Morgunblaðið - 17.03.2015, Page 18
18 FRÉTTIRViðskipti | atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS 2015
Á fallegum og notalegum stað
á 5. hæð Perlunnar
Næg bílastæði
ERFIDRYKKJUR
Perlan • Sími 562 0200 • Fax 562 0207 • perlan@perlan.is
Pantanir
í síma
562 0200
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
BAKSVIÐ
Margrét Kr. Sigurðardóttir
margret@mbl.is
Ökumenn sem keyra um götur
höfuðborgarsvæðisins kvarta undan
slæmum vegum nú þegar snjórinn er
að hverfa. Ein skýringin á öllum hol-
unum gæti verið að malbiksfram-
leiðsla er ekki nema brot af því sem
var þegar mest var. „Líklegt er að
það hafi vantað 50 þúsund tonn af
malbiki á hverju ári 6 ár í röð,“ segir
Sigþór Sigurðsson, forstjóri fyrir-
tækisins Hlaðbær-Colas sem er með
um helmingsmarkaðshlutdeild.
Sigþór tók þátt í umræðum um
framleiðni á síðasta Iðnþingi þar
sem hann sýndi hvaða aðstæður
byggingariðnaðurinn stendur
frammi fyrir í efnahagssveiflum sem
hafa orðið síðustu áratugina.
165 þúsund tonn í 32 þúsund
„Stóra vandamálið í rekstri fyrir-
tækja á Íslandi er þessi gríðarlegi
óstöðugleiki. Við gætum verið með
mikla framleiðni og ekki eftirbátar
annarra þjóða ef við byggjum við
stöðugleika í efnahagsumhverfinu,“
segir Sigþór. Það vantar mikið upp á
að Ísland nái sambærilegri fram-
leiðni og önnur ríki OECD en fram-
leiðnin er mæld sem landsfram-
leiðsla á hverja unna vinnustund.
Hann nefnir sem dæmi um sveiflurn-
ar þegar fyrirtæki hans þurfti að
glíma við 75% samdrátt þegar eft-
irspurnin eftir malbiki hrundi úr því
að vera 165 þúsund tonn þegar best
var og hrapaði niður í 32 þúsund
tonn árið 2010. „Það segir sig sjálft
að það er ekki hægt að aðlaga fyr-
irtækið nógu hratt. Það er ekki hægt
að segja upp 75% af starfsfólkinu til
að halda uppi framleiðninni í þessum
sveiflum. Fyrirtækið er mörg ár að
aðlagast eftir hrun og núna loksins
erum við að rétta úr kútnum aftur.“
Sigþór segir fyrirtækin vera gagn-
rýnd fyrir að halda ekki uppi fram-
leiðni en það sé ómakleg gagnrýni. „Í
þensluskeiðum er hægt að keyra upp
framleiðnina. Það er tiltölulega ein-
falt verkefni þegar mikið er að gera
en þá er hægt að láta fyrirtækin af-
kasta miklu meira. Þau eru að
byggja sig upp í 2-3 ár á meðan
þenslan er að ganga yfir en svo er
bara heilmikið úrlausnarefni að
kljást við þegar niðursveiflurnar
skella á. Þetta er því mikil rússíban-
areið sem fyrirtækin eru í,“ segir
Sigþór og bætir við að þessi mikli
óstöðugleiki sé Akkilesarhæll ís-
lenskra fyrirtækja.
Malbiksframleiðsla hrundi
Vantar líklega 300 þúsund tonn af malbiki á síðustu sex árum að mati forstjóra
Hlaðbæjar-Colas Ókleift að ná góðri framleiðni í miklum efnahagssveiflum
180.000
160.000
140.000
120.000
100.000
80.000
60.000
40.000
20.000
0
Malbiksframleiðsla Hlaðbæjar-Colas fyrir höfuðborgarsvæðið
Heimild: Hlaðbær-Colas
2005 20122006 20132007 20142008 20152009 20162010 20172011
13
3.
50
4
15
6.
70
2
15
5.
70
7
16
4.
93
3
61
.3
23
31
.3
62 4
5.
74
6 57
.5
73
52
.0
42 6
4.
99
2
60
.0
0
0
65
.0
0
0
70
.0
0
0
bláæðalokanir, gláku og sykursýki.
Fyrirtækið hefur þegar sett upp 27
tæki í fjórum heimsálfum.
Árni Þór segir að Kína sé með
átak í gangi í heilbrigðismálum.
„Það eru um 100 milljónir manna
með sykursýki og Kínverjar eru í
öðru sæti á heimsvísu á eftir Ind-
verjum. Við væntum þess að geta
hjálpað í baráttunni við augn-
sjúkdóma,“ segir hann.
Kínverska fyrirtækið SIGM er
600 manna fyrirtæki með dreifingu
á heilbrigðistækjum um allt Kína,
þar á meðal Hong Kong og Macau.
Með samningnum verður bæði sala
og þjónusta á tækjum Oxymap í
höndum starfsmanna SIGM.
Hjá Oxymap starfa 6 manns. Árni
Þór segir að hluti af því að ná samn-
ingnum hafi verið vel heppnuð
kynning á augnrannsóknartækinu
sem fór fram á augnlæknaþingi í
Sjanghæ í byrjun mars.
Oxymap hefur gert umboðssamn-
ing við fyrirtækið SIGM í Kína en
með samningnum opnast mögu-
leikar á frekari sölu augnrannsókn-
artækja til Kína. „Þessi samningur
styrkir stöðu okkar á kínverska
markaðnum og höfum við miklar
væntingar til hans. Við eigum von á
að sala á tækjum eigi eftir að
aukast verulega,“ segir Árni Þór
Árnason, framkvæmdastjóri Oxy-
map.
Oxymap framleiðir tæki til augn-
rannsókna sem mæla súrefnis-
mettun í augnbotni og æðavídd.
Tækin nýtast við augnrannsóknir
og sjúkdómsgreiningu, m.a. varð-
andi hrörnun í augnbotnum,
Selja augnrannsóknartæki til Kína
Oxymap selur tæki í 4 heimsálfum
Undirritun Árni Þór og Zou handsala samninginn í sendiráði Íslands í Peking.
● Félag atvinnurekenda fagnar í álykt-
un útgáfu skýrslu Samkeppniseftirlits-
ins um dagvörumarkaðinn. Félagið vill á
grundvelli hennar beita sér fyrir virku
samtali milli samkeppnisyfirvalda og
heildsala innan sinna vébanda í því
skyni að bregðast við athugasemdum
sem þar koma fram um samskipti
þeirra og dagvöruverslana. Þá tekur
félagið undir það sem kemur fram í
skýrslunni um að ríkisvaldið geti lagt
meira af mörkum til að lækka verð á
dagvöru í landinu.
FA fagnar skýrslu um
dagvörumarkaðinn
● Núverandi stjórn Vodafone (Fjar-
skipta) er sjálfkjörin á aðalfundi fé-
lagsins sem haldinn verður á fimmtu-
daginn. Núverandi stjórnarmenn voru
þeir einu sem buðu sig fram í aðdrag-
anda aðalfundarins. Núverandi stjórn-
arformaður félagsins er Heiðar Már
Guðjónsson og varaformaður er Hildur
Dungal. Ásamt þeim í stjórninni sitja
Vilmundur Jósefsson, Hjörleifur Páls-
son og Anna Guðný Aradóttir.
Engar breytingar verða
á stjórn Vodafone
!!
"#
"!"#
!$$
$
"$
%%
"
!$#
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
"!
$!
""
"$#
$"$$
$
##
%#%
"#!
$#$
"#
$$!
"%
"!
!$
$#!
"
%"
"
! !
$ $!
● DAX-hlutabréfa-
vísitalan í Þýska-
landi rauf í gær
12.000 stiga múr-
inn og hefur vísi-
talan aldrei mælst
hærri. Hlutabréfa-
vísitölur hækkuðu
almennt í Evrópu í
gær, en auk DAX
30-vísitölunnar,
sem hækkaði um 2,24%, fór CAC 40-
vísitalan í Frakklandi upp um 1,01% og
FTSE-vísitalan í Bretlandi hækkaði um
0,94%. Hækkanirnar má rekja til bjart-
sýni vegna magnaðgerða Evrópska
seðlabankans sem hófust í síðustu viku.
Þýska DAX-vísitalan
aldrei mælst hærri
DAX Frá þýsku
kauphöllinni.
STUTTAR FRÉTTIR ...