Reykjalundur - 01.06.1961, Page 12

Reykjalundur - 01.06.1961, Page 12
Reykjalundur: Þvottafat kemur fullbúið úr vélinni 1959: 22. jan. Samþykkt reglugerð fyrir vinnu- stofur S.Í.B.S. fyrir öryrkja í Reykjavík. Vinnustofunum gefið nafnið Múlalundur. — Kosin bráðabirgðastjórn fyrir stofnunina. Þessir kjörnir: Formaður, Kjartan Guðnason, aðrir stjórnendur: Guðm. Löve, Olafur Jó- hannesson, Björn Guðmundsson og Gunnar Böðvarsson. 26. febr. Samþykkt að kosta hannyrða- námskeið fyrir sjúklinga á Vífilsstöðum, svo sem áður hefur verið um margra ára skeið. Lagðar fram kr. 150 þúsund til eflingar lána- sjóði S.Í.B.S. Jón Eiríksson, berklalæknir ráðinn að- stoðarlæknir í Reykjalundi. Keypt húseignin Arnarfell að Reykjum, af Sverri Þór, skipstjóra. Henni fylgir 8000 ferm. land. Húsið stendur á landamerkjum Suður-Reykja og Reykjalundar. Jóni lækni fengið húsið til íbúðar. Apríl, 9. Samþykkt á Alþingi lög um Vöru- happdrætti S.Í.B.S. Með þeim er rekstrar- leyfið framlengt um 10 ár. Sömuleiðis fela lögin í sér rýmkun ráðstöfunarréttar sam- bandsins á tekjum happdrættisins, svo sem til bygginga vinnustofa fyrir öryrkja og ann- arrar félagsmálastarfsemi S.Í.B.S. Maí, 5. Áætlun sambandsins um fjárfest- ingu lögð fram og samþykkt. Niðurstöðu- tölur væntanlegra tekna til ráðstöfunar kr. 5.210.000.00. Skiftast milli fyrirtækja S.Í.B.S. og annara útgjalda. Stofnkostnaður í Reykjalundi kr. 1.800.000. Stofnkostnaður í Múlalundi kr. 1.800.000. 10 Reykjalundur

x

Reykjalundur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.