Morgunblaðið - 17.03.2015, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 17.03.2015, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS 2015 ✝ Helgi BaldurJóhannsson fæddist á Akranesi 26. maí 1984. Hann lést á Sjúkrahúsi Akraness 8. mars 2015. Foreldrar hans eru þau Guðný Helgadóttir og Jó- hann Þór Bald- ursson. Hafsteinn Hrafn Daníelsson, núverandi maður Guðnýjar, gekk Helga Baldri í föðurstað frá tveggja ára aldri. Núver- andi kona Jóhanns Þórs og stjúpmóðir Helga Baldurs er Ásta Kristjánsdóttir. Systkini hans eru þau Daníela Hadda, Markús Hrafn, Kristján Rafn, Ruth og Birta. Barnsmóðir Helga er Ragnheiður Birg- isdóttir og eiga þau saman soninn Hilmar Þór. Kær- asta Helga Baldurs er Jónína Íris Val- geirsdóttir. Helgi Baldur lauk grunnskóla- prófi frá Heið- arskóla í Hval- fjarðarsveit. Hann ólst upp á Geld- ingaá í sömu sveit. Hann átti heima á Akranesi síðustu æviárin. Helgi Baldur starfaði lengi hjá Elkem á Grundartanga og hjá fósturföður sínum, Haf- steini Hrafni, verktaka. Útför Helga Baldurs fer fram frá Akraneskirkju í dag, 17. mars 2015, og hefst athöfn- in kl. 14. Elsku vinur, þín er sárt sakn- að, þú komst eins og ljósgeisli inn í líf okkar á öðru aldursári þínu. Margar góðar minningar vakna þegar sest er niður og skrifuð lokaorð til þín; eins og fyrsta flugferðin þín þegar við fórum saman til Benidorm, þú níu ára og allt nýtt og spennandi, eins þegar þú tróðst upp 11 ára gamall í 50 ára afmælum okkar, spilaðir á gítarinn og söngst „Það er gott að elska“ og fleiri Bubbalög. Þú varst ávallt jákvæður og brosandi þótt lífið hafi oft verið þér erfitt, það sýndi sig best núna síðustu vikur, alltaf já- kvæður og þakklátur fyrir allt sem reynt var að gera fyrir þig. Sagðir við mig: „Amma, það kostar ekkert að vera kurteis.“ Við kveðjum þig með söknuði, elsku Helgi Baldur okkar, með fjölskyldukveðjunni „I love you“. Farðu í friði góði vinur þér fylgir hugsun góð og hlý. Sama hvað á okkur dynur aftur hittumst við á ný. Úr hjarta mínu hverfur treginn er ég hugsa um hlátur þinn. Bros þitt veitti birtu á veginn betri um stund varð heimurinn. (Magnús Eiríksson) Afi Daníel og amma Nína. Elsku ástin mín, takk fyrir að fullkomna líf mitt. Ég er svo þakklát fyrir að hafa kynnst þér og Hilmari og hafa ykkur í lífi okkar Emilíu. Eftir að þú ert farinn og maður lítur til baka á allar stundirnar okkar saman, þá sér maður hvað þú lifðir síð- asta árinu þínu hratt. Ég er svo glöð og þakklát fyrir þær stund- ir. Þú gerðir allt fyrir mig, alveg sama hvað ég bað þig um, þú varst alltaf til í það. Árið 2014 var tekið með trompi, við gerð- um allt sem við vildum. Við fund- um okkur áhugamál saman, að ganga á fjöll, og vorum við mjög dugleg í því. Toppurinn á 2014 var afmælið á Galtalæk. Þegar allar fjöl- skyldur mættust og skemmtu sér fram á nótt, þú spilaðir á gít- arinn og við sungum. Það mun enginn gleyma þessu kvöldi. 23. júní síðastliðinn var ég að fara hlaupa í miðnæturhlaupi, ég fann engan til að hlaupa með mér en spurði þig í gríni hvort þú værir til í að hlaupa 10 km með mér þennan dag, þá fékk ég svarið: „Já, af hverju ekki?“ Við hlupum saman 10 km á góðum tíma og síðustu 500 metrana héldumst við í hendur í gegnum marklínuna. Það var fullkomið. Við fórum sólarlandaferð saman og var sú ferð mjög góð, þar vorum við að sleikja sólina, fórum á nautaat, í kúrekagarð og nutum þess að vera til. Ég gæti skrifað endalaust um okkur. Ár- ið 2015 er búið að vera erfitt fyr- ir alla og sérstaklega þig. Þú barðist eins og hetja. Hlátur þinn, brosið þitt og sprellið í þér mun lifa í okkur öllum. Þú fékkst að fara hamingjusamur. Eins og við endum öll okkar samtöl: Ég elska þig endalaust. Þínar að eilífu, Jónína og Emilía. Elsku Helgi Baldur var tek- inn frá okkur allt of snemma. Fyrsta sem kemur upp í huga mér er þakklæti. Ég er þakklát fyrir öll árin okkar saman. Ég er þakklát fyrir allt sem hann kenndi mér. Ég er þakklát fyrir síðustu vikur. Ég er þakklát fyrir allt sem við ræddum saman um nýlega. Ég er þakklát fyrir að við gát- um haldið afmælið hans Hilmars saman. Ég er þakklát fyrir hversu þakklátur hann var mér. Ég er þakklát fyrir síðustu stundina þeirra Hilmars saman. Ég er þakklát fyrir síðustu stundina sem ég átti með hon- um. En mest af öllu er ég þakklát fyrir hann Hilmar Þór okkar sem við Ómar munum hugsa vel um fyrir þig. Hvíldu í friði elsku Helgi Baldur. Ragnheiður. Elsku besti frændi og vinur. Það er óraunverulegt að hugsa til þess að þú sért ekki hérna til þess að gleðja okkur með kæti þinni og þínum smitandi hlátri. Mig langar ekki til þess að skrifa um hversu erfitt það var að fá fregnir af veikindum þínum, hversu erfitt það var að sjá þig þjást eða hversu ósanngjarnt fráfall þitt er. Ég vill heldur minnast persónuleika þíns og samverustunda okkar því ég held að þú myndir vilja að ég gerði það. Við erum búnir að vera bestu vinir alveg frá því að þú opnaðir augun í fyrsta sinn fyrir 30 árum og þrátt fyrir að leiðir okkar hafi ekki alltaf legið í sömu átt síðustu ár gátum við alltaf leitað hvor til annars. Þeg- ar ég lít til baka get ég ekki ann- að en fyllst þakklæti yfir að hafa þekkt þig, brosað yfir allri vit- leysunni sem okkur datt í hug og ekki síst fyllst sorg yfir því að geta ekki bætt við heimskupörin og rifjað þau upp með þér í góðra vina hópi. Þú hefur alla tíð verið algjör gleðigjafi og hlátursköstin voru mörg sem við tókum með Gumma. Þú varst svo mörgum kostum gæddur, einn af þeim var að það var ómögulegt að vera fúll út í þig. Mér er minn- isstætt þegar við fórum í útilegu saman. Við fórum á bílnum mín- um og tókum ekkert tjald með okkur, við ætluðum bara að sofa í bílnum enda varst þú á helg- arvakt og áttir að vera sóttur um morguninn á afleggjara tjald- stæðisins. Mér fannst óþægilegt að sofa í bílnum og færði mig yfir í tjald hjá vinum. Um morguninn hafðir þú hins vegar sofið yfir þig og tekið bílinn minn til vinnu. Versta var að ég hafði háttað mig í bílnum og stóð þ.a.l. á nær- buxunum, símalaus á tjaldstæð- inu með ekkert far til baka. Ég þurfti því að labba í gegnum allt tjaldstæðið með svefnpokann vafinn um mittið til þess að hringja hjá staðarhaldaranum. Eftir þetta ætlaði ég aldeilis að skamma þig en þú hafðir alltaf svo góð tök á mér og þurftir bara nokkur orð til þess að ná mér niður. Þegar við vorum pollar vorum við einstaklega uppátækjasamir í prakkarastrikunum og voru engin grið gefin þó að um ætt- ingja væri að ræða, ég vil nota tækifærið og biðja ömmu Nínu og afa Danna innilegrar afsök- unar fyrir hönd okkar beggja fyrir að hafa „tekið til“ í garð- inum þeirra. Einnig man ég hvað okkur þótti gaman að gista hvor hjá öðrum, vaka eins lengi og við gátum og stundum stálumst við til að fara út um nóttina þegar allir voru sofnaðir. Það endaði tvisvar sinnum með því að lög- reglan kom okkur aftur í rúmið, foreldrum okkar til mikillar ánægju. Ég get endalaust haldið áfram að rifja upp skemmtilegar sögur af okkur frændunum. Skemmti- legar og fyndnar stundir frá barnæsku, hljómsveitaræfing- um, veiðitúrum og djammi. Þessi augnablik eiga eftir að vera mér minnisstæð alla tíð. Ég vil þakka þér fyrir tímann sem við áttum saman og er feginn því að við komum af tilfinningasamri fjöl- skyldu og vorum óhræddir við að tjá væntumþykju hvor í annars garð þegar tækifæri gafst til. Takk fyrir að hafa verið til, lit- ríkari karakter er ekki hægt að finna. Ég mun sakna þín og elska alla tíð. Þinn frændi, Maron Baldursson. Elsku Helgi okkar, við trúum því ekki að þú sért farinn frá okkur, við minnumst þín með þinn glaðlega hlátur og brosið þitt. Við erum svo þakklát fyrir að hafa kynnst þér og fengið að fylgjast með þér, hvað þú ert bú- inn að vera hamingjusamur. Þú gerðir Jónínu og Emilíu svo hamingjusamar og viljum við þakka þér fyrir að fylgjast svona vel með þeim. Þú munt alltaf eiga stað í hjarta okkar og við elskum þig. Megi guð gefa Hilm- ari Þór og fjölskyldu þinni styrk á þessum erfiða tíma. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Sigríður S. (Didda), Valgeir og fjölskylda. Við minnumst Helga Baldurs. Hann kvaddi okkur of fljótt en góðar minningar sitja eftir í hjörtum okkar. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Við lofum að halda vel utan um Hilmar Þór fyrir þig. Hvíldu í friði. Árdís og Andri Jón. Ég kynntist Helga Baldri þegar hann kom í litla bekkinn okkar í Heiðarskóla. Helgi féll vel inn í hópinn í bekknum og skólanum, sennilegast vegna þess að innst inni var hann svei- talúði eins og við hin. Það var klárlega mikill styrkur fyrir okkur að fá tónlistarmann í hóp- inn, hann að minnsta kosti hjálp- aði okkur að lúkka þokkalega vel þegar við sungum danskt lag eft- ir Kim Larsen á skólaskemmt- un. Með Badda á gítarnum leit þetta betur út hjá okkur og hljómaði bara nokkuð vel, held ég. Svo minnir mig að við höfum tekið fleiri slagara á skemmtun- um með Helga í frontinum, sennilega það næsta sem ég kemst því að vera í hljómsveit, næstum eins og að vera með Adda Fannari í hljómsveit. Helgi nældi sér í sætustu stelpuna í bekknum og hann fékk pínulítið að heyra það frá okkur strákunum þegar hann minnkaði hangsið með okkur. 2005 eignuðust þau strák en sama ár eignaðist ég minn gutta. Við Helgi ræddum stundum pabbahlutverkið og fylgdumst hvor með öðrum í þeim málum í nálægð og úr fjarlægð. Það er á kristaltæru að einn daginn verð ég skrýtni gamli karlinn í augum Hilmars og tek spjallið við hann og deili með honum einhverjum af þeim góðu sögum sem ég á af pabba hans. Við Helgi unnum lengi á sama stað og þar skapaðist ný tenging og ég kynntist Helga á nýjan hátt. Ég og fleiri vinnufélagar eigum magnaðar sögur og minn- ingar af honum frá Grundar- tanga, en samnefnari fyrir þær allar er að hann var alltaf kátur og til í sprellið. Í baðhúsinu í byrjun eða lok vinnudags var af- skaplega gaman og hressandi að rekast á hann, það byrjaði eða endaði daginn vel fyrir mann. Helgi var afskaplega skemmtilegur vinur og hafði þann dýrmæta eiginleika að koma manni í gott skap. Ég mun minnast hans með gleði og hressleika, hann mun halda áfram að koma mér í gott skap þótt hann sé farinn. Hilmari Þór, Hafsteini, Guð- nýju og fjölskyldu Helga vil ég votta mína dýpstu samúð. Hvíl í friði vinur. Benedikt Steinar Benónýsson. Strax og Helgi kom í Heiðar- skóla haustið 1996 urðum við miklir vinir, við vorum líka ná- grannar í sveitinni og hittumst oft. Við áttum vel saman hvað varðar tónlistarsmekk og vorum alltaf með eitthvað á fóninum þegar við hittumst. Helgi var líka mjög góður á gítar og þurfti hann ekki annað en að heyra lag einu sinni í útvarpinu þá hljóp hann, sótti gítarinn og spilaði það óaðfinnanlega. Það var gaman að fylgjast með honum spila. Sumarið þegar við vorum nýorðnir 15 ára var Helgi mikið heima á Bakka. Hann hafði töluverðan áhuga á hestum á þessum tíma og náði hann að smita mig af hesta- mennskunni. Þetta sumar keyptum við Helgi saman bíl, það var forláta Skoda með vélinni aftur í og ste- reókassettutæki. Bílinn fengum við fyrir kassa af bjór og eftir þetta var mikill reykur á vegum Melasveitarinn- ar hvort sem það var vegna ryks af veginum eða af því það sauð alltaf á bílnum í öllum hama- ganginum. Við vorum töffarar þá eins og Helgi var alla tíð og toppuðum við þetta ár svo með því að fara til Reykjavíkur og fá okkur tattú hjá flúrara sem drakk bjór á meðan hann blekaði okkur drengina. Við hjálpuðum mikið til við bústörfin í sveitinni, tókum í nef- ið og stálumst í bjór hjá foreldr- um okkar. Það var alltaf mjög stutt í glens og grín hjá okkur en svo komst ég að því seinna að það var líka vel hægt að ná Helga í alvarlegar samræður. En svo eftir grunnskóla fórum við Helgi svolítið hvor í sína átt- ina eins og oft gerist, við hitt- umst þó oft og var hann alltaf hress og brosandi. Árið 2011 byrja ég að vinna hjá sama fyrirtæki og Helgi hafði unnið hjá í nokkur ár, við vorum reyndar hvor á sinni vaktinni þar til 2012 en þá var hann færður á sömu vakt og ég. Það var gaman að fá hann til okkar og lyfti hann heldur betur upp fjörinu á vaktinni, alltaf hress og með frábæra frasa eins og t.d. „pikkanáenni“, sem er frægur frasi innan Elkem. Það hafði heldur ekki breyst að hann vildi hafa tónlist í gangi á öllum tímum sólarhringsins. Það var gott að vinna með Helga og ef það var eitthvert vesen í gangi hjá manni var hann alltaf fyrstur á staðinn til að hjálpa. Helgi átti það til að ræða við mig um strákinn sinn hann Hilmar, það skein af honum stoltið þegar hann talaði um hann og það er deginum ljósara að hann elskaði hann út í eitt. Í september 2014 fór Helgi svo í aðra vinnu. Ég hitti hann af og til eftir það og var svo heppinn að hitta hann aðeins um tveimur vikum áður en hann fór frá okkur, þá var hann svo ótrúlega brattur að ég ætlaði varla að trúa því og það var stutt í brosið. Það er augljóst að hann var mikill baráttumaður og hetja allt til enda. Það eru forréttindi að hafa fengið að kynnast þér og þekkja Helgi minn og svo sárt að missa þig svona snemma. Þinn vinur, Árni Geir. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut (Valdimar Briem) Hvíldu í friði elsku vinur. F.h. árgangs ’84 Heiðarskóla, Sigurbjörn Gíslason. Helgi Baldur Jóhannsson HINSTA KVEÐJA Elsku Helgi Baldur, mikið er sárt að horfa á eft- ir þér. Illvígur sjúkdómur sigraði að lokum og á mað- ur erfitt með að sætta sig við að ungur maður í blóma lífsins skuli vera tekinn í burtu frá ástvinum sínum. Við þökkum þér fyrir sam- veruna og biðjum góðan Guð að blessa og styrkja alla ástvini þína. Er sárasta sorg okkur mætir og söknuður huga vorn grætir þá líður sem leiftur úr skýjum ljósgeisli af minningum hlýjum. (H.J.H.) Hvíldu í friði kæri vinur. Anna Lilja, Engilbert (Berti) og fjölskylda. Ástkær systir okkar og frænka, GÍSLÍNA SIGURBJÖRG KAUFFMAN, Lorain, Ohio, lést fimmtudaginn 12. mars. Jarðarförin hefur farið fram. . María J. Guðmundsdóttir, Brynjólfur Guðmundsson og fjölskyldur. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUNNHILDUR BERGMANN BENEDIKTSDÓTTIR, dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, lést fimmtudaginn 12. mars. Jarðarförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. . Ómar Bergmann Lárusson, Valgerður Olga Lárusdóttir, Bjarni E. Gunnarsson, Benedikt Gunnar Lárusson, Guðbjörg Baldursdóttir, Eðvarð Rúnar Lárusson, barnabörn og barnabarnabarn. Okkar ástkæra, ANNA BJÖRG SVEINSDÓTTIR, Valdastöðum, Kjós, lést föstudaginn 13. mars á Landspítalanum við Hringbraut. . Ólafur Helgi Ólafsson, Þórdís Ólafsdóttir, Ólafur Geir Ólafsson, Sigrún Ólafsdóttir, Matti Kallio, Eva Þórhildur Kallio, Sveinn Jóhannsson, Geirlaug Sveinsdóttir, Jóhann Sveinsson, Hafdís Guðmundsdóttir, Bjarni Ágúst Sveinsson, Ólafur Þór Ólafsson, Þórdís Ólafsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.