Morgunblaðið - 17.03.2015, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 17.03.2015, Blaðsíða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS 2015 Frægð „Les Six“, sexmenn-ingahópsins franska fránýklassísk-postimpress-jónískum fyrri hluta 20. aldar, virðist hvað íslenzkan flutn- ing varðar orðum aukin. Alltjent hefur aðeins tvö verk hans borið fyrir mín starfseyru undanfarin 20 ár – Pacific 231 eftir Honegger (marz 2005) og tríó eftir Tailleferre (jan. 2008). Var því vissulega kom- inn tími til nánari kynna sl. sunnu- dag, enda varð aðsóknin til marks um það. Kannski bætti úr skák á yfir- standandi veðravítavetri að tónleik- arnir kváðu að sögn auglýstir sem ,skemmtitónleikar‘. Hvað sem hæft er í því, þá stóð hitt heima að verkin voru undantekningarlaust hin ljúf- ustu undir hlust og oft það sprikl- andi af gallískum gáska að ríflegur heildartíminn (nærri 2½ klst.) leið hjá sem miðevrópskur sunnanbyr. Hafi viðburðurinn verið styrktur af franska sendiráðinu, líkt og upp- hafsávarp sendiherrans bar með sér, þá féll það fé í frjóan svörð. Eina eiginlega samstarfsverk Sexmenninga, L’Album des Six [11’; ekki tímasett í tónskrá en frá stofn- ári hópsins, 1920] var fyrst á skrá; sex stutt píanóverk eftir hvern sinn félaga og snöfurlega leikin af Ástríði Aldísi Sigurðardóttur. Þekktasta stykkið var nr. 5, Vals Poulencs – kannski full hraðskreiður í túlkun fyrir smáatriðin. Georges Auric átti þá píanósex- tett frá 1924 um Marlborough mar- skálk úr Spænska erfðastríðinu [12’]. En þó maður biði árangurs- laust eftir þekkta flökkuþjóðlaginu sem við hann er kennt (og Björn Th. Björnsson kynnti eftirminnilega í „Á hljóðbergi“í RÚV á 7. áratug), þá gutlaði víða á gáska í þáttunum fimm – og tærri ómfegurð í nr. 4, Le haut de la Tour. Næst kom að 11 örstuttum þátt- um úr „Skepnubálki“ [La Bestiaire, 12’] Louis Durey fyrir kammersveit frá 1919/58 við satírísk ljóð Apoll- inaires er Bergþór Pálsson söng með virkt, þótt honum tækist betur upp í Poulenc-verkinu eftir hlé. Síðan var þríþættur Concertino fyrir píanó og hljómsveit [12’] frá 1924 eftir hinn svissneska Arthur Honegger þar sem Anna Guðný Guðmundsdóttir sá um vandaðfinn- anlegan en þó frekar tilþrifalítinn einleik. Honegger reyndist óm- stríðasti höfundur kvöldsins, en að mínu viti líka langdregnastur – þrátt fyrir skamma tímalengd. Seinni hálfleikur hófst með kostu- legu sexþættu kammersveitarverki eftir Francis Poulenc frá 1932 við ljóð eftir Max Jacob, La Bal masqué eða Grímudansleik [18’]. Kýldi þar Bergþór á húmorinn með þvílíkum krafti og snerpu á milli ósunginna kafla að skegg námu að hrista og skör að dýja við frussfreyðandi hljómsveitarleik. Sennilega há- punktur kvöldsins. Germaine Tailleferre náði aðeins að mynda þokkafulla milliandrá, sumpart á vængjum nýbarokks, með síðbúinni Sinfóníettu sinni [14’] frá 1974 fyrir trompet, pákur og strengjakvintett (raunar skipaðan 9 strengjum) við prýðilegan einleik Eiríks Arnar Pálssonar áður en bullsjóðandi ragtimeskotin kjöt- kveðjumúsík Dariusar Milhauds, Le Boeuf sur la toit [19’] frá 1920 keyrði allt í lokabotn undir mark- vissri stjórn Mehmarzadehs svo stundum mætti halda sig staddan í rauðluktahverfi Storyvilles vestur í New Orleans. Sannkallað fjörefna- fóður í tónum talið. Fjörefnafóður Sexmenninga Morgunblaðið/Golli Á æfingu Kammersveit Reykjavíkur í Hörpu föstudaginn sl. Í forgrunni eru Ástríður Alda Sigurðardóttir og Pejman Memarzadeh. Norðurljós í Hörpu Kammertónleikar bbbmn Les Six: L’Album des Six. Auric: Marl- bourough s‘en va t’en Guerre. Durey: Þættir úr Le Bestiaire. Honegger: Con- certino fyrir píanó og hljómsveit. Taille- ferre: Sinfonietta fyrir trompet, pákur og strengjakvintett. Poulenc: Le Bal masqué. Milhaud: Le Boeuf sur le Toit. Bergþór Pálsson barýton, Ástríður A. Sigurðardóttir og Anna G. Guðmunds- dóttir píanó ásamt Kammersveit Reykjavíkur. Stjórnandi: Pejman Mem- arzadeh. Sunnudaginn 15.3. kl. 17. RÍKARÐUR Ö. PÁLSSON TÓNLIST AF TÍSKU Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is Reykjavík Fashion Festival,hin árlega tískuhelgiReykjavíkur, var haldin í sjötta sinn um nýliðna helgi í Norð- urljósasal Hörpu. RFF hefur vaxið fiskur um hrygg jafnt og þétt og 2015 árgangurinn var í einu orði sagt geysiþéttur. Undirritaður hafði ekki tök á að sitja allar sex sýningarnar í ár en náði fjórum þeirra og er enn að kinka kolli með sjálfum sér yfir því hversu vel tókst til. Þetta var vel að verki staðið. Á föstudagskvöldið var blés JÖR, undir forsæti Guðmundar Jör- undssonar að vanda, til sýningar undir yfirskriftinni „Dreizehn“ sem var vel til fundið enda bar sýning- arkvöldið upp á föstudaginn þrett- ánda. Eins og vant er gerir Guð- mundur lítið af því að sýna á sér mjúku hliðina en gerði þeim mun meira af hreinum töffaraskap. Drei- zehn var myndarleg lína, taldi alls 32 innkomur og þrátt fyrir að JÖR gefi engan afslátt af sinni listrænu sýn var langstærstur hluti línunnar afar klæðilegur og tilbúinn til notkunar. Nokkur „showpiece“ eintök fylgdu með til að krydda stemninguna en ítrekaðar tilvísanir í „goth“ og „bon- dage“ komu ekki í veg fyrir klæði- leikann. Til að undirstrika töffara- skapinn voru módelin öll hin alvarlegustu að sjá, sum jafnvel ógn- vekjandi, og augnmálningin hefði vel passað fyrir Alex DeLarge 21. ald- arinnar. Hvítur, stuttur, tvíhnepptur herrafrakki gladdi augað, skósíður kjóll úr gráu flanneli var framúrskar- andi og allt teinótt sem kom fram á pallinn var mjög vel gert. Feikisterk lína og styrkir JÖR enn í sessi sem leiðandi afl hér á landi. Ég hlakka samt til að sjá hann spreyta sig á lit- um – kannski næst? Á laugardeginum opnaði Ýr Þrastardóttir daginn með sýningu undir merki sínu, Another Creation. Skemmst er frá því að segja að sýn- ingin var hreinasta bomba þar sem hver girndargripurinn rak annan í mergjuðum kokteil af kvenleika og hörku. Gyllt áprentuð mynstur virk- uðu eins og sannkölluð Mídasar- snerting því allt sem skartaði þeim var gullfallegt – bókstaflega og minnti á Metropolis-vélmenni Fritz Lang. Mjög töff að tefla því fram á fatnaði sem dró frábærlega fram kvenlegar línurnar. Ýr takmarkaði litapallettuna við svart, hvítt, gyllt og Tískuhátíð í bæ Morgunblaðið/Styrmir Kári beige en það var aldrei dauður punktur í rennslinu. Svartur og gyllt- ur bomber-jakki yfir hvíta skyrtu og svart pínupils var fáránlega kyn- þokkafull samsetning, hvíti biker- jakkinn með skinnermunum var virkilega flottur og pelsarnir einkar glæsilegir. Annars er óþarfi að tína eitthvað sérstakt til því línan var nánast öll einn stór smellur. Bravó! Aðgengileg Scintilla Linda Björg Árnadóttir fer fyrir Scintilla og átti óvænt og fallegt út- spil; heila línu af klæðilegum og að- gengilegum fatnaði í ljómandi past- ellitum. Sýningin hefði allt eins mátt heita „Marilyn stingur af í helgarferð til Parísar“ því módelin voru öll með aflappaður platínuhárkollur à la frk. Monroe. Linda er eldri en tvævetur í bransanum og reiddi fram línu sem logaði af lágstemmdri munúð án þess að grípa til ódýrra meðala eins og að gera toppana óþarflega flegna. Þokk- inn var áreynslulaus og línan um leið laus við alla tilgerð og það var meist- aralegt stílbragð að spila svart/ hvítröndóttum buxum við past- eltoppa og -peysur. Þrílitu sokkabux- urnar verða líka sumarsmellur, það blasir við. Frábær lína og svo gaman að sjá liti! Magnea Einarsdóttir og Sigrún Halla Unnarsdóttir sýndu undir merkinu Magnea og hjá þeim voru prjónaefni í aðalhlutverki. Það þarf alltaf ákveðið innsæi til að tefla sam- an bláum og appelsínugulum lit og það gerðu þær stöllur afskaplega vel. Hnésíðir prjónakjólar voru hver öðr- um fallegri en mussur, kápur og skokkar voru helst til margir sniðnir í hálfgert „anti-fit“. Dökki samfest- ingurinn með bláu stroffunum var hörkuflottur og það sem þær sýndu úr bláu kaðlaprjóni sem og ljósu, þykku yfirhafnirnar myndu vafalaust rjúka út. Ég er ekki eins sannfærður um indigó-bláu pokamussurnar. Allt í allt frábærlega vel fram- leidd og skemmtileg helgi, öllum til sóma. » Til að undirstrikatöffaraskapinn voru módelin öll hin alvarleg- ustu að sjá, sum jafnvel ógnvekjandi, og augn- málningin hefði passað fyrir Alex DeLarge 21. aldarinnar. Morgunblaðið/Golli Töff Línan Dreizehn frá JÖR var ljónhörð og klæðileg í senn. Morgunblaðið/Styrmir Kári Kvenleiki Scintilla sýndi pastellitaða línu, fulla af aðgengilegum og fal- legum flíkum. Yfirbragðið var í senn afslappað og kynþokkafullt. Bomba Another Creation sýndi frábærlega vel heppnaða línu þar sem hver girndargripurinn rak annan. Þessi mót- orhjólajakki var meðal há- punkta.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.