Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.04.2015, Page 42
„Innblásturinn kom út frá
sýkingum. Ég á bók með
gömlum læknateikningum af
sýkingum því áður en
myndavélin var fundin upp
voru sjúkdómarnir teiknaðir
upp fyrir aðra lækna. Hugmyndin kemur það-
an. Ég var svolítið að vinna með bæði hug-
myndafræði-sýkingu og líkamlega, hvernig í
raun og veru við sýkjumst af hugmyndum
samfélagsins, hvernig það mergsýgst inn í okk-
ur og hugsunarhátt
okkar,“ segir Birkir
Sveinbjörnsson sem
vann með lífræn efni
og bjó til textíl úr kítti
og „sýkti“ þannig efn-
in. „Þá er ég bæði að
vinna með það nátt-
úrulega og það sem
er búið til af samfélag-
inu og blanda því sam-
an. Þetta er svolítið
mikið áhersla á textíl
og síðan er ég með
frekar frekar kynlaus
snið og form.“
Textíll úr kítti
BIRKIR SVEINBJÖRNSSON
Andri Hrafn notaðist við aðal-
hugtökin úr hip-hop sem heimspeki
við gerð línunnar. „Hip-hop sem
heimspeki er nokkurs konar endur-
vinnsla, endurnotkun, klippa, breyta
og remix. Ég
er að nota
þessar að-
ferðir til þess
að búa til
mínar eigin
vinnuaðferð-
ir,“ segir
Andri og
bætir við að
fag-
urfræðilegur
innblástur sé
fenginn úr hi-
fi hljómflutn-
ingstækjum.
ANDRI HRAFN UNNARSON
Innblástur fenginn
úr hi-fi hljóm-
flutningstækjum
42 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.4. 2015
Tíska
Morgunblaðið/Styrmir Kári
TÍSKUSÝNING ÚTSKRIFTARNEMA Í FATAHÖNNUN
Heillandi tísku-
sýning í Hörpu
TÍSKUSÝNING NEMENDA Á BA-STIGI Í FATAHÖNNUN VIÐ LISTAHÁSKÓLA
ÍSLANDS VAR HALDIN SUMARDAGINN FYRSTA Í HÖRPU. NÍU NEMENDUR
SÝNDU ÁHUGAVERÐAR LÍNUR SEM ÞAU HAFA UNNIÐ HÖRÐUM HÖND-
UM AÐ Í VETUR. MIKIL STEMNING VAR Í HÖRPU EINS OG VIÐ MÁ BÚAST
Á SKEMMTILEGUM VIÐBURÐUM SEM ÞESSUM.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Hönnun Ásrúnar Ágústs-
dóttur á tískusýningu út-
skriftarnema LHÍ.
Andres
hann-
aði línu
sem
ein-
kennist
af ferskri, nútímalegri
útgáfu af klassískri fág-
un. „Línan er innblásin
af arkitektúr og
munsturgerð frá sjö-
unda áratugnum.
Hreint yfirborð, svart,
hvítt og grátt.“
Flest efnin í línunni
pantaði Andres að ut-
an. „Ég notaði Neop-
ren, sem er mjög
mjúkt og slétt en svo
var ég líka með efni
með metaláferð sem
skapaði áhugaverða út-
komu.“
Innblásin
af arkitektúr
ANDRES EDUARDO PELAEZ PALENCIA
„Norræni innblásturinn varð óvart,“
segir Ásrún Ágústsdóttir og bætir við
að við gerð línunnar hafi hún unnið með
ákveðna músu í huga sem er blanda af
Línu Langsokk, Angelu Davis og Jane
Birkin.
„Út frá þessu varð línan svolítið abstrakt póstmódern-
ísk, 21. aldar blóma-
barn. Ég er með líf-
ræn snið. Þau minna
svolítið á sænskt
sveitalíf og við það er
ég með print og
„optical ellusion“ eða
sjónblekkingar vefnað
sem ég óf sjálf.“ Öll
efnin í línunni eru
náttúruleg, íslenskur
mokki og mongólskur
pels í bland við lax-
aroð. En Ásrún vann
einnig með gallaefni
og hör. „Línan er af-
slöppuð og innblásin
af manneskju sem er
samkvæm sjálfri sér
og fylgir eigin innsæi.“
21. aldar blómabarn
ÁSRÚN ÁGÚSTSDÓTTIR