Reykjalundur - 01.06.1961, Side 17
yfirbragði heimilisins, sem birtist í hreinlæti,
smekk og reglusemi, eigi aðeins á þeirri hlið,
sem blasti við gesti, heldur út til yztu afkima.
Þetta fagra svipmót Reykjalundar var gjöf
fröken Valgerðar til þessa heimilis, sem hún
unni og léði alla starfskrafta sína og hæfi-
leika.
Fröken Valgerður var svo vinsæl í starfi
sínu að aldrei kom til sundurþykkju með
henni og vistmönnum og því síður með stjórn
heimilisins. Hélt hún þó uppi aga og gerði
eindregnar kröfur um reglusemi og háttprýði
í umgengni; er sinnt var sem sjálfsögðum
hlut, þar eð engum duldist að ströngustu
kröfurnar gerði hún til sjálfrar sín.
Megi Reykjalundur lengi búa að fordæm-
inu, sem fröken Valgerður setti með starfi
sínu að Reykjalundi. Vonandi er gifta staðar-
ins svo rík að svipmót hennar megi ríkja
þar í framtíðinni.
Samband íslenzkra berklasjúklinga flyt-
ur fröken Valgerði alúðarfyllstu þakkir
fyrir glæsilegan starfsferil í þágu óskabarns-
ins Reykjalundar. Sambandsstjórnin telur
það guðsgjöf að hafa átt hana að samstarfs-
manni um 16 ára skeið.
Þ. Ben.
Valgerður Helgadóttir
kjörin heiðursfélagi S.Í.B.S.
Fröken Valgerður Helgadóttir, yfirhjúkr-
unarkona og húsfreyja í Reykjalundi var
kjörin heiðursfélagi S.Í.B.S. á fundi sam-
bandsstjórnarinnar þ. 1. ágúst s.l.
Fröken Valgerður lét af störfum í Reykja-
lundi um miðjan ágúst síðast liðinn, eftir
að hafa gegnt mjög vandasömum, mjög eril-
sömum og umsvifamiklum störfum á því víð-
kunna og stóra heimili, allt frá því að það var
opnað vistmönnum í febrúar 1945. Lauk
þar með gifturíkum og glæsilegum starfs-
ferli fyrirmyndar húsfreyju og hjúkrunar-
konu, í þágu S.Í.B.S. og Reykjalundar.
Allir þeir, sem komið hafa í Reykjalund,
hafa dáðst að höfðinglegu en jafnframt ljúfu
viðmóti fröken Valgerðar, hrifizt af fáguðu
Reykjalundur 15
VINNINGAR
í merkjum Berklavarnadagsins
^ ferðaviðtæki,
(transistor).
Hvert viðtæki að verðmæti frá
kr. 2000 og allt upp í kr. 5000.
Að loknum Berklavarnadegi
verður dregið um vinningana hjá
Borgarfógeta. Vinninga sé vitjað
í skrifstofu SÍBS, Bræðraborgar-
stíg 9, Reykjavík.