Morgunblaðið - 17.03.2015, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS 2015
Andríki þykir fjölmiðlar hrifniraf skoðunum eins fyrrverandi
formanns Sjálfstæðisflokks þegar
kemur að ESB-málum. Þegar
heimtað er að núverandi for-
ystumenn láti
undan kröfum
Samfylkingar er
þessi fv. formað-
ur í daglegum
viðtölum:
Skrifi hannblaðagrein
er vitnað í hana í
fréttum. Skrifi
hann á netið er
gerð frétt um
það. Hafi hann ekki skrifað, þá er
hringt í hann. Og alltaf er tekið
fram að hann sé fyrrverandi for-
maður Sjálfstæðisflokksins og fyrr-
verandi forsætisráðherra.
Hann var forsætisráðherra írúmlega eitt ár og lét af for-
mannsembættinu fyrir tæplega ald-
arfjórðungi. Um helgina var Þor-
steinn Pálsson fenginn í umræðu-
þáttinn Sprengisand á Bylgjunni.
Samkvæmt frétt Morgunblaðsins
sagði hann þar að „það væri engin
tilviljun að fylgi Sjálfstæðisflokks-
ins hefði hrunið eftir síðasta lands-
fund hans, þar sem núverandi
stefna hans í Evrópumálum var
samþykkt“. Þessi söngur er ekki
nýr af nálinni, því annar maður,
sem sífellt er í viðtölum þegar reynt
er að þrýsta á Sjálfstæðisflokkinn
að taka upp stefnu Samfylking-
arinnar, Benedikt Jóhannesson,
hefur sungið hann lengi.
Þetta er í raun algerlega ótrúleg-ur málflutningur. Allir eiga að
vita hvað olli fylgishruni Sjálfstæð-
isflokksins í febrúar 2013. Það var
ekki landsfundur flokksins. Nei,
hinn 28. janúar 2013 dæmdi EFTA-
dómstóllinn í Icesave-málinu. Þetta
geta allir séð á gögnum frá Data-
market sem styðjast við kannanir
Capacent.“
Langt seilst í
öngum
STAKSTEINAR
Fylgi Sjálfstæðis-
flokksins.
Veður víða um heim 16.3., kl. 18.00
Reykjavík 2 skúrir
Bolungarvík 2 skýjað
Akureyri 6 skýjað
Nuuk -8 skýjað
Þórshöfn 6 skýjað
Ósló 3 skýjað
Kaupmannahöfn 7 heiðskírt
Stokkhólmur 7 heiðskírt
Helsinki 6 heiðskírt
Lúxemborg 11 heiðskírt
Brussel 10 heiðskírt
Dublin 6 alskýjað
Glasgow 7 léttskýjað
London 8 skýjað
París 12 heiðskírt
Amsterdam 11 heiðskírt
Hamborg 12 heiðskírt
Berlín 11 léttskýjað
Vín 12 skýjað
Moskva 8 heiðskírt
Algarve 15 heiðskírt
Madríd 12 heiðskírt
Barcelona 12 léttskýjað
Mallorca 10 skúrir
Róm 10 skúrir
Aþena 11 léttskýjað
Winnipeg -1 skýjað
Montreal -2 alskýjað
New York 5 léttskýjað
Chicago 16 skýjað
Orlando 26 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
17. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:40 19:34
ÍSAFJÖRÐUR 7:45 19:38
SIGLUFJÖRÐUR 7:28 19:21
DJÚPIVOGUR 7:10 19:03
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Reglum um frádrátt á móti ökutækjastyrk var
breytt í skattmati sem gilti fyrir tekjuárið 2014 og
gilda þær í fyrsta skipti við álagningu 2015. Skúli
Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær, að nýju reglurnar væru
mjög til einföldunar fyrir þá framteljendur, sem
telja fram kostnað á móti ökutækjastyrk, til frá-
dráttar.
„Nú þarf ekki lengur að halda saman kvittunum
vegna kostnaðar sem menn verða fyrir, vegna
eldsneytisnotkunar, hjólbarða, eða viðhalds, held-
ur er frádrátturinn hlutfallslegur miðað við ekinn
kílómetrafjölda í þágu launagreiðanda,“ sagði
Skúli Eggert, „þannig að flestir fá bara inn og út,
það er sama fjárhæð í tekjur og í frádrátt.“
Skúli Eggert bendir fram-
teljendum á að skoða kaflann á
heimasíðu Ríkisskattstjóra
(rsk.is) um ökutækjastyrk.
Eingöngu akstur í þágu
vinnuveitanda
„Fyrir langflesta eru þessar
nýju reglur ívilnandi, en fyrir þá
sem hafa verið að leigja bílana
sína í þágu vinnuveitanda og eru
með gamla bíla sem þarfnast
meira viðhalds en gengur og gerist, þá geta þeir í
einhverjum mæli nýtt meiri frádrátt heldur en gild-
ir fyrir stóra hópinn. Almenna reglan nú er sú að
framteljandi sem nýtur ökutækjastyrks þarf ein-
göngu að tilgreina akstur í þágu vinnuveitenda, þ.e.
kílómetrafjöldann,“ sagði Skúli Eggert.
„Frádrátt á móti ökutækjastyrk má færa sam-
kvæmt sérstökum reglum ef bifreið launþega hef-
ur sannanlega verið notuð vegna aksturs í þágu
vinnuveitanda. Frádrátt má ekki færa á móti öku-
tækjastyrk sem var greiddur vegna ferða laun-
þegans milli heimilis og vinnustaðar eða vegna
annarra nota af bifreiðinni sem teljast til eigin
nota hans. Frádráttur getur ekki verið hærri en
ökutækjastyrkurinn,“ segir orðrétt um ökutækj-
astyrk á heimasíðu RSK.
Frestur til að skila skattframtalinu rennur út
20. mars, eða á miðnætti á föstudag. Hægt er að
sækja um frest til 30. mars.
Skúli Eggert sagði aðspurður að um hádegisbil í
gær hefðu 52.923 framteljendur verið búnir að
skila framtalinu, eða 17,03%. Á sama tíma í fyrra
hefðu 16,05% verið búnir að skila. Skattskilin nú
séu því heldur betri en í fyrra.
Segir reglur um ökutækja-
styrk hafa verið einfaldaðar
Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri segir nýju reglurnar vera ívilnandi
Skúli Eggert
Þórðarson
Faxafeni 14, 108 Reykjavík | Sími 551 6646 | Laura Ashley á Íslandi | Opið virka daga 10-18, laugard. 11-15
Fermingar 2015