnispallur eða áningarstaður á gönguleiðinni með sjón- um. Faxaflóahafnir sæju hins vegar um vitahúsið og ljósabúnað og áætlar Gísli að sá kostnaður yrði 20-25 milljónir. Hann segir að verði gengið í þetta verkefni á næstunni ætti vitinn að geta verið kominn upp fyrir árs- lok. Gísli segir að háhýsi í Túnunum skyggi á geisla vit- ans í Sjómannaskólanum auk þess sem hann standi orðið í miðri borg, þar sem mikið sé af truflandi ljósum.Vissu- lega sé saga vitans í Sjómannaskólanum orðin löng og merkileg, en hann þjóni hins vegar ekki lengur eins vel og áður hlutverki sínu sem innsiglingarviti og siglinga- merki. Óhjákvæmilegt sé að siglingaleiðin inn í Reykja- víkurhöfn uppfylli allar eðlilegar öryggiskröfur. Gísli segir að tillagan geri ráð fyrir að vitinn verði með sama útliti og innsiglingarvitarnir í Gömlu höfninni. Þeir hafa verið með sama útliti frá byggingu hafnarinnar á árunum 1913-1917 auk þess sem viti á Skarfagarði í Sundahöfn er með sama sniði. Innsiglingarviti verði byggður við Sæbraut  Ekki undan því vikist að slökkt verði á vita Sjómannaskólans Tölvumynd/Faxaflóahafnir Útsýni Vitinn á að standa við Sæbraut, austan við Höfða, og við hann er gert ráð fyrir áningarstað á gönguleiðinni. Síðustu mánuði hefur verið unnið að umferðarkönnun í Örfirisey af hálfu samgöngustjóra á umhverfis- og skipulagssviði borgarinnar. Gísli Gíslason hafnarstjóri segir að umferð hafi aukist nokkuð og samsetning hennar breyst á þessu svæði með tilkomu nýrrar starfsemi. Þegar úrvinnslu könnunarinnar verður lok- ið segir Gísli að taka þurfi afstöðu til gatnagerðar og samgöngumála almennt á svæðinu og verður það skoðað í samvinnu við borgina. Á fundi hafnarstjórnar í síðustu viku óskaði Júlíus Vífill Ingvarsson eftir greinargerð um öryggi vegfar- enda á hafnarsvæðinu. „Mikill fjöldi leggur leið sína um hafnarsvæðið við aðstæður sem mörgum eru ókunnar. Og mun fleiri koma nú í skammdeginu en komið hafa hingað til á þeim árstíma og eykur það á hættu á slysum,“ segir í fundargerð hafnarstjórnar. Þá var á fundinum samþykkt tillaga um að gera út- tekt á ferlimálum á hafnarsvæðum Faxaflóahafna sf. Breytingar á umferð KÖNNUN Í ÖRFIRISEY Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Hvassasta vindhviðan í óveðrinu á laugardag mældist 73,5 metrar á sekúndu í veðurstöð á Skarðsheiði. Heggur það nærri vindhviðumeti sem sett var á Gagnheiði árið 1995 þegar vindhviða þar mældist 74,5 metrar á sekúndu. Meðalvindhraði mældist víða um land á við vindhraða sem fellur inn- an marka 1. stigs fellibyls en felli- byljir eru alla jafna flokkaðir í fimm stig eftir alvarleika þeirra. Sam- kvæmt upplýsingum frá Veðurstof- unni sýndu mælar annaðhvort ofsa- veður, sem jafngildir 11 vindstigum eða 28,5-32,6 metrum á sekúndu, eða fárviðri þar sem meðalvindhraði á veðurathugunarstöðvunum var yf- ir 32,7 metrar á sekúndu. „Það mældist vindhraði yfir 32,7 metrum á sekúndu á þónokkrum stöðum á landinu, aðallega til fjalla,“ segir Teitur Arason, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. „Þetta fór upp í fellibylsstyrk, vindurinn í þessari lægð,“ segir Teitur. Einhver göt í skýjunum Samkvæmt spá Veðurstofu Ís- lands er gert ráð fyrir rólegheita- veðri á föstudag, þegar von er á sól- myrkva. „Fyrir hádegi á föstudag verða flákaskýjabreiður sem munu hylja himininn að mestu en ég á von á því að sjást muni á milli á ein- hverjum stöðum. Maður ímyndar sér að það verði helst á Vesturlandi eða norðausturfjórðungnum. Þetta hefði getað verið miklu verra,“ segir Teit- ur. Meðalvindhraði fór víða yfir fellibyls- styrk á laugardag  Vindhviða hjó nærri Íslandsmeti  Heppnir gætu séð sólmyrkvann Morgunblaðið/Golli Óveður Björgunarsveitarmenn höfðu í nógu að snúast. Vindur og sólmyrkvi » Gífurlegur vindhraði mæld- ist á laugardag í óveðrinu sem fór yfir landið. » Meðalvindhraði mældist víða á við fellibyl. » Vindhviða á Skarðsheiði hjó nærri vindhviðumeti. Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra, lögreglustjórinn á Austur- landi, lögreglustjórinn á Suður- landi og ríkislögreglustjóri hafa ákveðið að gera breytingar á lok- unarsvæðinu umhverfis Holuhraun. Nýja lokunarsvæðið nær 20 metra út frá norðurjaðri nýja hraunsins, að Dyngjujökli í suðri, að farvegi Jökulsár á Fjöllum í austri og að vestustu kvíslum Jök- ulsár á Fjöllum í vestri. Ákvörðunin er tekin út frá hættumati Veðurstofu Íslands þar sem fjallað er um hættur á svæð- inu. Þar leggur Veðurstofan einnig til að farið verði í mótvægis- aðgerðir til að auka öryggi almenn- ings í nágrenni hins nýja lokunar- svæðis. Lögreglan, í samstarfi við Vatna- jökulsþjóðgarð, verður með við- veru á svæðinu til þess að gæta ör- yggis og vinna náið með vakt Veðurstofunnar. Þá er stefnt að því að koma upp frekari mælibúnaði sem tengdur er vöktunarkerfi Veð- urstofunnar og auka þannig vöktun á svæðinu svo gefa megi út viðvar- anir verði talin ástæða til. Minnka lokunarsvæði við Holuhraun Rúmlega 200 tjónstilkynningar höfðu í gær borist trygginga- félögunum Sjóvá og VÍS vegna tjóns sem varð í óveðrinu sem gekk yfir landið um helgina. Þar af bárust á milli 160 og 170 á borð Sjóvár vegna fasteigna og svo var um tugur tilkynninga vegna bíla, vagna, kerra, hjól- hýsa og þess háttar. Samkvæmt upplýsingum tryggingafélaganna er þó ekki enn tímabært að meta kostn- aðinn við tjónið. Ljóst er að viðlagatrygging kemur ekki að málum þar sem óveður, sem er samkvæmt skilgreiningu vind- hraði upp á 28,5 metra á sek- úndu, hefur hingað til ekki flokkast sem náttúruhamfarir samkvæmt upplýsingum frá tjónadeild Sjóvár. Yfir tvö hundruð tilkynningar VIÐLAGATRYGGINGIN TEKUR EKKI Á ÓVEÐRINU UM HELGINA Morgunblaðið/Golli Tjón Óveður var á landinu um helgina og varð tjónið sumstaðar mjög mikið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.